Fréttatíminn - 06.05.2016, Qupperneq 42
Vinnustofan
Trésmíðaverkstæðið
á Köllunarklettsvegi
Trésmíðaverkstæðið á Köllunarklettsvegi á sér sögu sem nær allt til 1930,
og eru elstu vélarnar á verkstæðinu frá árinu 1913. Upphaflega var verk-
stæðið í Skólastræti og sérhæfði sig þá í húsgagnasmíði. Árni J. Árnason rak
verkstæðið í þá daga, en við andlát hans tók lærlingur hans, Magnús Daní-
elsson, við. Þá fékk verkstæðið nafnið Nýmörk og vöndu margir Reykvík-
ingar komur sínar þangað.
„Þegar Ísland gekk í EES varð ódýrara að flytja inn húsgögn en að smíða
þau hér og við það fóru mörg smíðaverkstæði á borð við þetta á hausinn,“
segir Daníel Magnússon listamaður sem vinnur á verkstæðinu í dag. Smíða-
verkstæðið er þó eitt af fáum slíkum sem lifði og lagaði sig að breyttum að-
stæðum. Nú ber verkstæðið nafnið Hjól atvinnulífsins og er ýmislegt unnið
á verkstæðinu. Mest vinna þeir við að finna lausnir fyrir nýbyggingar. | sgþMynd | Rut Daníel Magnússon vinnur meðal annars að húsgagnahönnun sinni á smíðaverkstæðinu.
Vinir tattúera vini
Að skreyta sig með bleki virðist vera jafn ávanabindandi og Pringles.
Nú velja fjölmargir að láta vini sína flúra á sig persónuleg tattú.
Þau Ýr, Eysteinn, Kinnat og Laufey eru í þeim hópi.
Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir
salka@frettatiminn.is
Svo virðist sem tattúlausir Íslendingar séu að verða minnihlutahópur. Þó flestir velji að láta atvinnumenn flúra sig, fjölgar þeim óðum sem láta félaga með aðgang að tattúvél sjá um flúrið. Flestir eru þeir sammála um að flúrið sé pers-ónulegra ef vinur mundar byssuna.
Alltaf í stíl
– líka allsberar
Laufey og Kinnat
Laufey og Kinnat eru
bestu vinkonur og ákváðu
um daginn að fá sér
vinatattú. „Þegar Laufey
var að verða 18 ára fékk
ég mér lítið L á ristina í
afmælisgjöf til hennar.
Svo fannst
mér
pínulítið
tattú, sem ég sé
aldrei sjálf, ekki
sýna hvað við erum
góðar vinkonur.
Þegar ég nefndi þetta
við Laufeyju ákváðum
við að fá okkur nöfn hvorrar annarrar
á líkamann.“
Vinkonurnar klæða sig oft í stíl og
er tattúið liður í því að geta líka verið
í stíl allsberar, að sögn Kinnat. Fyrir
voru þær báðar með húðflúr af eitur-
flösku og naflagat í stíl við hvor aðra.
Kinnat er sjálf með 13 húðflúr og
síðustu sjö hafa verið gerð af áhuga-
manni. Hún segir ástæðuna fyrir því
vera að henni finnist einfaldara að
nálgast skjótfengin tattú á þann hátt.
„Mig langar alltaf í fleiri tattú – eini
vandinn er bara að ákveða hvaða
mynd ég vil flúra á mig næst.“
Banýfluga, rassgat
og prjónandi
risaeðla
Ýr
Síðasta sumar langaði Ýri í tattú af
banana og býflugu og úr varð ný dýrategund: Baný-
flugan sem kærasti hennar, Slim Slam, húðflúraði á
hana.
„Ég er sjúk í tattú, en er með þá reglu að fá mér
ekki meira en eitt á ári. Svo ég klári nú ekki allt
plássið á mér.“
Ýr er með nokkur tattú og segir þægilegri stemn-
ingu fylgja því að láta þá sem hún þekkir flúra sig.
