Fréttatíminn - 06.05.2016, Síða 69
Besta tónleikamynd
allra tíma
Bíó Paradís klukkan 20 The
Last Waltz. The Last Waltz, í leik-
stjórn Martins Scorsese, fjallar
um lokatónleika The Band sem
voru haldnir 25. nóvember 1976
í San Francisco. Sveitin hafði
verið í sextán ár á tónleikaferð
og ákvað að binda endahnútinn
á ferilinn með því að bjóða fjölda
vina sinna að spila með sér í
hinsta sinn. Á meðal þeirra voru
Eric Clapton, Bob Dylan, Van
Morrison, Ringo Starr, Neil Young,
Ron Wood og Muddy Waters.
„Ég er mikill sjónvarpsmaður og er
af þeirri kynslóð sem kveikir strax
á sjónvarpinu þegar ég kem heim.
Það er alltaf kveikt, jafnvel þó mað-
ur sé ekki endilega að horfa. Það
er eitthvað heimilislegt við að hafa
sjónvarpið í gangi. Uppáhaldsþátt-
urinn minn núna er Rapp í Reykja-
vík sem Dóri DNA og Gaukur Úlfars
gera. Þetta er mjög vel heppnað og
skemmtilegt hjá þeim og umfjöllun-
arefnið gott enda hip hoppið í sókn.
Það er gaman að Dóri skuli vera að
stjórna þessu því þá veit maður að
enginn viðmælendanna heldur aftur
af sér, hann er „veteran“ og þetta er
ekkert bull. Þessir þættir eru frábær
samtímaheimild.
Svo var ég hrikalega ánægður
með Ligeglad. Það var gaman að sjá
þennan tón sleginn í leiknu efni á Ís-
landi. Mér hefur lengi fundist svona
efni henta mjög vel íslenskum húm-
or, þessi vandræðalega kaldhæðna
stemning. Ég er aðdáandi Curb Your
Enthusiasm og Klovn og vissi að
það væri hægt að heimfæra þessa
tegund gríns á íslenskan veruleika,
jafnvel þó þetta hafi verið gert í
Danmörku. Ég er bara mjög þakk-
látur fyrir að þau hafi tekið stökkið.“
Sófakartaflan
Atli Fannar Bjarkason, ritstjóri
Nútímans og einn höfunda
Áramótaskaupsins
Rappþættir Dóra DNA frábærir
Ánægður með Ligeglad „Ég er aðdáandi Curb Your Enthusiasm og Klovn og vissi að það
væri hægt að heimfæra þessa tegund gríns á íslenskan veruleika.“ Mynd | Hari
Undanúrslit í Útsvari
RÚV Fljótsdalshérað – Fjarða-
byggð klukkan 20. Það er að komið
að undanúrslitum í þess-
um vinsæla spurn-
ingaþætti sem Þóra
og Sigmar stjórna. Í
þessum seinni und-
anúrslitaþætti keppa
tvö sveitarfélög að
austan; Fljótsdalshérað og
Fjarðabyggð um það hvort mætir
liði Reykjavíkur í úrslitum.
Önnur orusta
í hverfinu
Laugarásbíó Bad Neighbours
2: Sorority Rising. Eftir að hjónin
Mac og Kelly (Seth Rogen og
Rose Byrne) tókust á við bræðra-
lag háskólastráka í fyrri myndinni
er orðið rólegt í hverfinu. Þegar
þau ætla að stækka við sig vegna
yfirvofandi fjölgunar í fjölskyld-
unni ber svo við að heilt systra-
félag flytur í húsið við hliðina
með tilheyrandi partístandi. Mac
og Kelly leita því ráða hjá gamla
óvininum, folanum Teddy sem
Zac Efron leikur, og fá hann til að
hjálpa sér í baráttunni.
FJALLAGRÖSUMMEÐ
Íslensk náttúra. Blikandi dögg og útsýn til allra átta. Þú veður yfir tifandi ána, áleiðis
að settu marki. Framundan rís Herðubreið; drottningin sjálf, stolt í hásæti sínu.
Við höfum nýtt okkur íslensk allagrös frá upphafi byggðar. Heilnæm og frískandi
hafa þau haft áhrif til góðs á líkama og sál, handtínd í íslenskri náttúru. Tópas hefur
sömuleiðis fylgt okkur gegnum tíðina. Saman munu þau gera það áfram.
Gamalt grillefni
með Hrefnu Sætran
RÚV klukkan 15.20 Hrefna
Sætran grillar (1 af 6). Þetta er
fyrsti þátturinn af sex í grillþátta-
röð sem RÚV sýndi fyrir nokkrum
árum með Hrefnu Sætran. Í þátt-
unum býður Hrefna landsmönnum
heim til sín í Litla Skerjafjörð og
grillar á pallinum. Gott
ef útvarpsmaðurinn
Andri Freyr Viðars-
son var ekki fastur
gestur í þáttunum
og fær að gæða
sér á matnum
hjá Hrefnu.
Þeim, sem
ekki verða
límdir við
viðtækin um
miðjan dag-
inn, er bent
á að hægt er
að nálgast
þáttinn í
Sarpinum.
…sjónvarp25 | amk… FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 2016