Fréttatíminn - 06.05.2016, Blaðsíða 21
|21FRÉTTATÍMINN | 6. MAÍ 2016
Baslið í krónum og aurum
Í dag fær Ásgeir 260 þúsund krónur fyrir 85% vinnu á búsetu-
kjarna fyrir geðfatlaða. Vala dreifði orlofinu sínu á marga
mánuði og er að fá síðustu 50 þúsund krónurnar í þessum
mánuði.
„Ég er að klára orlofið, ég á 5 daga eftir og svo fer ég
á atvinnuleysisbætur þangað til að annað kemur í ljós.“
Vala reiknar með að fá 160 þúsund krónur í at-
vinnuleysisbætur. Samtals reikna þau með tekjum
upp á 420 þúsund krónur. Matarreikningurinn er 120
þúsund krónur og 150 þúsund borga þau í húsið. Bíll-
inn kostar þau um 25 þúsund krónur. Þeim reiknast til
að eyða u.þ.b. 20 þúsund krónum í föt og 32 þúsund
í skemmtun. Þau ganga bæði til sálfræðings og bæði
eru þau í höfuðbeina- og spjaldhryggsmeðferð og þessi
sjálfsrækt kostar þau 64 þúsund krónur. Ef þau ætla að
leggja fyrir þá verður bíóferðunum og tímum hjá höfuð-
beina- og spjaldshryggssérfræðingi fækkað.
Veit á vandaða lausn
Verið velkomin í verslun okkar að Síðumúla 16
Opið mán - fös 8:30 - 17:00
Síðumúli 16 • 108 Reykjavík • Sími 580 3900 • www.fastus.is
VIKTOR OG CONVOTHERM
ÆTLA AÐ VINNA SAMAN
Á BOCUSE D’OR Í LYON
Viktor Örn Andrésson
Keppandi í Bocuse d’Or
Bocuse d’Or er ein virtasta matreiðslukeppni sem haldin er í heiminum
og hefur verið haldin síðan 1987. Í keppnina komast færri þjóðir að en vilja.
Fastus er stoltur styrktaraðili Bocuse d’Or á Íslandi.
Keppendur Bocuse d’Or hafa aðstöðu í sýningar- og æfingaeldhúsi
Fastus, Síðumúla 16.
FY
2
9
0
4
1
5
TILBOÐ
Á CONV
OTHERM
OFNUM
Í MAÍ
AF ÞVÍ TILEFNI BJÓÐUM VIÐ
ALLA CONVOTHERM OFNA
Á TILBOÐSVERÐI Í MAÍ
kaup á og fluttu inn í 60 fermetra
íbúð steinsnar frá Önnu og æsku-
heimili Völu.
Spírur og ungbarn
Ásgeir er með gluggakisturnar
fullar af pottum með spírum, til-
vonandi agúrkum, tómötum,
bláberjarunna og ruccola og öðru
góðgæti. Þetta á allt eftir að fara út
í beð og stækka og blómstra. Vala
er nýfarin að venja Sólrós, átta
mánaðar gamla dóttur þeirra Ás-
geirs, af því að vakna á nóttunni
þegar hún vill fá brjóst og Ásgeir
sefur þessa dagana inn í stofu á
meðan hún tekur næturvaktina
með Sólrós. Hún segist vera að
fara eftir aðferðinni „The no cry
sleep solution“, sem tekur lengri
tíma en hefðbundnar aðferðir til
að kenna börnum að sofa sjálf.
Anna og Guðmundur
Í viðtalinu í Þjóðviljanum kemur
fram að þau Anna og Guðmundur
höfðu búið í fimm ár í London við
nám og vinnu en voru nú komin
heim og höfðu samanburðinn af
því að búa á báðum stöðum.
„Ég vissi að Guðmundur var
alkóhólisti áður en strákarnir
fæddust og sjúkdómurinn átti eftir
að þróast og versna,“ segir Anna
Yates sem man óljóst eftir þessum
tíma þegar viðtalið var tekið. „Það
er svo langt síðan, ætli ég hafi ekki
verið á sjálfstýringu með börnin
þrjú. Man að það var strembið
fyrstu tvö árin eða þangað til að
strákarnir fóru á leikskóla. Ég fór í
fulla vinnu stuttu eftir að viðtalið
var tekið, sem blaðakona á Iceland
Review, og þurfti að púsla þessu
saman, fór með börnin á milli dag-
mömmu og tengdamömmu minn-
ar. Guðmundur var þá með stöðu
við Landspítalann og kenndi við
HÍ. Hann gat verið skemmtilegur
og hann var mjög músíkalskur og
var í slagtogi við þá félaga í hljóm-
sveitinni Spöðum úr Vogunum.
Ég spilaði líka sjálf á gítar og sér-
staklega mikið fyrir Völu þegar
ég var heima með hana í London,
en ég tók mér þá árs leyfi og var
með hana heima enda var það til
siðs í Bretlandi að mæður væru
heima með börnin sín.“ Anna og
Guðmundur skildu þegar Vala var
18 ára.
Ég og þú og svo við
Frá byrjun voru Vala og Ásgeir
ákveðin í því að gefa hvort öðru
svigrúm og hætta saman ef sam-
bandið myndi ekki virka. Þau
ætluðu ekki að láta það henda sig
að hanga saman í óheilbrigðu sam-
bandi þar sem hvorugt þeirra væri
að njóta sín. „Þetta gekk rosa vel
þangað til að hún fæddist, segir
Vala, og meinar þá Sólrós sem allt
hverfist um þessa dagana. Þau
eru búin að skuldbinda sig með
íbúðar kaupum og nýja mann-
eskjan þarf ómælda athygli. Þetta
er ekki lengur bara tveir einstak-
lingar með óheftan tíma til þess að
sinna einstaklingsþörfum sínum,
„ekki lengur ég geri mitt og þú
þitt, núna verðum við að vinna
saman,“ segir Vala.
Þekkjast varla
Ásgeir segir að það geti verið erfitt
að ala upp barn með manneskju
sem maður er að kynnast. Þau hafi
stundum alveg verið að gefast upp
og ætlað að hætta saman. „Við
rífumst og en svo sættumst við.“
Sem betur fer eiga þau Ásgeir og
Vala margt sameiginlegt sem þau
geta byggt samband sitt á. Þau eru
bæði í andlegum félagsskap sem
gefur þeim styrk til þess að vera
jákvæð og bjartsýn, bæði nota þau
hugleiðslu til þess að ná tökum á
deginum, borða hollan lífrænan
mat og stunda hreyfingu.
Týpískt barn sinnar kynslóðar
Ásgeir ólst upp í Hrísey og kláraði
grunnskóla, „og svo var ég að
beita og vann í bláskel, það var
nú ekki mikið að gera, ég var bara
freðinn úti í Hrísey eftir að
Frá byrjun voru
Vala og Ásgeir ákveðin
í því að gefa hvort
öðru svigrúm og hætta
saman ef sambandið
myndi ekki virka.
Þau ætluðu ekki að
láta það henda sig að
hanga saman í óheil-
brigðu sambandi þar
sem hvorugt þeirra
væri að njóta sín.