Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 27.05.2016, Blaðsíða 56

Fréttatíminn - 27.05.2016, Blaðsíða 56
Sykur- og glútenlausa matar- byltingin er hafin. Slíkir réttir njóta sífellt meiri vin- sælda og hér er uppskrift að glútenlausu hrökkbrauði. 4 dl. blönduð fræ, t.d. sól- blómafræ, hörfræ og se- samfræ. 1 dl glútenlaus hafragrjón. 100 gr möndlu- eða kókos- mjöl. 100 gr glútenlaust hveiti. 1 dl góð olía. 2 msk fíberhusk, glútenlaust. 1/2 - 1 tsk salt. Ef þið stráið salti ofan á kexið þá má minnka það. 5-7 dl vatn eða annar vökvi. 4 dl. blönduð fræ, t.d. sólblómafræ, hörfræ og sesamfræ. Aðferð: Öllu hráefni fyrir utan vatnið blandað saman og byrjað á að setja helminginn af vatn- inu og bæta síðan í. Hræran þykknar mjög fljótt og best er að bæta við vatni þar til hún er samfelld og ekki of stíf (en þó ekki of blaut) til að hægt sé að fletja hana út á plötu. Mjög gott er að strá grófu salti eða góðu kryddi eins og rósmarín yfir óbakað kexið. Bakað við 200°C í 20 mínútur eða lengur þar til það er gullinbrúnt og stökkt Skorið strax með pítsuskera í hæfilega stór stykki. GLÆSILEGAR BORGIR Í A-EVRÓPU Í BEINU FLUGI Við bjóðum uppá glæsilegar borgir í A-Evrópu. Tilvalið fyrir hópa, fyrirtæki og einstaklinga. Veldu tímann og farðu þegar þú vilt, 2,3,4 daga eða lengur. Verðlag er hagstætt bæði í mat og drykk. Þá er hægt að gera góð kaup á hinum ýmsu verslunum og mörkuðum. Við bjóðum uppá skoðunarferðir fyrir hópa og fyrirtæki. BÚDAPEST Í UNGVERJALANDI Ein af fallegri borgum Evrópu, hún er þekkt fyrir sínar glæsi byggingar sem margar eru á minjaskrá Unesco, forna menningu og spa/heilsulindir. Þar hefur í árhundruði blandast saman ýmis menningaráhrif sem gerir borgina svo sérstaka. Flogið er tvisvar í viku allt árið. GDANSK Í PÓLLANDI Hansaborgin Gdansk er elsta og fallegasta borg Póllands, saga hennar nær aftur til ársins 997. Glæsilegur arkitektúr, forn menning og tónlistar-hátíðir hafa gert borgina að vinsælustu ferðamannaborg Póllands. Flogið er tvisvar í viku allt árið. RIGA Í LETTLANDI Gamli og nýi tíminn mætast í borg sem ekki á sinn líka. Gamli bærinn í Riga er virkilegt augnayndi hvert sem litið er og setur borgina á stall með fallegri borgum Evrópu. Þar ber hæst kastalinn í Riga, kirkja Sankti Péturs og Dómkirkjan. Flogið er tvisvar í viku frá maí til október. VERÐ FRÁ 87.900.- WWW.TRANSATLANTIC.IS SÍMI: 588 8900 alla föstudaga og laugardaga Sólrún Lilja Ragnarsdóttir solrunlilja@amk.is Það var bókaforlagið Phaidon sem bað mig um að gera þessa bók, en ég hafði ekki hug-mynd um að það væri eitt flottasta bókaforlag í heimi,“ segir Sólveig Eiríksdóttir, eigandi veitingastaðarins Gló, sem sendi nýlega frá sér matreiðslubókina Raw, sem skrifuð er á ensku. Hild- ur Ársælsdóttir, dóttir Sólveigar, er meðhöfundur bókarinnar, en þær mæðgur skrifuðu einnig saman bókin Himneskt, og halda úti blogginu Mæðgurnar.is. Stundum kærulaus Solla, eins og hún er alltaf kölluð, var lítið að spá hvað það þýddi fyrir hana að landa samningi við áðurnefnt bókaforlag. Hún var bara með hugann við matinn. „Ég er pínu lúði og spái svo lítið í svona. Ég get verið svo kærulaus. Svo er ég auðvitað ofvirk, þannig það þýðir ekkert að setja mig í skrifstofuvinnu. Ég vil bara vera í eldhúsinu,“ útskýrir hún. Keyptu