Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 27.05.2016, Blaðsíða 4

Fréttatíminn - 27.05.2016, Blaðsíða 4
Lyktað af þurrkuðum þorskhausum. Lyktareftirlit með fiskþurrkun á Akranesi Ólykt Sérstakur lyktarhópur verður settur saman til þess að meta hugsanlega lyktar- mengun frá nýrri fiskþurrkun sem bæjarstjórn Akraness heimilaði á þriðjudaginn að risi í bænum þegar breytingu á deiliskipulagi Breiðarsvæðis var samþykkt. Hart hefur verið deilt um uppbyggingu verksmiðjunnar, meðal annars vegna lyktarmengunar frá núverandi verk- smiðju. Mótmælendahópurinn Betra Akranes skilaði inn rúmlega 500 undirskriftum til þess að mótmæla áformunum, á meðan 700 bæjarbúar skrifuðu undir stuðningsyfirlýsingu við áformin. „Það eina sem er eftir er val í þenn- an lyktarhóp,“ segir Einar Brandsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og formaður skipulags - og um- hverfisráðs. Til stendur að skipa 3-5 einstaklinga í hópinn til að framkvæma lyktarskynmatið 1-2 sinnum í viku. Hópurinn mun hefja störf strax til að meta grunnástand lyktardreifingar þrátt fyrir að fram- kvæmdir séu ekki hafnar. Forstjóri HB Granda hefur lýst því yfir að ef lyktarmengun verði óviðunandi þá verði starfsemi hætt í verksmiðjunni. Það er nokkuð sem Guðni Hannesson ljósmyndari, sem er einnig í samtökun- um Betra Akranes, er efins um. „Við höfum gagnrýnt verksmiðjuna, sem er fyrir hér í bænum, í fimmtán ár án árangurs, þannig ég er ekki bjart- sýnn á að eitthvað breytist núna,“ segir Guðni, sem bætir við að það sé bein- línis tímaskekkja að vera með stóra fiskþurrkunarverksmiðju inni í miðju bæjarfélagi árið 2016. | vg Mynd | NordicPhotos/GettyImages Jafnrétti Borgin sendir til- mæli um transklósett Mannréttindaráð Reykjavíkur- borgar hefur sent frá sér tilmæli um það sé framvegis haft í huga við hönnun, endurgerð og viðhald á opinberu húsnæði borgarinnar að tryggja öllum kynjum viðeigandi salernisaðstöðu og búningsklefa þar sem við á. Jafnframt er borginni falið að gera úttekt á núverandi aðstöðu og skoða hvar hægt sé að breyta fyrirkomulaginu strax „án þess að afsláttur verði gefinn af næði eða öryggistilfinningu fólks af öllum kynjum,“ eins og segir í tilkynn- ingu. Í mannréttindastefnu borg- arinnar er skýrt kveðið á um að tryggja eigi jafnrétti karla, kvenna og transgender fólks og hluti af því sé að tryggja salernisaðstöðu í opin- beru húsnæði. Starfslok Júlíus Vífill getur verið á biðlaunum í 6 mánuði kjósi hann svo. Hann sagði af sér eftir að upp komst að hann ætti aflandsfélag. Fyrrverandi borgarfulltrúi Sjálf- stæðisflokksins, Júlíus Vífill Ingv- arsson, heldur launum sínum í allt að sex mánuði, eftir að hann sagði af sér í apríl síðastliðn- um vegna tengsla við aflands- félagið sem greint var frá í Panamaskjölunum. Samkvæmt sam- þykkt um kjör og starfsaðstöðu kjör- inna fulltrúa hjá Reykjavíkurborg á borgarfulltrúinn rétt á biðlaunum í þrjá mánuði. Miðast þau við grunnlaun borgarfulltrúa sem eru um 554 þúsund krónur á mánuði. Ef Júlíus tekur ekki við öðru launuðu starfi innan þriggja mánaða, heldur hann biðlauna- rétti þar til hann tekur við öðru starfi, en þó ekki lengur en í sex mánuði. Afsögn borgarfulltrúans mun því kosta útsvarsgreiðend- ur um 3,3 milljónir, nýti hann sér réttindin til fulls. Eins og fram kom í Kast- ljósi fyrir skömmu sýndu gögn úr grunni Mossack Fonseca að í ársbyrjun 2014 stofnaði Júlíus Vífill félagið Silwood Founda- tion í Panama. Málið hefur orðið að illvígri fjölskyldudeilu þar sem fyrrverandi borgarfull- trúinn er sakaður um að hafa sölsað undir sig sjóð föður síns. -vg Júlíus Vífill Ingvarsson sagði af sér þegar í ljós kom að hann ætti aflandsfélag. Hann er nú á biðlaunum. Júlíus Vífill á biðlaunum Tryggja öllum kynjum salernisaðstöðu Ofbeldi Lögreglan hefur sett í algjöran for- gang rannsókn á brotum sem heyrnarskert kona sakar barnsföður sinn um að hafa framið. Hæstiréttur staðfesti nálgunarbann yfir manninum í vikunni en hann má ekki koma nálægt konunni og börnum þeirra í sex mánuði. Hann má heldur ekki koma nálægt dvalarstað þeirra né setja sig í samband við þau. Vegna alvarleika málsins telur