Fréttatíminn

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttatíminn - 06.05.2016, Qupperneq 56

Fréttatíminn - 06.05.2016, Qupperneq 56
og bragðgóðar. Fyrir rúmu ári gaf hún líka út bókina Molinn minn sem fjallar um reynslu hennar. Birna hefur síðustu ár verið að fikra sig áfram í hlaupunum aftur eftir að hafa tekið sér árshlé vegna veikindanna. Hún er meðvituð um eigin líkama og leggur áherslu á gæði umfram magn, eins og hún orðar það sjálf. Hún æfir alla jafna 6 sinnum í viku en þar af eru tvær æfingar þar sem áherslan er á góðan styrk og tækniæfingar. „Þannig næ ég að viðhalda heil- brigðri sál, sterkum búk og árangri á brautinni.“ Í fyrra hljóp hún sitt fyrsta maraþon í Kaupmannahöfn og setti þar aldursflokkamet en áherslan í sumar er á hálfmaraþon vegalengdina. ,,Ég þrífst samt svolítið á fjöl- breytninni og hef mjög gaman af því að klæða mig í utanvegaskóna líka. Allt er þetta spurning um að fylgja hjartanu og hlusta á líkam- ann hverju sinni.“ …hlaup 12 | amk… FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 2016 Þetta gekk samt alltaf lengra og lengra og það kom að því að ég hætti að geta hlaupið og átti það til að dotta í skólanum og mæðast við að ganga upp stiga. Verið velkomin í verslun okkar að Síðumúla 16. Opið mán - fös 8.30 - 17.00 Síðumúli 16 • 108 Reykjavík • Sími 580 3900 • www.fastus.isVeit á vandaða lausn Mikið úrval af stuðningshlífum og öðrum vörum fyrir hlaupafólk NJÓTTU ÞESS AÐ HREYFA ÞIG Sólrún Lilja Ragnarsdóttir solrunlilja@amk.is Íþróttaátröskun er algengari en margan grunar, en um er að ræða falinn sjúkdóm sem alls ekki er bundinn við útlitstengdar íþróttir, eins og ballet og fimleika. Hlaupa- konan Birna Varðardóttir þekkir íþróttaátröskun af eigin raun en hún glímdi við sjúkdóminn á ung- lingsárum sínum. Birna var 12 ára þegar hún tók þátt í sínu fyrsta víðavangshlaupi og það var strax ljóst að þar var á ferðinni efnileg hlaupakona. Áhuginn á íþróttum kviknaði eftir að Birna skipti um skóla vegna eineltis og hún fann fljótlega hvað hlaupin gerðu henni gott. „Hlaup- in gáfu mér rosa mikið og ég öðl- aðist sjálfstraust við að ná góðum árangri. Það var mikil viðurkenn- ing.“ En það var einmitt ásóknin í betri árangur og meiri viðurkenn- ingu sem fór smám saman að hafa slæm áhrif á Birnu. „Ég bætti mig mikið á skömmum tíma um 13-14 ára aldurinn, setti aldursflokka- met í nokkrum vegalengdum og fleira kom til. Ég fann fyrir sjálfs- trausti sem ég hafði ekki fundið fyrir áður og kunni eiginlega ekki að fara með það. Ég vildi alltaf gera betur og ná betri árangri. En það er mjög fín lína á milli þess sem er eðlilegt og þráhyggju. Ég var mjög upptekin af mataræðinu og vigtinni og æfði mikið. Þetta spilaði allt saman.“ Hrós frá öðrum hlaupurum Í fyrstu sá Birna mikinn árangur í hlaupunum. Hún skýldi sér á bak við þá staðreynd að hún væri hlaupari og þess vegna mætti hún vera létt. Hún ætti í raun að vera þannig til að ná árangri. Hún var Mjög fín lína milli þess sem er eðlilegt og þráhyggju Hlaupakonan Birna glímdi við íþróttaátröskun á unglingsárunum en náði bata með aðstoð Boot Camp þjálfara með afsakanir á reiðum höndum og tilbúin svör við öllum þeim spurningum sem vöknuðu hjá fólkinu í kringum hana. „Ég fékk líka mikið hrós frá öðrum hlaup- urum fyrir það hvað ég væri öguð og dugleg, borðaði aldrei óhollt og missti aldrei úr æfingu. Ég var því sannfærð um að ég væri að gera eitthvað rétt.“ Með tímanum fór sjúkdómurinn hins vegar að hafa áhrif á orku og einbeitingu. Það kom mjög glögglega í ljós þegar Birna var á sex tánda ári, nýbyrjuð í Versló. Fyrstu viðbrögð hennar við þess- um einkennum voru að hugsa að hún væri líklega ekki að gera nóg og þess vegna liði henni svona. „Þetta gekk samt alltaf lengra og lengra og það kom að því að ég hætti að geta hlaupið og átti það til að dotta í skólanum og mæðast við að ganga upp stiga.“ Það var þá sem móðir Birnu náði að gera henni grein fyrir því að eitthvað væri að. Hún vann hana á sitt band og fékk hana til að leita sér aðstoðar. Birnu gekk vel að ná bata en fór óhefðbundna leið í þeim efnum. Hún fékk aðstoð hjá þjálfara í Boot Camp líkamsrækt- arstöðinni sem hjálpaði henni að komast á réttan kjöl. Hlustar á líkamann Í dag á Birna í heilbrigðu sambandi við mat, hún nemur næringar- fræði við Háskóla Íslands og held- ur úti síðunni www.birnumolar. com. Þar birtir hún girnilegar upp- skriftir sem eiga það sameiginlegt að vera næringarríkar, einfaldar Náði fullum bata Birna Varðardóttir glímdi við íþróttaátröskun á unglingsárunum. Í dag á hún í heilbrigðu sambandi við mat og nemur nær- ingarfræði við Háskóla Íslands. Birna er farin að hlaupa aftur eftir að hafa tekið sér hlé vegna veikindanna. Mynd | Rut
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.