Fréttatíminn - 06.05.2016, Qupperneq 57
Fólk má ekki ætla sér of mikið.
Hlauparar eiga það oft til að vera
mjög trúir sínu plani. Þeir eru
kannski með 16 vikna prógramm
sem þeir ætla sér að fylgja frá
upphafi til enda.
Við þurfum að taka mið af líðan
hverju sinni sem og öðr-
um verkefnum sem
við erum að fást
við. Við þolum
bara ákveðið álag
og áreiti í einu og
stundum er betra
að breyta út af
plani en að þjösnast á
þreyttum eða meiddum líkama.
Markmiðið er að geta hlaupið
eða hreyft sig allt lífið og þess
vegna þurfum við að stefna í þá
átt. Þetta snýst um langtíma heil-
brigði.
Hóflegt álag og sveigjanleiki er
lykillinn að því að haldast meiðsla-
laus. Leyfa skrokknum og sálinni
svolítið að stýra þessu. Þannig við-
höldum við líka áhuganum.
Agi og ástundun skiptir miklu
máli ef við ætlum að ná árangri
en ef við hlustum ekki á líkamann
og horfum bara á æfingaplanið
þá getur það orðið til þess að
áhuginn dvíni eða við
meiðumst. Hvíldin
gegnir líka sínu
hlutverki.
Ef meiðsli gera
vart við sig er
æskilegt að taka
mark á því sem fyrst í stað þess
að hundsa þau. Maður verður að
vinna með líkamanum en ekki á
móti honum.
Góð regla er að hlusta á líkamann
á meðan hann er heill því hvíldin
getur orðið löng ef við lokum eyr-
unum gagnvart skilaboðum hans.
Svo er það hugmyndin um að
aukaæfingin skipti svo miklu
máli. Við þurfum svolítið að slaka
á þeim skilaboðum, sérstaklega
þegar um unga krakka er að ræða.
Það er oft talað um að aukaæfing-
in skapi meistarann, en það er svo
margt annað sem kemur til, eins
og mataræði, hvíld og ekki síst
andlega hliðin.
Hlauparar, sem og annað íþrótta-
fólk, þurfa að vera duglegir að
næra sig. Þegar við borðum erum
við að leggja inn fyrir auknum ár-
angri. Þá þarf að leggja inn gæði.
Horfum á næringargildið og sam-
setninguna og gætum þess að
líkaminn sé að fá allt sem hann
þarfnast. Neikvætt orkujafnvægi
mun seint vinna með okkur á
hlaupunum.
Svo má ekki gleyma því að
drekka vel af vatni.
Gleyma að skoða tilboð
Það er um að gera að reyna að fá
skóna á sem hagstæðustu verði.
Verið óhrædd við að spyrja um
tilboð og ef þið eruð meðlimir í
hlaupahópi, kannið hvort einhvers
staðar er boðið upp á afslátt fyrir
meðlimi.
Kaupa of litla skó
Of þröngir skór eru ávísun á
blöðrur og önnur óþægindi. Al-
gengara er að konur kaupi of litla
hlaupaskó því þær eru vanari því
að klæðast skóm sem falla vel að
fætinum. Þá eru þær gjarnan með-
vitaðri um fótastærðina.
Versla fyrripartinn
Algeng mistök eru að kaupa sér
skó fyrripart dags sem verða svo
of þröngir þegar líða fer á dag-
inn. Fæturnir þrútna nefnilega
og bólgna yfir daginn, allt frá því
við förum á fætur á morgnana og
þangað til klukkan fjögur á daginn.
Þess vegna er lykilatriði að máta og
kaupa skó seinni part dags.
Einblína á útlitið
Sumir hlauparar eru mjög upp-
teknir af því að reyna að vera í nýj-
ustu tískunni, en það hentar ekki
alltaf þegar kemur að því að kaupa
hlaupaskó. Það skiptir öllu máli að
skórnir henti þér og þínum fótum.
Gera ráð fyrir stærðinni
Þó að þú notir skó númer 38 í
merkinu Nike er ekki þar með sagt
að þú þurfir sömu stærð í New
Balance eða einhverju öðru merki.
Það er nefnilega mismunandi eftir
merkjum hvaða stærð þú þarft.
Þess vegna er mikilvægt að láta
mæla á sér fótinn í hvert skipti
sem nýir skór eru keyptir og máta
nokkrar gerðir.
…hlaup13 | amk… FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 2016
Heillaráð
Birnu
Fimm algeng mistök við kaup á hlaupaskóm