Fréttatíminn - 27.05.2016, Side 62
Það getur verið erfitt að
ná olíublettum eða öðr-
um blettum sem verða
til í innkeyslunni heima
fyrir. Hjálpin er þó nær
en margur heldur.
Kattasandur eða
bökunarsódi
Settu efnið á
blettinn á láttu
það standa í
einn klukkutíma
áður en það er
skolað af með
vatni. Það
gæti þurft
að endurtaka
þetta oftar en
einu sinni.
Kóla-drykkur
Helltu tveimur
dósum af volgu
Kóka kóla eða
Pepsi á blettinn
og láttu það vera
yfir nótt. Þurrkaðu
með klút og skolaðu
svo með vatni.
Uppþvottavéladuft
Bleyttu olíublettinn og
stráðu uppþvottavéla-
dufti yfir allt yfirborð
blettsins. Hitaðu vatn
og þegar það byrjar
að sjóða skaltu hella
því yfir blettinn og
skrúbbaðu með
grófum bursta.
Skolaðu með
vatni að lokinni
skrúbbun.
leiðir til að þrífa olíubletti
úr innkeyrslunni3
Hellurnar eru enn langvinsælastar, að sögn Símonar Ægis Símonarson-ar, verkefnastjóra
hjá Hellubjargi. „Það er þægileg-
ast að vera með hellur. Það er oft
mikið af lögnum, bæði rafmagns-
og vatnslögnum, undir og því er
miklu þægilegra að gera við undir
hellum, sem hægt er að lyfta upp,
heldur en malbikaðri innkeyrslu
sem þarf að brjóta – jafnvel þó arf-
inn sér leiðinlegur,“ segir Símon
og bætir við að úrvalið af hellum
sé sífellt að aukast og mynstrin séu
fjölbreyttari.
Arfinn er hvimleiður fylgifiskur
huggulegra innkeyrslna en Símon
segir að það verði bara að ráðast á
hann eins og hvert annað verk-
efni. „Frjókornin lenda og spíra.
Það er bara þannig. Mikilvægt er
að þrífa innkeyrsluna reglulega og
setja illgresiseyði. Þannig er hægt
að halda arfanum í skefjum,“ segir
Símon.
En það er dýrt að útbúa huggu-
lega innkeyrslu. „Kostnaðurinn
hefur hækkað mikið á undanförn-
um árum, bæði efnið og vinnan. Ég
myndi halda að fermetrinn kosti á
bilinu 17 til 20 þúsund krónur með
jarðvegsskiptum, snjóbræðslu,
hellum og vinnu,“ segir Símon
og bendir á að auðvitað geti fólk
minnkað kostnaðinn töluvert með
því að gera einhvern hluta sjálft.
„Margir leggja hellurnar sjálfir en
fá sérfræðinga til að sjá um jarð-
veginn undir og lagnir. Þá lækkar
kostnaðurinn,“ segir Símon.
Langvinsælast að vera
með hellur í innkeyrslum
Þótt flesta húseigendur hrylli við tilhugsuninni um að hreinsa arfann
á milli hellna í innkeyrslunni heima fyrir þá eru fáir farnir að malbika
innkeyrsluna.
Verk að vinna Símon Ægir Símonarson við hellulögn í Mosfellsbæ. Mynd | Hari
Sími 555 2992/698 7999
SKORDÝRA
FÆLAN
Einnig ætlað börnum
Fæst í öllum apótekum
- og geitungarnir
leggja á flótta
Sláið 3 flugur í einu höggi
Fælir í burtu flugur
Góður ilmur
Verndar húðina
Jurtavörur gera
gagn!
NÚ ER RÉTTI TÍMINN
TIL AÐ LEITA TILBOÐA
…viðhald húsa 10 | amk… FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 2016