Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 27.05.2016, Blaðsíða 18

Fréttatíminn - 27.05.2016, Blaðsíða 18
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði www.skoda.is Stenst kröfur sem stærri bílar væru stoltir af Verð frá aðeins 2.940.000 kr. ŠKODA Rapid kemur skemmtilega á óvart, bæði í akstri og viðmóti. Hreinar línur, nýtt aflmikið yfirbragð og tímalaus fágun gera Rapid að frábærum kosti. Komdu í reynsluakstur og snertu á framtíðinni. Ef aðrir hefðu þurft að halda sig innan sama ramma mál vel vera að það hefði breytt niðurstöðum kosninganna. Ef kostnaður er bor- inn saman við fylgi kostaði atkvæð- ið Ólaf því 1507 krónur, Pétur 1760 krónur en Guðrúnu 964. Að öðru óbreyttu hefði Guðrún því unnið nokkuð afgerandi sigur ef það hefðu verið kostnaðartakmörk. Vissu- lega má segja að Ólafur hafi verið reyndasti stjórnmálamaðurinn, en það breytir því ekki að hann eyddi mestu í baráttuna líka. Pétur treysti á Alþingi Helsta valdatæki forseta Íslands er málskotsrétturinn, sem Ólaf- ur notaði sem kunnugt er fyrstur manna. En hvernig hefðu aðrir farið að? Pétur Kr. um hann fyrir kosn- ingarnar 1996: „Forseti á einungis að grípa til hans við alveg sérstakar og ófyr- irsjáanlegar aðstæður. Alþingis- menn hafa umboð frá kjósendum og meirihluti þeirra á að ráða laga- setningu. Það er þingræðisreglan, sem allt okkar stjórnarfar byggist á.“ Því verður að teljast nokkuð ólík- legt að Pétur hefði beitt réttinum með sama hætti og Ólafur gerði, þar sem þingmeirihluti var fyrir bæði fjölmiðlafrumvarpinu og Icesave samningunum. Guðrún og vilji þjóðar Guðrún Agnarsdóttir sagði hins- vegar: „Mér finnst að setja eigi ákvæði í lög, sem heimili þjóðinni að greiða atkvæði um mikilvæg mál eftir settum reglum, einmitt vegna þess fullveldisréttar sem er í hönd- um þjóðarinnar.“ Guðrún hafði sem þingmaður tíu árum áður sett fram frumvarp þess efnis að ef 10 pró- sent þjóðarinnar skrifuðu undir ætti að vísa málum í þjóðaratkvæð- isgreiðslu og margir stuðningsmenn hennar bjuggust við að hið sama yrði haft að leiðarljósi í hugsanlegri forsetatíð. Ef niðurstöður úr forsetakosn- ingunum 1996 hefðu farið annan veg hefði Pétur Kr. ef til vill aldrei beitt málskotsréttinum, en Guðrún beitt honum ítrekað í samræmi við undirskriftasafnanir. Niðurstaðan varð hinsvegar sú að Ólafur Ragnar beitti honum stundum og stundum ekki, en ómögulegt var að segja til um það fyrirfram hvað hann myndi gera eða eftir hvaða reglum hann færi eða hvort undirskriftarlistar hefðu nokkur áhrif þar á. Niðurstaðan úr Icesave deilunni hefði þó í öllum tilfellum orðið sú sama, en hún er sú að Landsbank- inn greiddi á endanum reikninginn, hvað sem öllum þjóðaratkvæðis- greiðslum leið. Hvað ef? Pétur Kr. Hafsteinn, forseti Íslands Fyrstu 12 ár Péturs á forseta- stóli voru heldur viðburðalítil. Þrátt fyrir að 45.000 manns hefðu skrifað undir áskorun um að hann hafnaði lögum um virkjun á Eyjabakka árið 1999 og fimm árum síðar hafi 31.000 manns hafi skorað á hann að samþykkja ekki fjölmiðlalög varð hann við hvorugri kröfunni með þeim rökum að „þingræði ríkti í landinu.“ Í kjölfar setningar fjölmiðla- laga árið 2004 var fjölmiðla- samsteypan Norðurljós brotin upp og fjöldamargir minni miðlar urðu til í kjölfarið. Atburðurinn var stundum nefndur „Síðasti sigur Dav- íðs“ sem vék úr forsætisráð- herrastóli ári síðar, en sumir vilja meina að það hafi verið nokkurskonar Pyrrosarsigur þar sem gagnrýni á stjórn- völd jókst til muna í kjölfarið. Það var jafnvel haft á orði að Davíð hefði ætlað sér að verða ritstjóri Morgunblaðsins eftir að stjórnmálaferli hans lauk, en slík áform voru orðin ótæk í hinu nýja fjölmiðlaumhverfi. Pétur beið talsverðan álits- hnekki í efnahagshruninu haustið 2008, og var hann gagnrýndur fyrir að hafa gengið fulllangt í stuðningi sínum við Sjálfstæðisflokk- inn. Aðrir sögðu honum til varnar að hann hefði gagn- rýnt Baugsveldið, þó aðrir teldu slíkt ekki á verksviði forseta. Stuðningsmenn hans töldu jafnframt að enn verr hefði farið í hruninu hefði hann stöðvað fjölmiðlalögin, sem komu í veg fyrir einokun útrásarvíkinga á umræðunni. Farsæl endalok Icesave málsins tryggðu endurkjör vinstristjórnarinnar árið 2013, en sumir hægrimenn töldu að Pétur hefði haft það í hendi sér að lama hana með því að hafna samningunum og áfelldust hann fyrir að gera það ekki. Pétur Kr. lét af embætti for- seta Íslands árið 2012, í sam- ræmi við þá hefð að enginn forseti sitji lengur en í 16 ár. Mér finnst að setja eigi ákvæði í lög, sem heimili þjóðinni að greiða atkvæði um mikilvæg mál eftir settum regl- um, einmitt vegna þess fullveldisréttar sem er í höndum þjóðarinnar. Guðrún Agnarsdóttir 18 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 27. maí 2016
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.