Fréttatíminn

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttatíminn - 19.08.2016, Qupperneq 30

Fréttatíminn - 19.08.2016, Qupperneq 30
Hið kommúníska 1983 var líka á dagskrá RÚV síðasta vetur, í þátt- unum Deutschland 83, sem fjöll- uðu um ungan austur-þýskan njósn- ara í Vestur-Þýskalandi. Þarna var tækifæri til að endurskapa þenn- an heim njósnara og gagnnjósnara og tveggja aðskildra heima í miðri Evrópu (þættirnir gerast bæði í Aust- ur- og Vestur-Þýskalandi) án þess að taka pólitíska afstöðu, sem var nán- ast ómögulegt árið 1983. Af þessu leiðir að ráðamenn bæði austurs- og vesturhlutans birtast manni sem nett paranojaðir – og þeir hæstsettu hættulega ofsóknarbrjálaðir, en kjarni átakanna byggist í raun fyrst og fremst á misskilningi á gjörðum og ætlunum andstæðingsins. Áratugurinn endaði svo með hvelli, árið 1989 var viðburðaríkasta ár mannkynssögunnar síðan 1967 og skyndilega hrundi heimsmyndin – ný lönd urðu til í miðri Evrópu og svart-hvítur heimur hvarf og í ljós kom að það voru ekki bara komm- únistablokkir í austrinu heldur líka ósnortnir miðaldamiðbæir, sem höfðu verið líkt og í formalíni í hálfa öld. Nostalgískir vesturlandabúar gátu farið í austurveg til að sjá sína eigin löngu horfnu miðaldafortíð um leið og þeir gátu séð kommún- istafortíðina á meðan hún umbreytt- ist í nostalgíu fréttatíma og njósna- þrillera kalda stríðsins. En Vesturlönd leituðu bara ennþá lengra í austur eftir nýjum óvini og hafa verið með stríðsrekstur í Mið- -Austurlöndum lengst af síðan. Eft- ir stendur er að það er auðvelt að sjá fyrir sér níunda áratuginn sem saklausa áratuginn áður en heims- myndin hrundi. En við vitum vel að þetta er ekki svo einfalt, það er ekki eins og valdatíð Reagans og Thatchers hafi verið nein gullöld friðar og manngæsku. Mögulega erum við líka að líta aftur til þess að sjá hvar pólitíkusar nútímans urðu til – er Donald Trump mögulega bara eðlileg endastöð frjálshyggjuveg- ferðarinnar sem Ronald Reagan hóf? Back to the Future II gefur raunar einmitt það í skyn – hún býður okk- ur upp á tvær mögulegar framtíð- ir; aðra þar sem hægt er að skauta á svifbrettum, hina þar sem illmennið Biff (sem er ískyggilega líkur Donald Trump) ræður öllu út á illa fenginn auð. Eitís verður næntís Þessar eitísmyndir sem við notum til að flýja nútímann eru líka ósjald- an að flýja eigin samtíma; Winona Ryder var sæta lúðastelpan sem ranghvolfdi í sér augunum yfir inn- antómum samtímanum undir lok níunda áratugarins – en svo kom tí- undi áratugurinn, óhamingjusama goth-stelpan fullorðnaðist og varð skyndilega fánaberi X-kynslóðarinn- ar í Reality Bites, hún leiddi okkur á milli tveggja áratuga en missti svo jafnvægið á 21. öldinni og hvarf nán- ast alveg þangað til núna, þegar hún leiðir okkur til baka til okkar sameig- inlegu fortíðar. Winona Ryder var alin upp í kommúnu og það kristallar dálítið spennuna sem var í loftinu, börn blómabarna voru sum í materíalískri uppreisn gegn kynslóð hippaforeldr- anna en önnur reyndu að verja arf- leifð þeirra. Þessi togstreita sést vel í fyrstu Back to the Future myndinni. Þar er farið aftur í tímann til ársins 1955. Þá var sjötti áratugurinn nefni- lega tíminn sem menn leituðu í til að finna horfið sakleysi, rétt eins og sá níundi er núna. Á milli voru hins vegar öllu róttækari tímar – og þegar Marty McFly tekur lag fyrir fiftís unglingana sem þau eru ekki alveg tilbúin fyrir þá svarar hann þögninni með orðunum: „Your kids will love it.