Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 27.05.2016, Blaðsíða 34

Fréttatíminn - 27.05.2016, Blaðsíða 34
Námsmenn í Vestur-Berlín. Íslenskar mæður og börn í almenningsgarði á 17. júní 1989, nokkrum mánuðum áður en múrinn féll Frá vinstri: Soffía Gunnarsdóttir, starfsmaður íslenska sendiráðsins í Berlín, með dóttur sína. Sesselja Auður Eyjólfsdóttir, aðstoðarskólastjóri Langholtsskóla. Hrönn Kristins- dóttir kvikmyndaframleiðandi. Sigríður Þorgeirsdóttir heimspekingur með Elísabetu í fanginu. Krjúpandi er Jóna Fanney Friðriksdóttir framkvæmdastjóri, Hrafnhildur Ragnarsdóttir sérkennslukennari. Margrét Rósa Sigurðardóttir menntaskólakennari. Jórunn Sigurðardóttir útvarpskona. Börnin eru frá vinstri fremst, Sölvi Tómasson í fanginu á Jórunni, Stígur Helgason hjá Hrafnhildi, Hildur Guðnadóttir með Þórarin Guðnason í fanginu á Jónu, Arnór Óskarsson fremst fyrir miðju, Guðbjörg Ágústsdóttir, Borghildur Indriðadóttir, Auður Anna Kristjánsdóttir lengst til vinstri. Fyrir aftan Auði er síðan Una Stígsdóttir og við hliðina á henni er Elísabet Ágústsdóttir með kaskeiti.  Mynd | Ósk Vilhjámsdóttir Innmúraðar mæður í Berlín Á níunda áratugnum hljómaði þýsk­ an einsog flauel í kvikmyndum Fass­ binders, Trottu og Wenders, trega­ full fegurð og ný dýpt í mennsku sem hafði ekki farið mikið fyrir í kvikmyndum fram að því. Á sama tíma var hreyfing innan myndlistar­ innar sem kallaði sig „Neue Wilden“ og náði meir að segja til fleiri en bara listunnenda. Neue Wilden voru mik­ ið til bara strákar að mála stórt og klæddu sig í leður og spiluðu á bassa­ gítar eða trommusett, dálítið einsog Utangarðsmenn að mála myndir. Fyrir unga manneskju, sem var svag fyrir nýjungum, var allt þetta ágætis aðdráttarafl til þess að flytja búferl­ um og setjast að í Berlín. „Eyjan í rauða hafinu“ Berlín „Eyjan í rauða hafinu“ var hernumin og skipt í franska, am­ eríska og breska hlutann innan múrsins en Rússarnir fengu Aust­ ur­Berlín og allt fyrir utan múrinn. Þetta var lítið að abbast upp á okk­ ur Íslendingana, maður vissi þó að ef viðkomandi labbaði nógu lengi í eina átt þá blasti við múrvegg­ ur. Það var þó helst þegar einhver skriðdrekasýning poppaði upp í hverfinu að henni fylgdi svona óljós áminning um að Berlín hafði einu sinni verið leiksvæði ógnvekjandi atburða sem vonandi myndu ekki endurtaka sig og núna var hún und­ ir eftirliti. Ég bjó í Kreuzberg og hjólaði meðfram ánni Spree á markaðinn þegar veður leyfði. Það gat hins­ vegar verið alveg skuggalega kalt í Berlín á veturna. Ég hef aldrei upp­ lifað eins mikinn kulda, fyrir utan kannski á Svalbarða. Þegar verst lét þá hreinlega fraus andardrátturinn, og loftið var svart af mengun vegna kolanna sem voru notuð í upphitun húsanna og fyrir verksmiðjurnar í Austur­Berlín. Það voru stærðarinnar svæði innan Berlínar sem voru óbyggð og höfðu staðið óáreitt síðan í stríð­ inu. Þessi svæði voru mögnuð af því að þau sögðu svo mikla sögu með því að segja ekki neitt og vera Þegar Berlínarmúrinn féll 1989 var í borginni talsvert samfélag íslenskra námsmanna sem upplifði þessa sögulegu tíma. Hér er brot af sögu þeirra og afkomenda, sem í dag búa margir í Berlín. Alda Lóa Leifsdóttir aldaloa@frettatiminn.is Potzdamerplatz, landið í kringum bókasafnið og fílharmóníuna þar sem flóamarkaðurinn var um helgar og hinn ástsæli þýski leikari Curt Bois ráfaði um í myndinni Himmel über Berlin. Í dag kallast þetta svæði Sony center, eftir að stórfyrirtæki byggðu það upp og heppnaðist nokkuð vel að byggja þarna algjöran óskapnað sem engum þykir vænt um. 34 | FRÉTTATÍMINN | FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 2016
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.