Fréttatíminn - 27.05.2016, Page 26
Fáðu ráðgjöf landslagsarkitekta okkar og aðstoð við efnisval
FRÁ TEIKNINGU
AÐ FALLEGUM GARÐI
Frí ráðgjöf til 1. júní
Pantaðu tíma í ráðgjöf í
s. 412 5050 eða á sala@bmvalla.is.
Kynntu þér úrvalið af fallegum
hellum og garðeiningum á
bmvalla.is
þegar hann var þriggja ára gam-
all. Í filippseysku þjóðlífi er löng og
rík hefð fyrir áhrifa- og valdamiklum
ættum. Duterte-fjölskyldan tengist
tveimur gamalgrónum stjórnmála-
ættum fjölskylduböndum, Durano
og Almendras, og faðir Rodrigos var
sjálfur borgarstjóri og héraðsstjóri á
sínum tíma. Í frændgarði hans má
svo finna fleiri borgar- og bæjarstjóra
og valdamikla menn.
Rodrigo var skapstór og uppi-
vöðslusamur piltur og var rekinn
úr skóla fyrir agabrot. Slíkt fylgdi
honum raunar fram á fullorðins-
ár. Þegar hann var langt kominn í
laganámi í háskóla í höfuðborginni
Manila reiddist hann svo þegar sam-
nemandi stríddi honum á suðræn-
um uppruna hans að hann tók upp
skammbyssu og skaut hann. Sam-
nemandinn komst lífs af og Duterte
fékk meira að segja að útskrifast úr
náminu, þó hann hafi ekki fengið að
vera við sjálfa útskriftarathöfnina
með hinum. En skammbyssan og
ofbeldið hefur sem sagt aldrei verið
langt undan þegar Rodrigo Duterte
er annars vegar.
Grunaðir glæpamenn líflátnir
Eftir útskrift sem lögfræðingur
vann Duterte sem saksóknari og fór
svo að skipta sér af stjórnmálum.
Árið 1988 var hann kjörinn borgar-
stjóri Davao og því embætti gegndi
hann, með nokkrum stuttum hlé-
um, í tuttugu og tvö ár, allt fram til
dagsins í dag. Alls sjö kjörtímabil.
Á þessari löngu valdatíð Dutertes
er það mál flestra að Davao-borg
hafi sannarlega umturnast, breyst
úr alræmdu glæpabæli í eina af
öruggustu og lífvænlegustu borg-
um landsins, ef ekki bara heims-
hlutans. Duterte er enda gríðarlega
vinsæll meðal borgarbúa í Davao og
hefur verið lengi. En þær aðferðir
sem hann hefur beitt til að ná þess-
um árangri hafa sömuleiðis gert
hann umdeildan.
Duterte hefur opinberlega og ít-
rekað lýst yfir stuðningi við einskon-
ar dauðasveitir, sem fóru fyrst að
birtast á götum Davao á ofanverð-
um tíunda áratugnum. Dauðasveit-
irnar voru skipaðar sjálfboðaliðum,
langþreyttum á óöldinni í borginni
– og markmið þeirra var að binda
enda á hana með því að einfald-
lega að taka grunaða glæpamenn
af lífi. Algjörlega án dóms og laga,
og hvort sem það voru morðingjar,
dópsalar, smáþjófar eða götubörn,
og hvort sem óyggjandi sannanir
lágu fyrir sekt eða ekki.
Samkvæmt úttekt alþjóðlegu
mannréttindasamtakanna Human
Rights Watch í fyrra hafa slíkar
dauðasveitir borið ábyrgð á dauða
meira en þúsund manna síðan
Duterte settist í borgarstjórastólinn.
Eflaust er fjöldi fórnarlamba vel á
annað þúsund manns, segja mann-
réttindasamtök á vettvangi í Davao,
og þar á meðal fjöldi barna. Sam-
einuðu þjóðirnar, Human Rights
Watch sem og fleiri mannréttinda-
samtök hafa gagnrýnt það harðlega
í gegnum árin að þessum sveitum
sé leyft að starfa svo að segja óá-
reittum.
Verðlaun fyrir afskorið höfuð
En Rodrigo Duterte hefur ætíð
látið alla slíka gagnrýni eins og
vind um eyru þjóta, enda er hann
mun hrifnari af því að hreykja sér
af dauðasveitunum og undraverð-
um árangri þeirra í baráttunni við
glæpaóværuna, og hvetja morðingj-
ana til dáða. Sem borgarstjóri not-
aði hann iðulega tækifærið í við-
tölum í útvarpi og sjónvarpi til að
lesa upp nöfn nokkurra eftirlýstra
glæpamanna. Og þeir fundust iðu-
lega látnir ekki löngu síðar, teknir
af lífi af dauðasveitum.
Árið 2012 bauð hann fjögurra
milljóna pesóa verðlaun, um tíu
milljónir íslenskra króna, fyrir að
drepa Ryan Yu, alræmdan leiðtoga
bílaþjófagengis. Og milljón pesóa
til viðbótar, yrði borgarstjóranum
fært afskorið höfuð Yus í íspoka.
(Það var að lokum alþjóðalög-
reglan Interpol sem hafði hendur í
hári Yus þessa, og hann fékk því að
halda höfðinu.)
Duterte hefur gefið í skyn að sem
forseti ætli hann sér að taka upp
svipaða stefnu á landsvísu. Í kosn-
ingabaráttunni hét hann því að taka
hundrað þúsund glæpamenn af lífi
og kasta líkum þeirra svo í Manila-
-flóa. „Davao er níunda öruggasta
borg heims,“ sagði Duterte í fyrra
og vísaði þar til skoðanakönnun-
ar sem gerð var á vefsíðunni Num-
beo.com, reyndar aðeins með tæp-
lega fimm hundruð manna úrtaki.
„Hvernig haldið þið að mér hafi tek-
ist það? Hvernig kom ég Davao með-
al öruggustu borga heims? Með því
að drepa alla þessa glæpamenn.“
Duterte er sem fyrr segir gríðar-
lega vinsæll meðal íbúa Davao og
ýmislegt má finna til sem hann
gerði gott á langri borgarstjóratíð
sinni. Hann efldi lögreglulið borg-
arinnar, setti upp fjölda öryggis-
myndavéla, og kom upp neyðarlínu.
Davao varð fyrsta borg Filippseyja
þar sem hægt var að hringja í 911
og fá strax samband við lögreglu.
Hann ef ldi líka heilbrigðiskerf-
ið, bannaði reykingar hvarvetna
um borgina, og bætti líka réttindi
hinsegin fólks í borginni – nokkuð
sem þótti mjög róttækt skref á hin-
um rammkaþólsku og íhaldssömu
Filippseyjum.
Kallaði páfa tíkarson
Á bilinu 80 til 85 prósent allra Fil-
ippseyinga tilheyra kaþólsku kirkj-
unni og ítök hennar í filippseysku
þjóðlífi hafa lengi verið mjög sterk.
En Rodrigo Duterte er einn fárra
Filippseyinga sem tilheyrir öðrum
kristnum trúarsöfnuði, „Konungs-
ríki Jesús Krists“ sem leitt er Apollo
Quiboloy, predikara frá Davao sem
jafnframt heldur því fram að hann
sé sjálfur sonur Guðs.
Duterte hefur haldið því fram að
hann hafi orðið fyrir kynferðislegu
ofbeldi af kaþólskum presti í æsku.
Rodrigo Duterte er mikill
kvennaljómi, að eigin sögn.
Hann er tvígiftur og hefur
jafnframt stært sig af því
opinberlega að eiga fjölda
ástkvenna.
26 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 27. maí 2016