Fréttatíminn - 27.05.2016, Side 54
Fræðir fólk um þunglyndi
Í kjölfar þess að Tara birti sögu sína opinberlega fór hún af stað með
ljósmyndaverkefnið Faces of Depression. Um er að ræða portrettmynd-
ir af fólki – andlit fólks sem berst við þunglyndi. Hún er nú búin að
mynda yfir 100 manns og fékk nýlega styrk til að stækka verkefnið enn
frekar. Framundan er því að taka myndir af fólki á Austurlandi.
Þá vinnur Tara einnig að heimildamyndinni Þunglynda þjóðin sem
hún vonast til að geti nýst sem fræðsluefni í grunnskólum, en hún tel-
ur mikla vöntun á fræðsluefni um þetta málefni fyrir börn og unglinga.
Myndin verður blanda af frásögnum fólks og fræðsluefni, en Tara safn-
ar fyrir gerð hennar á fjáröflunarsíðunni Indiegogo.com. Áætluð útgáfa
er í febrúar 2017.
Á morgun, laugardag, mun Tara svo taka þátt í ráðstefnunni
TEDxReykjavík 2016, með erindi sem fjallar um það hvort samfélags-
miðlar geti bætt andlega heilsu, og miðlar sinni reynslu af þeim efnum.
„Ég var atvinnumaður
í feluleik þunglyndis“
Eftir að hafa farið leynt með þunglyndi sitt í 11 ár og jafnframt glímt við fordóma gagnvart veikindunum ákvað
Tara Ösp Tjörvadóttir að stíga fram í þeim tilgangi að hjálpa öðrum. Hún vissi í raun ekki hve veik hún hafði
verið fyrr en hún fór á lyf árið 2014 og skilur í dag ekki hvernig hún komst af án þeirra.
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrunlilja@amk.is
Í lok síðasta árs var ég að horfa upp á náinn fjöl-skyldumeðlim berjast við sína eigin fordóma gagn-vart þunglyndi, en hann var
ekki að viðurkenna veikindin og
gat því ekki leitað sér hjálpar. Ég
var í rauninni á sama stað en gat
ekki miðlað neinu til þessa aðila
því ég var í felum með fordóma
gagnvart eigin veikindum,“ seg-
ir Tara Ösp Tjörvadóttir, sér-
fræðingur hjá Skema, marmið-
lunarhönnunarnemi og ein af
forsprökkum #égerekkitabú sam-
félagsmiðlabyltingarinnar sem fól
í sér vitundarvakningu um geð-
sjúkdóma.
Með þunglyndi 14 ára
„Ég var þá búin að fela mín veik-
indi í ellefu ár og hélt að fólk
myndi sjá mig sem veika eða ein-
hvern aumingja ef það vissi hvað
væri að. Þess vegna þorði ég ekki
að tala um þetta,“ segir Tara,
sem greindist með þunglyndi 14
ára eftir að hafa upplifað mikla
vanlíðan og vanmáttarkennd
gagnvart lífinu um tíma. Telur
hún að óuppgerð áföll úr æsku
og flutningar úr höfuðborginni
austur á land hafi ýtt undir þung-
lyndið í hennar tilfelli.