“ Þannig lýsir senan bæði nostalgíu eftir saklausari Ameríku sem og nostalgíu eftir róttækari Am- eríku sem var handan við hornið – fortíðarþráin er ekki alltaf rökrétt, kynslóðir rekast á og skarast og við getum þráð jöfnum höndum sak- leysi bernskunnar og uppreisnar- girni unglingsáranna. Eins er ekki ólíklegt að á meðan við förum aft- ur til Reagans til að átta okkur á því hvernig Trump gæti komist til valda hafi samtímamenn Reagans leitað aftur til Eisenhower-tímans að sam- bærilegum svörum. Listin sem tímavél Sagnalistin er þannig notuð sem tímavél, vél til að leiðrétta bæði gallaðan nútíma og gallaða fortíð, um leið og hún endurskapar þessa tíma. Endalaust framboð af sögu- legum skáldskap í ýmsum myndum skilgreina fortíðina fyrir okkur – og jafnvel samtímaheimildir eru ekk- ert endilega öruggar, við vitum ekki endilega hvort höfundar reyndu að skrifa talmál eða hversu nákvæm- lega þeir reyndu að endurskapa raunveruleikann. Vandinn við sam- tímaheimildirnar er að oft höfum við engan til að túlka þær sem var á staðnum – og ef þeir eru til staðar er minnið oft gloppótt. Ég man til dæmis svo illa eftir níunda áratugn- um að ég þarf sjónvarpsþætti til að hjálpa mér að muna. Og þegar við reynum að greina af- urðir draumaverksmiðjunnar þá rek- um við okkur oft á hve Hollywood er skitsófrenísk; hún er hluti af kerf- inu en þarf að þóknast fólkinu og selja þeim draumana þeirra. Hún er því alltaf að spila á mörkum þess að halda með byltingarsinnunum eða óbreyttu ástandi – jafnvel inn- an sömu bíómyndar, jafnvel innan sömu senu. Sú sagnalist sem Hollywood sér- hæfir sig í er oft kallaður escapism á ensku – leið til að flýja raunveruleik- ann – og þegar tímaflóttinn bætist við þá sjáum við að það er hægt að flýja endalaust. Í Midnight in Paris flýr fortíðardýrkandinn Owen Wil- son tæpa öld aftur í tímann, til þess eins að verða ástfanginn af öðrum fortíðarfíkli. En hún þráir nítjándu öldina – sem var hins vegar full langt seilst fyrir sjúkdómshræddan nú- tímamann. Þannig vitum við að ef við förum nógu langt aftur þá end- um við sem einfrumungar á óbyggi- legri plánetu – en óttumst um leið að mögulega sé það ástand miklu nær í framtíðinni heldur en í fortíðinni. Kannski er sá handanheimur nær en okkur grunar, tilbúinn til þess að gleypa okkur á hverri stundu. 30 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 19. ágúst 2016 -menningu í þáttunum, eins og vikið er að hér til hliðar. En þótt eitís-kúltúrinn sé alltumlykjandi þá minna þættirnir ekki síður á ný- legri verk á borð við Donnie Darko, Midnight Special, Super 8 og sjón- varpsþættina Freaks and Geeks, enda sækja þær í sömu smiðju. Donnie Darko gerist þegar níunda áratugnum er að ljúka og heimurinn er á heljarþröm, mögulega þó bara í hugarheimi Donnie – en athugum þó að Bandaríkin eru um það bil að kjósa Bush hinn fyrri til valda og fyrsta Íraksstríðið er skammt und- an. Rétt eins og í Stranger Things þá setur hugvitsamleg endurvinnsla á tónlist níunda áratugarins tón- inn, með blöndu af rímixum (Peter Gabriel með ábreiðu af Bowie-laginu Heroes til dæmis) og neðanjarðar- tónlist áratugarins. Midnight Special gerist vissulega í óljósum nútíma, en öll frásagnar- aðferðin og þemun eru beint frá ní- unda áratugnum; við sjáum pabba sem reynir að flýja með ungan son sinn, son sem hefur illskiljanlega of- urkrafta og er því hundeltur af NASA og öðrum skuggalegum leyniþjón- ustum. Strákurinn er skuggalega lík- ur Eleven, þótt föruneyti hans sé allt öðruvísi samsett. Öll þessi verk eru frá þessari öld – en þau deila eitís nostalgíunni með Stranger Things. Þetta er tíminn sem okkur dreymir um að hverfa aftur til. En hinkrum þó aðeins – persónurnar vilja líka flýja. Flýja þennan fábreytta níunda áratug, flýja heim bernskunnar, flýja tíðar- anda sem þeim finnst ómerkilegur, flýja í hlutverkaleiki og hliðarheima ímyndunaraflsins, flýja illmennin og fullorðna fólkið sem ekkert skilur. Kommúnistaeitís Forsjáin olli því svo að mitt í Stranger Things glápi mínu skrapp ég á mynd í bíó sem sömuleiðis