Fréttatíminn - 27.05.2016, Page 46
Svanhildur Gréta Kristjánsdóttir
svanhildur@frettatiminn.is
Okkur þykir þetta rými mjög stórt í saman-burði við íbúðina sem við bjuggum í áður. Við vorum að leigja pínulitla og
vafasama holu á Grettisgötu fyrir
150.000 krónur á mánuði,“ segir
Alexandra Arnardóttir, sálfræði-
nemi í Háskóla Íslands. Hún, ásamt
kærasta sínum Alla, býr í paraíbúð
á Eggertsgötu. „Það var fyrir heppni
að við losnuðum úr henni og flutt-
um í Þingholtin í 37 fermetrar íbúð
á svipuðu verði og þessi. Þegar við
misstum hana komumst við bless-
unarlega að á stúdentagörðunum.“
Karakter er það helsta sem Al-
exandra leitast eftir í húsnæði.
Því ríkti því takmörkuð tilhlökk-
un yfir stúdentagörðunum í fyrstu,
en íbúðirnar verða seint kallað-
ar ríkar af karakter. „Okkur líður
hinsvegar mjög vel hérna. Ég elska
bleika gólfið, ég vil alltaf hafa bleikt
gólf héðan í frá. Við höfum sank-
að að okkur hinu og þessu í búið í
gegnum árin. Tekkhúsgögnum frá
ömmum og öfum, Fríðu frænku og
öðrum flóamörkuðum. Við fundum
eldhúsborðið í kjallara hjá afa Alla,
pússuðum það niður og máluðum
fætur og kanta. Það er eins og nýtt
í dag og það mun eflaust fylgja okk-
ur lengi.“
Lífið á stúdentagörðunum er
ánægjulegt, samkvæmt Alexöndru,
staðsetningin trompar partístandið
um helgar. „Það er auðvitað djamm
hérna um helgar, en sjálf erum við
dugleg að bjóða til okkar í matarboð
og partí.“
Alexandra og Alli leggja mikið
upp úr því að vera umhverfisvæn.
Nýverið voru tunnur fyrir plast
kynntar á görðunum og bíður Al-
exandra óþreyjufull eftir lífrænu
tunnunni. „Áður urðum við að
ganga heillengi til að flokka plast-
úrgang, svo það er frábært að vera
komin með sérstaka tunnu fyrir
það. Hér er ungt fólk sem er með-
vitað um umhverfismál og góður
vettvangur til þess að prófa um-
hverfisvænar lausnir áfram, sem
mér skilst að sé á dagskrá. Ég held
það væri mikill áhugi fyrir ræktun
og þesslags, það væri gaman að sjá
frekari lífræna og umhverfisvæna
þróun í samfélagi stúdentagarð-
anna.“
Hvað íbúðina varðar, setja
plöntur og skemmtileg smáatriði
svip á heimilið. Bækur, styttur,
lampar, kaktusar og kerti. Alex-
andra segir litlu eyjuna í eldhúsinu
gera mikið fyrir rýmið. „Við erum
mjög dugleg að elda. Gordon Rams-
ey og Jamie Oliver eru okkar helstu
fyrirmyndir í eldhúsinu og leiða
okkur áfram í eldamennskunni.“
Fleiri myndir á
frettatiminn.is
avis.is
591 4000
Frá
1.650 kr.
á dag
Vissir þú að meðal heimilisbíll er
notaður í eina klukkustund á dag
Langtímaleiga er
þægilegur, sveigjanlegur
og skynsamlegur kostur
Á
R
N
A
S
Y
N
IR
NOTAÐU
ÞITT FÉ
SKYNSAM-
LEGA
Stúdentagarðarnir #4
Vantar bara lífræna
tunnu og ræktun
Alexandra Arnardóttir býr í paraíbúð á stúdentagarði ásamt kærastanum
sínum, Aðalsteini Huga Gíslasyni. Hún er fjórði viðmælandi í myndaröð-
inni Stúdentagarðarnir. Litið er inn til námsmanna og kannað hvernig
ungt fólk nýtir rými með sniðugum og hagkvæmum lausnum, þar sem
nægjusemi einkennir búskapinn. Leigumarkaðurinn er til umræðu og
kynslóðin sem dreymir ekki um einbýlishúsið.
Íbúðin skartar skemmtilegum smáatriðum og fallegum húsgögn
sem parið hefur pússað og gert upp.
Myndir | Hari
Alexandra býr á
stúdentagörðunum
ásamt kærastanum
sínum, Aðalsteini.
Þau hafa komið sér
huggulega fyrir í
íbúðinni sem þeim
þykir stór í sam-
anburði við fyrri
búsetu.
Sóknarprestur Breiðholtskirkju kynnti í vikunni til leiks svokallaðan „drop-in“ skírnar-
og brúðkaupsdag. Fréttatíminn tók saman hugmyndir til nýtingar á nýjunginni:
Skyndibrúðkaup og uppreisnarskírnir
Ný tækifæri til hvatvísra ákvarðana
Frumlegt stefnumót:
Allir eru komnir með leið
á bíóferðum og vand-
ræðalegum máltíðum á
Sjávargrillinu. Athugaðu
hvort deitið hefur virki-
legan áhuga: Kíkið við í
Breiðholtskirkju og látið
pússa ykkur saman! Annað
hvort tekur hinn stefndi
vel í það eða þú sérð hann
aldrei aftur. Teningnum er
kastað.
Gifstu besta vini þín-
um: Britney Spears giftist
æskuvini sínum, Jason
Alexander, í Vegas og
hver man ekki eftir
Vegasferð Ross og
Rachel í Friends? Drekk-
ið, giftið ykkur og gleymið.
Hjónaband Britney og
Jason entist reyndar
bara í 55 klukkustund-
ir, en skilnaður er
seinni tíma vandamál.
Steggjanir og gæsan-
ir: Áttu guðlausan vin
sem er að fara að
ganga í hnapp-
helduna? Að
ráða nektard-
ansara er úrelt,
skírn er ógleym-
anleg athöfn
sem gæti tryggt
þínum vini vist
í himnaríki í
þokkabót!
Gerðu uppreisn gegn
foreldrum: Einu sinni
gat ungt fólk í uppreisn
storkað foreldrum sínum
með því að segja sig úr
þjóðkirkjunni, en það er
liðin tíð í samfélagi þar
sem trúleysi er normið.
Í staðinn geta unglingar
rétt kerfinu puttann með
því að láta skíra sig, jafn-
vel allt öðru nafni en for-
eldrarnir gáfu þeim.
46 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 27. maí 2016