Tara vildi svo mikið getað hjálp-
að þunglyndum ástvini sínum,
en vissi að til þess yrði hún sjálf
að opinbera sín veikindi með ein-
hverjum hætti. Hún upplifði sig
enn meira hjálparvana en áður að
geta ekki rétt fram hjálparhönd
í þessum aðstæðum. „Ég hafði
svo miklu að miðla. Ég var að fela
stóran hluta af mér og fannst ég
vera lygari. En þegar ég var far-
in að hafa áhyggjur af öðrum þá
varð ég að gera eitthvað.“
Bréfið sem breytti öllu
Tara tók því ákvörðun um að
skrifa niður alla söguna sína og
sendi umræddum fjölskyldumeð-
limi. „Ég fann að þegar ég var að
skrifa þetta niður, og viðurkenna
fyrir einhverjum, hvað byrðin
varð léttari. Ég var ekki lengur
innilokuð og ein. Ég var að tengj-
ast einhverjum.“ Og bréfið hafði
strax áhrif. Daginn eftir fékk Tara
að vita að fjölskyldumeðlimurinn
hefði viðurkennt vandann fyrir
sjálfum sér og pantað tíma hjá
lækni. „Þá fór ég að hugsa að fyrst
sagan mín hafði áhrif á þessa
einu manneskju, þá kannski hefði
hún áhrif á fleiri. Hvort ég gæti
kannski hjálpað fólki að losna við
byrðina af eigin fordómum.“
Fann hvað þörfin var mikil
Skrefið sem Tara tók næst var
því að senda bréfið á fréttamið-
il sem birti það í heild sinni, og
viðbrögðin létu ekki á sér standa.
Ókunnugt fólk setti sig í samband
við hana og treysti henni fyrir
Vildi hjálpa Tara fann að það var mikil þörf
á því að opna umræðuna um geðsjúkdóma
og ákvað að leggja sitt af mörkum með því
að segja sína sögu.
sínum sögum. „Þá fann ég hvað
þörfin fyrir umræðuna var mik-
il. Það voru svo margir að þjást.
Rannsóknir hafa nefnilega sýnt
fram að byrðin af því að fela veik-
indin er oft erfiðari en að takast
á við sjúkdóminn sjálfan. Margir
voru ráðþrota í felum og ég vildi
gera eitthvað til að hjálpa þessu
fólki. Gera samfélagið móttæki-
legra fyrir andlegum veikindum,“
útskýrir hún.
Og áfram hélt boltinn að rúlla.
Eftir að bréf Töru hafði farið
sem eldur í sinu um samfélags-
miðla fannst henni tilvalið að
nota þann sama vettvang til að
opna umræðuna um geðsjúk-
dóma enn frekar. Sem hún gerði
í samstarfi við tvær aðrar stelpur
sem glímt höfðu við svipuð veik-
indi. Kassamerkið #égerekkitabú
varð strax að algjörri byltingu
á samfélagsmiðlum. Þúsundir
opnuðu sig um andleg veikindi,
birtu jafnvel myndir af sér með
geðlyfin sín og létu kassamerkið
fylgja. „Stundum þarf maður bara
einhvern vettvang til að tjá sig og
smá stuðning til að taka skrefið,“
bendir hún á.
Tók á að vera lifandi
Frá því að Tara greindist og
þangað til hún fór loksins á lyf
árið 2014 hafði hún farið í ýmsar
sálfræðimeðferðir og hugræna
atferlismeðferð með misgóðum
árangri. Hún hafði mikla fordóma
gagnvart þunglyndislyfjum og
það var ekki fyrr en hún var orðin
móðir og fann að hún vildi reyna
að láta sér líða betur fyrir dóttur
sína, að hún lét til leiðast. „Þá
fyrst fór ég að geta lifað venju-
legu lífi. Ég fattaði í raun ekki fyrr
en þá hversu lasin ég var. Þegar
ég byrjaði að taka lyfin þá skildi
ég ekki hvernig ég gat lifað án
þeirra. Fólk sem glímir við þung-
lyndi heldur stundum að lífið eigi
að vera erfitt. Að það eigi að vera
erfitt að fara á fætur, fara í sturtu
og hringja í fólk. Það tók mikið
á mig bara að vera lifandi. Mér
fannst samt að með því að fara á
lyf þá væri ég að viðurkenna að ég
væri veik.“
Fékk bara jákvæð viðbrögð
En að fara á lyf og stíga svo fram
og ræða opinskátt um veikindi sín
hefur umbreytt lífi Töru til hins
betra. „Ég er mjög lokuð týpa, en
þetta hefur hjálpað mér mjög mik-
ið að tengjast fólki. Ég er miklu
frjálsari en áður, ég er ekki að fela
hluta af sjálfri mér og líður ótrú-
lega vel,“ segir Tara einlæg. Hún
viðurkennir þó að fyrst eftir að
hún steig fram hafi ótal neikvæð-
ar hugsanir sótt að henni. „Ég
hugsaði með mér að fólk héldi að
ég væri geðsjúklingur, hvernig ég
ætti nú að komast á deit, hvernig
einhver gæti elskað mig og fleira
í þeim dúr. En það sem gerðist
var algjörlega andstæðan við
það. Ég fékk bara jákvæð
viðbrögð. Svo sögðu sumir
við mig að þá hefði ekkert
grunað því ég væri alltaf
svo glöð. Ég var svo góð
að fela veikindin. Ég var
atvinnumaður í feluleik
þunglyndis.“
Geðsjúka lesbían
En viðbrögðin voru
ekki bara jákvæð,
heldur varð þetta allt
saman til þess að Tara
komst á stefnumót
með konunni sem
hún er trúlofuð í dag.