lögreglan líklegt að það fari inn á borð embættis héraðssaksóknara og að gefin verði út ákæra á hendur manninum hið fyrsta. Að mati lögreglu er málið sérlega gróft þar sem ofbeldið beinist ekki bara gegn konunni heldur börnunum líka. Konan óttast um öryggi sitt og barnanna og treystir sér illa til fara út með börnin, einkum vegna heyrnar- skerðingar sinnar. Maðurinn á lagalegan umgengnisrétt við börnin en á meðan nálgunarbannið er í gildi má hann ekki hitta þau. Þess vegna hefur lögreglan lagt kapp á að ljúka málinu og koma því til dómstóla. Meðal þess sem konan sakar manninn um er að hann hafi, árið 2007, þvingað hana til kynmaka á heimili þeirra, þrátt fyrir að hún hafi staðfastlega neitað því. Árið 2008 eða 2009 hafi hann greitt öðrum manni fyrir að eiga kynmök við hana. Hún lýsir því að hann hafi í áraraðir beitt hana of- beldi og veitt henni áverka. Ítrekuð lögregluafskipti, áverkavottorð og skýrslur af börnum þeirra í Barnahúsi eru talin renna stoðum undir frásögn konunnar. | þt Ofbeldismaður heyrnarskertrar konu undir smásjá lögreglunnar Starfsmannamál Starfsmað- ur Fréttablaðsins sakar aðal- ritstjóra 365 miðla, Kristínu Þorsteinsdóttur, um einelti. Hann er farinn í leyfi vegna málsins en hefur starfað hjá fyrirtækinu í hálfan annan áratug, eða nánast frá stofn- un Fréttablaðsins. Valur Grettisson valur@frettatiminn.is Formleg athugun á málinu fór fram innanhúss undir handleiðslu mannauðsstjóra og fjármálastjóra fyrirtækisins í lok apríl eftir að starfsmaðurinn, Pjetur Sigurðs- son, yfirmaður ljósmyndadeildar 365 miðla, kvartaði undan meintu langvarandi einelti útgefandans. Þeirri athugun var snarlega hætt eftir að Kristín komst á snoðir um málið. Pjetur fór þá í leyfi og for- stjóri 365 miðla, Sævar Freyr Þrá- insson, tók málið yfir. Samkvæmt heimildum Fréttatímans var Krist- ín beðin sérstaklega afsökunar á athugun mannauðsstjóra og fjár- málastjóra. Málið er þó enn óleyst hvað Pjetur varðar. Eineltið á að hafa staðið yfir í um eitt ár og lýst sér í sífelld- um athugasemdum við störf og vinnuframlag Pjeturs, stirðum sam- skiptum þeirra á milli sem Pjetur upplifði að lokum sem persónulega aðför að sér sjálfum. Kvartaði hann að lokum formlega innan fyrirtækisins undan meintu einelti og úr varð að mannauðs- stjóri og fjármálastjóri tóku starfs- fólk í viðtöl til þess að kanna grund- völl ásakananna. Kristín komst fljótt á snoðir um athugun mannauðs- stjórans og brást illa við, samkvæmt heimildum Fréttatímans. Var þá athugun mannauðsstjórans stöðvuð umsvifalaust og var Kristín beðin afsökunar á aðgerð mannauðsstjór- ans. Pjetur mun þó ekki hafa fengið sambærilega afsökunarbeiðni, held- ur fór hann strax í leyfi, sem var í byrjun maí. „Ég verð bara að vísa á forstjóra 365,“ sagði mannauðsstjóri 365 miðla, Unnur María Birgisdóttir, og baðst undan viðtali vegna máls- ins. „Ég tel almennt ekkki rétt að tjá mig um einstök starfsmanna- mál,“ sagði Sævar Freyr í svari við fyrirspurn Fréttatímans og bætti við: „En ég get staðfest að fagleg- ur ágreiningur kom upp á milli að- alritstjóra og eins starfsmanns.“ Sævar neitar hinsvegar að hann hafi stöðvað umrædda athugun. Pjetur hefur starfað hjá fyrir- tækinu í um það bil hálfan ann- an áratug, eða nánast frá stofnun Fréttablaðsins. Kristín tók við starfi aðalritstjóra eftir að Mikael Torfa- son og Ólafur Þ. Stephensen létu af störfum 2014. Þá vegna ágreinings við Kristínu. Kristín ekki viljað svara spurn- ingum blaðamanns vegna málsins. Þá hefur Pjetur ekki viljað tjá sig um málið. Samkvæmt heimildum leitaði Pjetur einnig til Blaðamannafélags- ins til þess að fá ráðgjöf vegna máls- ins. Þar á bæ var þó ekki sérstaklega aðhafst í málinu fyrir hönd starfs- mannsins og engar upplýsingar fengust frá Hjálmari Jónssyni, for- manni félagsins. Kristín Þorsteinsdóttir, aðalritstjóri 365 miðla, gerði athugasemdir við athugun mannauðsstjóra á meintu einelti, og úr varð að því var snarlega hætt og hún beðin afsökunar. Aðalritstjóri 365 miðla sakaður um einelti 4 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 27. maí 2016
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.