Fréttatíminn - 06.05.2016, Page 62
Stuttar æfingar fastandi
Sumum líður einfaldlega illa ef
þeir borða áður en þeir fara á æf-
ingu, sérstaklega á morgnana.
Stundum er gott að æfa á
fastandi maga, en það á bara
við þegar um stuttar og auð-
veldar æfingar er að ræða. En þá
er mikilvægt að drekka nóg af
vatni. Gott er að miða við æfing-
ar undir klukkutíma. Ef um lengri
æfingar er að ræða er nauðsyn-
legt að borða, einfaldlega til að
hafa næga orku.
Mikið af kolvetnum
Ef þú ert að borða skömmu fyrir
æfingu er mikilvægt að máltíðin
sé rétt samsett. Hún þarf að inni-
halda mikið af kolvetnum og lítið
af fitu og trefjum. Kolvetnin gefa
þér mikla orku án þess að valda
ónotum í maga.
Borðaðu hálftíma áður
Tímasetning máltíðar fyrir hlaup
skiptir miklu máli, en best er að
borða að minnsta kosti hálftíma
áður en farið er á hlaupaæfingu.
Borðaðu rétt
fyrir hlaup
Ef þú ætlar að ná
árangri í hlaupum
getur verið nauð-
synlegt fyrir þig að
breyta matarvenjum
þínum samhliða. Það
skiptir líka máli að
borða rétt svo þér
líði sem best þegar
þú ert að hlaupa.
Innan við tuttugu mínútum eftir
hlaup að fá sér létta prótein- og
kolvetnaríka máltíð til að endur-
hlaða orkubirgðirnar.
Fáðu nóg af vökva
Mikilvægt er að fá nóg af vökva,
ekki bara þegar verið er að æfa,
heldur alla daga. Vökvinn við-
heldur réttum líkamshita og
hjálpar til við losun úrgangs-
efna úr líkamanum. Gott er að
hafa í huga að vökvi fæst líka
úr ávöxtum og grænmeti og það
er því ekki nauðsynlegt að vera
alltaf að þamba vatn.
Rétt samsetning fæðu
Hugsaðu um samsetningu fæð-
unnar sem þú setur ofan í þig.
Um 55 prósent af daglegum ka-
loríum ættu að koma úr kolvetn-
um, 25 prósent úr próteini og 15
til 20 prósent úr ómettaðri fitu.
Það er þó óþarfi að þróa með
sér þráhyggju gagnvart hlutföll-
unum, frekar vera meðvitaður um
að borða fjölbreyttan og hollan
mat.
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrunlilja@amk.is
Pétur Ívarsson, hlaupari og verslunarstjóri Boss búðarinnar í Kringl-unni, hljóp fyrst hálft Reykjavíkurmaraþon í
jakkafötum árið 2013. Uppátækið
vakti rífandi lukku og gekk reynd-
ar svo vel að hann hljóp aftur í
jakkafötum árið eftir – þá að sjálf-
sögðu heilt maraþon.
Hætti nánast vegna meiðsla
Hugmyndin um að hlaupa í jakka-
fötum kom reyndar upphaflega
ekki til af góðu. „Ég hafði hlaupið
mararþon vorið 2013 og ætlaði
heldur betur að slá í gegn í Reykja-
víkurmaraþoninu um haustið, svo
var ég bara meiddur. Ég átti samt
alltaf skráninguna og reyndi fram
á síðustu stundu að koma henni
út. Eina skilyrðið var að sá sem
tæki við henni myndi ekki hlaupa
hraðar en ég því hann hefði þurft
að hlaupa með mína flögu. Ég vildi
ekki fá skráðan tíma í bækurnar
sem væri betri en minn. Sá sem
ætlaði að hlaupa hætti svo við
kvöldið fyrir hlaup, þannig ég
ákvað fara bara sjálfur og hlaupa í
jakkafötum. Þá hefði ég fullkomna
afsökun fyrir því að vera á lélegum
tíma.“ Pétri gekk þó merkilega vel
að hlaupa meiddur og jakkafötum.