„Hún las greinina
mína og við enduðum
á því að fara á deit. Ég
komst semsagt á deitið
sem ég óttaðist að gera
aldrei. Það er hægt að
elska þunglynda einstak-
linga. En maður finnur
ekki rétta fólkið til þess á
meðan maður er að fela
veikindin.“
Það er hins vegar ekki
langt síðan Tara áttaði sig á
því að hún hefði miklu meiri
áhuga á konum en körlum
– og viðurkenndi það fyrir
sjálfri sér og öðrum. „Þegar
ég lít til baka þá átta ég mig
á því að ég var ástfangin af
stelpu í grunnskóla, en ég
kveikti bara ekki á því. Sam-
félagið gaf mér einfaldlega
ekki þann valkost. Þetta
var alltaf bara spurning um
hvort maður ætti kærasta.
Samfélagið var ekkert sér-
staklega opið fyrir mér –
geðsjúkri lesbíu,“ segir Tara
og skellir upp úr.
Vissi ekki að hún væri
í skáp
Það var í lok árs 2013 að
Tara fór að gefa þessum til-
finningum gaum sem bærð-
ust innra með henni. En á þeim
tíma var hún trúlofuð barnsföð-
ur sínum. „Ég fann mjög sterka
löngun. Fannst ég verða að prófa
þetta og þá var ekki aftur snúið.
Þetta var greinilega sú sem ég
hafði alltaf verið og svo margt
sem benti alltaf til þess. Tilfinn-
ingar mínar gagnvart konum
hafa alltaf verið miklu sterkari
en gagnvart karlmönnum. Ég hef
meira elskað þá sem vini. En ég
kom alveg út úr þessum lesbíska
og þunglynda skáp árið 2015. Ég
vissi reyndar aldrei að ég væri
inni í samkynhneigðum skáp, en
ég kom samt út úr honum, sam-
kvæmt samfélaginu. 2015 var því
mjög gott ár,“ segir Tara.
…viðtal 2 | amk… FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 2016
Ég fann að þegar ég var að
skrifa þetta niður, og viður-
kenna fyrir einhverjum, hvað byrðin
varð léttari. Ég var ekki lengur
innilokuð og ein. Ég var að tengjast
einhverjum.
Köllunarklettsvegi 1, 104 Reykjavík • Sími: 531 3300 • ritstjorn@amk.is
Útgefandi: Gunnar Smári Egilsson. Blaðamenn: Guðrún Veiga Guðmundsdóttir, gudrunveiga@amk.is; Kidda Svarfdal, kidda@amk.is og Sólrún Lilja Ragnarsdóttir,
solrunlilja@amk.is. Framkvæmdastjóri og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson. amk… er gefið út af Morgundegi ehf. og er prentað í 83.000 eintökum í Landsprenti.
Handunnar
útskriftargjafir