„Ég er líka með tattú af risaeðlu að prjóna, það
tattú tók sjö klukkutíma á tattústofu með konu sem
ég þekkti ekki neitt. Það var ekki jafn skemmtileg
reynsla og banýflugan og rassgatið sem Anton húð-
flúraði á okkur Hilmu, bestu vinkonu mína, í haust.“
Ýr er þegar búin að ákveða hvað tattú ársins 2016
skuli vera: Anton ætlar
að flúra á hana
Skotta, hundinn
hennar.
Ace-steinn og tattúin
Eysteinn
Eysteinn skartar ellefu húðflúrum
og hafa félagar hans flúrað þau
öll á hann. Þar af á
Salazar vinur hans
heiðurinn af sjö
þeirra. „Ég hef
ekki efni á að fá
mér tattú á stofu, en
ég á hins vegar flinka
vini sem ég treysti full-
komlega til að gera á mig
tattú.“
Eysteinn hefur líka húðflúrað sjálfan sig:
„Ég gerði á mig gulrót að fara í gegnum
appelsínu og sítrónu. Það er innihaldið í A
C E safanum og þannig leikur að nafninu
mínu: ACE-steinn,“ útskýrir Eysteinn.
Húðflúr hans af kúlufisk-loftbelg sem læt-
ur bananasprengju falla til jarðar hlýtur þó að
teljast með frumlegri húðflúrum, en það teikn-
aði Stefán Óli, vinur hans, og flúraði á hann.
„Ég er alltaf að reyna að spara með
því að elda heima og hætta að kaupa
tilbúinn mat, en mér hefur fundist
erfiðast að fá hugmyndir um hvað
skuli elda. Svo ég ákvað að fá utanað-
komandi hjálp við það,“ segir Krist-
leifur Daðason, sem gefur netverjum
tækifæri til að skipuleggja matseðil
fyrir heimili hans. Í byrjun mánaðar
setti hann Google-skjal inn á Facebo-
ok-hópinn Samtök um matseld ann-
arra ríkja(S.U.M.A.R) og bað meðlimi
hópsins um að leggja til rétti sem
hann myndi svo elda heima.
„Þetta er svolítið eins og að hafa
fólk á glugganum á heimili sínu,
að hafa matseld heimilisins svona
fyrir allra augum.“
Margar tillögur netverja eru
mjög metnaðarfullar og meðal þess
sem þegar er komið á matseðilinn
er allt frá hakki og spagettí og hefð-
bundum grjónagraut til hægeldaðs
svínabógs og snigla. Kristleifur er
þó ekki stressaður fyrir að takast á
við matseðilinn.
„Einn setti slátur því honum
fannst sjálfum slátur ógeðslegt, en
mér finnst það ágætt. Ég er ekki
viss hvort sniglarnir voru grín, en
ég ætla bara að finna einfalda upp-
skrift að þeim. Ég þarf reyndar að
komast að því hvað sjóræningja-
súpa er áður en ég elda hana, ég
hef ekki hugmynd um hvað það er.“
Eins og er raðar Kristleifur
matnum sjálfur inn á skjalið og
raðar þá heimilismatnum inn á þá
daga sem barn er á heimilinu og
meira krefjandi réttum inn á hina
dagana: „Fyrir næsta mánuð ætla
ég samt að hafa skjalið opið svo
fólk geti raðað sjálft réttum á daga
fyrir mig, ég held það verði mjög
skemmtilegt.“
Lætur aðra ráða
hvað hann eldar
Sniglar, slátur og sjóræningjasúpa á matseðlinum
Kristleifur
segist ekki vera
stressaður
fyrir að takast
á við réttina
sem net-
verjar leggja
til þennan
mánuðinn.
42 | FRÉTTATÍMINN | 6. MAÍ 2016
Vikan 7.-14. maí
Lau: Sniglar og súrdeigshvít-
lauksbrauð
Sun: Hægeldað lambalæri með
rótargrænmeti
Mán: Tælenskar Fiskikökubollur
Þri: Slátur með kartöflum,
rófum, gulrótum, rúgbrauði og
smjöri
Fim: Vantar rétt
Fös: Kjötbollur og pasta með
parmesan