Hann skilaði sér í mark á 1 klukku-
tíma og 42 mínútum sem þykir
nokkuð gott.
Vildi safna helling
Uppátækið vakti að sjálf-
sögðu mikla athygli
og Pétur fékk hálf-
gert samvisku-
bit yfir því
að hafa ekki
gert meira úr
þessu. „Mér
fannst ég
hoppa á góð-
gerðarvagninn
og ná rosa góðri
auglýsingu fyrir
Boss búðina án þess
að leggja nokkuð að
mörkum. Ég ákvað því
strax eftir hlaupið að
næst þegar ég myndi
gera þetta þá myndi
ég gera þetta ennþá
stærra og hlaupa
heilt maraþon í jakka-
fötum. Og nota um leið
tækifærið og safna hell-
ing af peningum.“
Pétur náði heldur betur því
markmiði sínu og náði að safna
einu prósenti af heildarupphæð-
inni sem safnaðist í öllu hlaupinu,
en hann hljóp fyrir Styrktarfélag
krabbameinssjúkra barna.
Vill vera undir þremur tímum
Jakkafötin eru þó ekki hlaupa-
gallinn sem Pétur klæðist oftast
þegar hann hleypur, yfirleitt er
Hljóp í jakkafötum til að hafa afsökun
Pétur Ívarsson hefur vakið athygli fyrir hlaupaklæðnað og útilokar ekki fleiri uppátæki í tengslum við Reykjavíkurmaraþonið
hann bara í gamla góða spandex-
gallanum. Hann hefur reyndar
sterkar skoðanir á hlaupaklæðn-
aði og finnst alltaf jafn gaman að
taka fram úr þeim sem hann
kallar bómullarskokkara.
„Hinn týpíski bómullar-
skokkari er klæddur
í flatbotna handbol-
taskó og er í víðum
bómullarbuxum og
víðri bómullarpeysu,
merktri Russel Athle-
tic,“ segir hann og
hlær.
Næst á dagskrá hjá
Pétri er maraþon
í Kaupmanna-
höfn í lok maí
og markmiðið
er að hlaupa
undir þremur
klukkutímum
– reyndar ekki
í jakkafötum.
En má búast við
því að hann fari
aftur óhefðbunda
leið í hlaupaklæðnaði
í stærri hlaupum? „Ef ég næ að
hlaupa undir þremur tímum í vor,
þá er ég búinn ná því sem mig
langar að ná í hlaupum og þá getur
vel verið að ég geri eitthvað alveg
svakalegt í Reykjavíkurmara-
þoninu. Það er háð því hvort ég
nái mínum markmiðum eða ekki,
hvort ég geti leyft mér að leika
mér.“
…hlaup 18 | amk… FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 2016
Ég ákvað fara
bara sjálfur og
hlaupa í jakkafötum.
Þá hefði ég full-
komna afsökun fyrir
því að vera á lélegum
tíma.
1%
Pétur safnaði
einu prósenti
af heildar upph
æðinni
sem safnaðist
í síðasta
Reykjavíkur m
araþoni.
NÁNAR Á FACEBOOK
TERRANOVA HEILSA
Terranova stendur fyrir gæði, hreinleika og hámarks
virkni. Inniheldur engin fylliefni, bindiefni eða önnur
aukaefni. Terranova - bætiefnin sem virka.
Fæst í fl estum heilsuvörubúðum, apótekum og heilsuvörudeild Nettó.
Ég nota Life Drink á hverjum degi í morgundrykkinn minn.
Með honum get ég verið viss um að fá næringaríka, létta en
orkumikla máltíð.
Antioxidant hylkin frá Terranova hjálpa mér að vinna á harðs-
perrum og jafna mig eftir æfingar. Einnig hafa hylkin nýst mér vel
í sólinni, ég brenn síður og húðin er fyrr að jafna sig ef ég brenn.
FJÓLA SIGNÝ, FRJÁLSÍÞRÓTTAKONA
HÁMARKS VIRKNI
HÁMARKS ÁRANGUR
Pétur Ívarsson
Verslunarstjóri
Boss-búðarinnar