Fréttatíminn - 27.05.2016, Qupperneq 72
NæraNdi sumar í Heilsu & spa
Nánari upplýsingar
sími 595-7007 | Facebooksíða Heilsa og spa | gigja@heilsaogspa.is
Viltu efla líkama og sál í heilandi
umhverfi, endurnýja orkuna og gæla
við bragðlaukana í leiðinni?
Þá er nærandi sumardagskrá
Heilsu & Spa Ármúla 9 fyrir þig.
Fallegt SPA, fjölbreytt þjónusta og
fræðsla frá læknum, sjúkraþjálfara,
næringar- og íþróttafræðingi.
4 mánaða
opnunartilboð
mai-15.september
verð einungis 39.900 kr.
eða 9.975 kr. á mánuði
alla föstudaga
og laugardaga
En ég var virkilega veik á þessum
tíma og mjög langt niðri andlega
Hlín Einarsdóttir í viðtali við amk... á morgun
Óli vill ekki
taka við af Óla
Knattspyrnuþjálfarinn Ólafur
Kristjánsson hefur slegið í gegn í
Pepsi-mörkunum á Stöð 2 Sport
það sem af er keppnistímabilinu í
fótboltanum þar sem hann hefur
greint leiki liða á listilegan hátt.
Hann hefur hins vegar lokið
störfum í bili því í vikunni tók hann
við starfi aðalþjálfara hjá danska
úrvalsdeildarliðinu Randers. Eftir
því sem næst verður komist reyndu
aðstandendur Pepsi-markanna að
fá gamla strigakjaftinn af Skagan-
um, Ólaf Þórðarson, til að taka við
af nafna sínum en hann hafnaði
góðu boði.
Auður fær
verðlaun í Frakklandi
Rithöf-
undurinn Auð-
ur Ava
Ólafsdóttir
heldur áfram
að raka inn
verðlaunum í
Frakklandi
fyrir skáld-
sögu sína
Undantekn-
ingin. Að þessi sinni hlaut hún Prix
littéraire des Jeunes Européens
2016. 26 skáldsögur eftir evrópska
höfunda voru tilnefndar og þær
lesnar í þaula af valnefndum ungs
fólks sem á endanum völdu Auði
Övu sem sigurvegara.
Nesbö í þúsundum
Nýjasta bók
norska græpa-
sagnaskáldsins
Jo Nesbö,
Kakkalakkarnir,
hefur setið sleitu-
laust í toppsæti
metsölulista
Eymundsson frá
því að hún kom út fyrir fjórum
vikum. Bókin, sem er þó ekki
nýjasta bók Nesbö heldur önnur í
bókaflokknum um lögregluforingj-
ann Harry Hole, hefur selst í fjögur
þúsund eintökum en alls má telja að
bækur Nesbö, 11 glæpasögur og
tvær barnabækur, hafi selst í um 40
þúsund eintökum.
Sjón í Bretlandi
Samið hefur verið um útgáfu-
réttinn á bókinni Mánasteinn eftir
Sjón í Bretlandi. Bókin mun koma út
hjá hinu virta bókaforlagi Hodder &
Staughton en meðal annarra
höfunda forlagsins eru Fredrick
Backman, sem skrifaði hina vinsælu
Maður að nafni Ove og Stephen
King. Samkvæmt
upplýsingum frá
útgefanda er von á að
Mánasteinn komi út í
byrjun næsta árs.
Hún fékk meðal
annars
Íslensku
bókmennta-
verðlaunin
árið 2013.
Sjón fékk
einnig
Bókmenntaverð-
laun Norður-
landaráðs árið
2005 fyrir bókina
Skugga-Baldur.
Helga Arnar gerir þætti með Eddu Björgvins
„Já, það er rétt! Ég er að fara að
gera þætti með Eddu Björgvins og
Birni Emilssyni, sem mun stjórna
upptökum, og ég get hreinlega ekki
beðið eftir því að byrja,“ segir
sjónvarpskonan Helga Arnardóttir í
samtali við amk. Helga, sem birtist
dagsdaglega á skjám landsmanna í
Kastljósi, segir að þættirnir fjalli
um feril Eddu Björgvinsdóttur sem
grínista en sá er tæplega 40 ára
langur. „Við ætlum að fara yfir sögu
hennar sem grínara á þessum
tímamótum og skoða feril hennar
sem spannar sjónvarp,
kvikmyndir, leikhús
og útvarp. Ég held að þetta séu um
70 klukkutímar af leiknu efni sem
bíður yfirferðar,“ segir Helga en
þættirnir, sem verða þrír, eru hluti
af afmælisdagskrá RÚV og verða
sýndir seinna á árinu.
Helga segir að Edda sé að mörgu
leyti frumkvöðull. „Hún ruddi
brautina fyrir konur í gríni og hef-
ur stungið á mörgum kýlum með
gríni sínu í gegnum tíðina. Við ætl-
um að fanga þennan ríka leikferil,
kynnast henni sem persónu og tala
við hennar fólk, samstarfsfólk og
aðra grínista,“ segir Helga.
Og hún er aðdáandi Eddu. „Ég hef
alltaf verið aðdáandi og Stella í
orlofi er ein af mínum uppáhalds-
myndum. Hún er svo náttúruleg-
ur grínisti að það er erfitt að vera
alvarlegur í kringum hana,“ segir
Helga og hlær. | óhþ
Lífið er hlátur Helga
Arnardóttir segir að það
sé erfitt að vera alvarleg í
návist Eddu.
Alltaf létt
Edda Björgvins
ruddi brautina
fyrir konur
í gríni.