Fréttatíminn

Útgáva

Fréttatíminn - 06.05.2016, Síða 64

Fréttatíminn - 06.05.2016, Síða 64
Unnið í samstarfi við Heilsu og Spa Heilsa & Spa er ný heilsu- og vellíðunarstöð í Ár-múla 9, staðsett á gamla dansgólfi Broadway og því er gríðarlega góð orka og and- rúmsloft í stöðinni. Lögð er áhersla á vellíðan og upplifun í nærandi umhverfi enda er allt nýuppgert og fallegt fyrir augað. Gígja Þórðardóttir, sjúkra- þjálfari og framkvæmdastjóri, og Lovísa Rut Ólafsdóttir, jógakenn- ari í Heilsu & Spa, segja margt vera á döfinni næstu vikur og mánuði. „Það er að hefjast skemmtileg sumardagskrá þar sem áhersla verður á að næra líkama og sál með bættum lífsstíl, fræðslu og óvæntum uppákomum. Læknar, sjúkraþjálfarar, næringar- og íþróttafræðingur verða með regluleg fræðslukvöld og við- skiptavinir hafa aðgang að tækja- sal ásamt því að fá einstaklings- miðaða æfingaáætlun og ráðgjöf. Allir hafa aðgang að hóptímum í sumar sem eru fjölbreyttir, allt frá Quigong til Zumba auk þess sem innifalið er ein flottasta Spa aðstaða landsins með heitum og köldum potti, sauna og æfinga- laug þar sem hægt er að fljóta undir dansandi norðurljósum. Það er því svo sannarlega hægt að hlaða batteríin hjá okkur,“ segja Gígja og Lovísa. „Við bjóðum upp á þverfaglega þjónustu og njótum þess að vera í miklu og góðu samstarfi við Klí- nikina læknastofur og fleiri fyrir- tæki í Ármúla 9 og svo er nálægð við frábæran mat á nýja Bistróinu á Hótel Íslandi gríðarlegur kostur enda næring stór hluti af vel- líðan.“ Í Heilsu & Spa starfa sjúkra- þjálfar frá Gáska, íþróttafræð- ingur, nálastungufræðingur og nuddarar en Thainudd og hefð- bundið nudd eru mjög vinsæl og sérstaklega sem gjafabréf. Einnig er boðið upp á lífsstílsráðgjöf, einkaþjálfun og nú í maí verður boðið upp á tíma hjá nálastung- usérfræðingi. „Það eru spennandi tímar framundan en auk eflingar á heilsutengdri þjónustu þá opnar snyrtistofa hjá okkur síðar í sum- ar og fullt af flottu fagfólki býður fram þjónustu sína.“ Nærandi sumar í Heilsu & Spa Þverfagleg þjónusta og áhersla á vellíðan í Heilsu og Spa í Ármúla Nærandi Lovísa Rut Ólafsdóttir og Gígja Þórðardóttir ráða ríkjum í Heilsa og Spa í Ármúlanum. Þar er boðið upp á nærandi dagskrá í sumar. Mynd | Rut Nærandi sumardagskrá Viltu efla líkama og sál í heilandi umhverfi, endurnýja orkuna og gæla við bragðlaukana í leið- inni? Þá er nærandi sumardag- skrá Heilsu & Spa fyrir þig. Falleg aðstaða, fjölbreytt þjónusta og regluleg fræðsla, m.a. frá lækn- um, sjúkraþjálfara, næringar- og íþróttafræðingi. 4 mánaða opnunartilboð 50% afsláttur Kortið gildir maí–15. september Verð einungis 39.900 kr. Innifalið er: • Aðgangur í Heilsu & Spa Ármúla 9 til 1.september • Tækjasalur, hóptímasalur, æf- ingalaug, sauna, heitur pottur, kaldur pottur og handklæði • Einstaklingsmiðuð þjálfunar- áætlun • Heilsufarsmælingar í upphafi og lokin • Fræðslufundir um næringu, lífs- stíl, jóga, kvenlíkamann og fleira spennandi efni • Vikulegir fróðleikspóstar, upp- skriftir og góð ráð • 10% afsláttur af nuddi og nála- stungum auk annarra tilboða • 2 fyrir 1 í hádegismat á nýupp- gerðu Bistrói á Hótel Íslandi • Handklæði, sauna, heitur og kaldur pottur og æfingalaug þar sem hægt er að fljóta undir dansandi