Fréttatíminn

Issue

Fréttatíminn - 27.05.2016, Page 27

Fréttatíminn - 27.05.2016, Page 27
ÚTSKRIFTARGJÖF GÓÐ Kann það að skýra þá fæð sem hann virðist leggja á kaþólsku kirkjuna, en hann notar hvert tækifæri til að bölva kirkjunni og kirkjunnar mönnum, jafnvel sjálfum páfanum. Það vakti reiði kaþólikka í Fil- ippseyjum sem utan þegar Duter- te kvartaði í ræðu undan umferð- aröngþveiti í miðborg Manila þegar Frans páfi heimsótti borgina í nóv- ember í fyrra: „Páfi, helvítis tíkar- sonurinn þinn, farðu heim. Komdu ekki hingað aftur!“ hrópaði Duterte yfir stórum hóp stuðningsmanna sinna. Ummælin urðu svo umdeild að Duterte neyddist á endanum til að biðja páfa afsökunar, en þó með semingi. Hann sagði þá ennfremur að þau hafi ekki beinst gegn páfan- um sjálfum heldur borgaryfirvöld- um í Manila sem ekki hafi haldið nægilega vel utan um umferðarmál í stórborginni á meðan heimsókn páfa stóð. Nýr Marcos í fæðingu? Valdatíð einræðisherrans Ferdin- ands Marcos er mörgum Filipps- eyingum enn í fersku minni. Marcos sat á valdastól í tuttugu og eitt ár, frá 1965 til 1986. Þar af voru herlög í gildi í níu ár, 1972-1981, sem takmörkuðu mjög fjölmiðla- og tján- ingarfrelsi og gerðu Marcos kleift að handtaka og fangelsa andstæðinga sína óáreittur, og láta beita þá mis- kunnarlausum pyntingum og of- beldi. Flestir Filippseyingar voru fegn- ir að sjá að baki Marcos þegar hann flúði til Bandaríkjanna eftir fjölda- mótmæli almennings 1986. Enda hafði hann og fjölskylda hans líka steypt ríkissjóði í gríðarlegar skuld- ir til að geta fjármagnað eigin lúx- uslífsstíl – þar á meðal hið alræmda skósafn forsetafrúarinnar, Imeldu Marcos, – og um tíu milljarðar dollara sem hurfu úr ríkiskassan- um á valdatíð Marcos hafa aldrei fundist. Marcos lést í útlegð á Hawaii 1989. Líkamsleifar hans voru flutt- ar aftur til gamla landsins og hvíla nú í grafhýsi Marcos-fjölskyldunnar á ættaróðalinu á norðanverðum Fil- ippseyjum. En ættingjar hans hafa lengi barist fyrir því að fá að grafa líkið í kirkjugarði í Manila sem ein- göngu er ætlaður helstu stríðshetj- um filippseysku þjóðarinnar, en þær hugmyndir ætíð mætt mikilli mótspyrnu. Rodrigo Duterte hefur nú gefið það út að þegar hann tekur form- lega við embætti forseta Filippseyja þann 30. júní næstkomandi verði það eitt af hans fyrstu verkum að verða við þessum óskum Marcos- -fjölskyldunnar. Einræðisherrann fái að hvíla við hlið helstu hetja filippseysku þjóðarinnar – og það sama hvað almenningur mótmæli. Skeytingarleysi Dutertes í garð slíkra mótmæla og lítið tillit til laga og reglna hafa fengið marga til að velta því fyrir sér hvort Duter- te hyggist leiða Filippseyjar aftur á braut einræðis – að verða sjálfur „næsti Marcos“. Vegna stórkarla- legra yfirlýsinga í kosningabarátt- unni var Duterte líka gjarnan líkt við bandaríska forsetaframbjóð- andann Donald Trump. En eins og Tom Smith, breskur sérfræðingur í Suðaustur-Asíu, bendir á í nýlegri grein í Guardi- an, ætti ekki að bera þá Trump og Duterte saman. Ekki nóg með að Duterte sé þegar kominn til valda, heldur hafi saga hans sýnt að hann sé vel fær um að standa við orð sín, hversu stór sem þau kunna að vera. Fari svo að Trump komist alla leið í Hvíta húsið sé þó ólíklegt að hann geti nokkurntímann innleitt herlög í Bandaríkjunum, þó hann feginn vildi. En það gæti Duterte vel gert. FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 27. maí 2016

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.