bækur á íslensku „Það var alltaf verið að biðja um bók á ensku, þá aðallega erlendu viðskiptavinirnir okkar á Gló. Fólk hefur meira að segja verið að kaupa íslensku bækurnar og nota Google translate. Mér finnst það hrikalega krúttlegt,“ segir Solla og hlær. Hún er mjög ánægð með bókina, og þykir sérlega skemmti- legt að hún sé myndskreytt með fallegum myndum af Íslandi. „Bókin er svo guðdómlega fal- leg. Það er sami hönnuður á henni og á Noma-bókunum, en Noma er einn virtasti veitingstaður í heimi. Bækur frá þeim hafa mörg ár í röð hlotið titilinn matreiðslubók ársins. Ég var því allt í einu kom- inn á einhvern stað sem ég hafði ekki hugmynd um að ég væri að fara á. Ég var bara að hugsa um enska bók fyrir viðskiptavinina mína.“ Gengu á eftir henni Það eru reyndar nokkur ár síðan Phaidon hafði fyrst samband við Sollu, en þá var svo brjálað að gera hjá henni að hún mátti ekkert vera að standa í bókaútgáfustússi í útlöndum. „Þegar ég fékk svo sím- tal aftur þá fékk ég að vita að þau hefðu aldrei áður þurft að ganga á eftir neinni manneskju. Þau væru vön að berja af sér fólk sem vildi fá efni útgefið.“ Solla hélt reyndar áfram að vera erfið og bera fyrir sig tímaskort en ákvað að slá til þegar gefið var grænt ljós á að dóttir hennar fengi að vera meðhöfundur. „Hún er næringarfræðingur, algjör snill- ingur í eldhúsinu og mjög flink að gera texta,“ segir Solla sem er að vonum stolt af dótturinni. Verður að þróa uppskriftir Útgáfusamningurinn hefur held- ur betur undið upp á sig, en búið er að þýða bókina á frönsku og gefa hana út um allan heim. Vinir og kunningjar Sollu hafa einmitt verið duglegir við að senda henni snapchat-skilaboð þegar þeir rek- ast á bókina í hinum ýmsu verslun- um víða um heim. En sjálf er hún enn með báða fætur á jörðinni. „Mín viðbrögð við þessu eru bara: „Já, æði!“ og svo fer ég aftur inn í eldhús að skera gulrætur. Fólk er að spyrja hvort ég sé ekki ánægð og finnist þetta ekki merkilegt, sem mér finnst auðvitað. Ég er mjög þakklát, en hausinn á mér getur ekki dvalið við þetta. Hann verður að halda áfram að þróa nýj- ar uppskriftir,“ segir Solla. „Ég vil bara vera í eldhúsinu“ Solla Eiríks sendi nýlega frá sér bókina Raw, sem er skrifuð á ensku Bókaútgáfa Solla hafði oft verið beðin um að gefa út efni á ensku, en það voru aðallega erlendir viðskiptavinir á Gló sem óskuðu eftir því. Nú er hún búin að senda frá sér bók á ensku sem mun eflaust gleðja marga. Mynd | Hari „Ég er mjög þakklát, en hausinn á mér getur ekki dva lið við þetta.“ Glútenlaust hrökkbrauð Hvað er betra en ískalt og gott límonaði í góða veðrinu? 350-400 gr fersk hindber 1 bolli nýkreistur sítrónusafi ½ bolli ískalt vatn 2-3 msk sykur (jafnvel meira – gott að smakka til) 3 msk gott fljótandi hunang 1 lítri sódavatn Nóg af klökum Aðferð: Maukið berin í blandara eða mat- vinnsluvél. Sigtið maukuð ber- in ofan í könnu eða skál. Hrærið saman vatni og sykri í aðra könnu, þar til sykurinn leysist upp. Blandið vatni og hunangi saman við og hrærið vel. Hellið sigtuðu berja- blöndunni ofan í, svo sódavatninu og hrærið létt. Nóg af klökum og njótið vel. Sumarlegt hind­ berja límonaði …matur 4 | amk… FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 2016
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.