norðurljósum Nánari upplýsingar á Facebooksíðu Heilsa og Spa, í síma 595-7007 og gigja@heilsaogspa.is Unnið í samstarfi við MS Nú er sumarið komið, í það minnsta sam-kvæmt dagatalinu, og sífellt fleiri sem yfirgefa hlaupabretti líkamsræktarstöðv- anna og fara út að hlaupa, enda fátt jafn hressandi og frískandi og útihlaup. Þeir sem stunda hlaup og aðrar íþróttir vita að mataræði og næring skiptir höf- uðmáli til að ná árangri og það er erfitt að koma sér í líkamlega gott form ef við hugum ekki að því sem við látum ofan í okkur. Við getum stritað og púlað en ef við hugsum ekki um hvað við borðum og drekkum eru tölu- verðar líkur á því að hreyfingin skili ekki þeim árangri sem við vonumst eftir. Íþróttadrykkurinn Hleðsla er ferskur og bragð- góður próteindrykkur frá MS sem kom fyrst á markað fyrir um sex árum síðan. Neytend- ur tóku vörunni vel frá byrjun og hentar hún bæði fljótlega eftir æfingar og á milli mála. Síðasta sumar bættist við nýjung í vörulínuna, kolvetnaskert og laktósafrí Hleðsla, og snemma á þessu ári kom hún á markað í fernu með tappa. Kolvetnaskerta Hleðslan er gædd öllum þeim eigin- leikum sem forveri hennar hefur, til að mynda inniheldur hún 22 g af hágæða próteinum, en til við- bótar hefur verið dregið úr kol- vetnainnihaldi með því að notast við sætuefnið súkralósa í stað agaveþykknis. Til viðbót- ar hefur allur laktósinn, þ.e. mjólkursykurinn, verið klofinn, sem þýðir að kolvetnas- kert og laktósafrí. Hleðsla hentar vel fólki með lak- tósaóþol og öðrum þeim sem finna til óþæginda í meltingarvegi við neyslu mjólkur- vara, auk þess sem varan er kjörin fyrir þá sem vilja draga úr neyslu kolvetna. Hleðslan hentar vel fólki sem er á ferðinni, hvort sem það er eftir góða hlaupaæfingu, til að taka með í göngutúra og fjallgöngur eða þeim sem eru í vinnu og skóla og leita eftir hollri millimáltíð. Hér er því um að ræða íþróttadrykk sem er bæði hollur og handhægur, og ekki skemmir fyrir hversu svalandi og bragðgóður hann er. Kolvetnas- kerta Hleðslan hefur 22 g af hágæða próteinum, en til viðbótar hefur verið dregið úr kolvetna- innihaldi með því að notast við sætuefnið súkralósa í stað agaveþykknis. Frábær hleðsla eftir góða hlaupaæfingu Íþróttadrykkurinn Hleðsla er kolvetnaskertur og laktósafrír próteindrykkur Ef þér finnst þú ekki geta hlaupið nema einhver eða eitthvað sé að elta þig þá er hlaupasmáforritið, Zombies, Run! akkúrat fyrir þig. Eins og nafnið gefur til kynna koma zombies, eða uppvakningar, við sögu og hjálpa þér við að ná markmiðum þínum. Höfundar forritsins vilja reynd- ar meina að þú munir hlaupa svo hratt að það eldtungurnar standi aftur úr þér. En við látum það liggja milli hluta. Forritið hvetur þig til að hlaupa hraðar og meira með því að blanda þér inn í æsispennandi sögu af uppvakningum sem þú þarft að komast undan til að bjarga bæði lífi þínu og annarra. Þetta verður alltaf erfiðara samhliða bættum árangri þínum í hlaupunum. Hægt er að tengja Zombies, Run! við ýmis tónlistarforrit, eins og Spotify, en forritið má nálgast frítt bæði fyrir android og iOS. Hlauptu á undan uppvakningum …hlaup kynningar 20 | amk… FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 2016

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.