gerðist árið 1983. Myndin heitir Kennslukonan (Ucitelka) og fjallar um ófyrirleitna kennslukonu í barnaskóla í úthverfi Bratislava í þáverandi Tékkóslóvak- íu. Hún lætur það vera sitt fyrsta verk að komast að því hvað foreldr- ar barnanna gera – og þær upplýs- ingar notar hún svo til þess að biðja foreldrana um alls kyns viðvik. Fljót- lega verður flestum ljóst að einkunn- ir barnanna ráðast frekar af því hversu greiðvirknir foreldrar þeirra eru heldur en námsgetu. Og þar sem kennslukonan er líka formaður hverfisráðs kommúnistaflokksins er hún í raun mögulega valdameiri en sjálfir skólastjórnendurnir. Þetta er heldur grámóskulegri út- gáfa af 1983 – og ég veit ekki alveg hvað það merkir að mér finnst það minna meira á hið raunveruleika íslenska eitís eins og ég man það heldur en ameríska eitísið. Ísland þessa tíma var auðvitað bullandi haftasamfélag og einangrað á sinn hátt, rétt eins og kommúnistarík- in. En svo er líka spurning hvað sé raunveruleiki og hvað sé bíóraun- veruleiki. Möguleg kenning er að eftir ritskoðun kommúnismans hafi leikstjórar kommúnistaríkjanna fyrrverandi tekið fagnandi hverju tækifæri til þess að birta óritskoð- aða, raunsanna mynd af árunum fyrir byltingu, á meðan amerískir leikstjórar eru sáttir við að endur- vinna 30 ára gamla drauma. Önnur kenning gæti svo verið sú að þetta sé endurlit til þess tíma þegar ennþá sást virkilegur munur á Ameríku og Evrópu, þegar Tékkar og Slóvakar þurftu ennþá að drekka kóklíkið Kofola af því Coca Cola fannst hvergi í búðum og Íslendingar þurftu að fara til útlanda til að drekka bjór. Áhrifavaldar: Alien & Predator Skrímslið er ná- skylt ófreskjunum sem Stan Winston skóp fyrir Alien og Predator-myndirnar – og undir lokin eru ýmsar vísbendingar um að í næstu seríu gæti eitt stykki skrímsli komið út úr maga einnar aðalpersónunnar. Close Encounters of the Third Kind Þar sem blikkandi ljós eru notuð til að eiga samskipti við aðra heima og heimilisfaðirinn virðist hægt og ró- lega missa vitið – en er bara að upp- götva alvöru geimverur. The Empire Strikes Back Aðalpersónurnar tala aldrei um mögulega svikara, þess í stað tala þeir um að einhver sé mögulega Lando, og vísa þar í Lando Calrissian, sem svíkur Han Solo í annarri Star Wars myndinni – en bjargar honum svo í þeirri þriðju. John Carpenter Mínimalísk synþatónlistin gæti verið beint úr smiðju Carpenters, sem sem- ur líka oft tónlistina fyrir myndirnar sínar, og The Thing er í sjónvarp- inu í einu atriði myndarinnar. Þá er margt með líkt með þáttunum og The Fog, þar sem íbúar í smábæ læra að standa saman gegn dularfullum óvættum. A Nightmare on Elm Street Skrímslið í Stranger Things gómar ekki ungmennin þegar þau eru sofandi, en notar samt um margt svipaða tækni og gómar þau þegar þau eru einmana og ber- skjölduð – og birtist fyrst sem bunga í vegg. Þá heitir meira að segja einn þátturinn „The Weirdo On Maple Street.“ Poltergeist Will og mamma hans, Joyce, horfa á Poltergeist skömmu áður en Will hverfur – og ýmislegt úr myndinni endurtekur sig svo, raddir fara að heyrast úr veggjum hússins hennar eftir að sonur hennar týnist og ung stúlka reynist vera sjáandi. Silkwood Silkwood er einmitt frá árinu 1983 og Winona Ryder bað einfaldlega um sömu hárgreiðslu og Meryl Streep er með í myndinni til þess að passa í 1983 tískuna. Svo var Karen Silkwood sömuleiðis kona sem engin trúði þegar hún fullyrti að það væri ýmis- legt vafasamt í gangi í kjarnorkuver- inu sem hún vann hjá. Donnie Darko. Bandaríkin eru um það bil að kjósa Bush eldri til valda og fyrsta Íraksstríðið er skammt undan – og þessi risakanína er mögulega að fara að valda heimsendi. Tvífarar. Er Donald Trump mögulega Biff úr Back to the Future? Hægt er að fá allar upplýsingar um æfingar yngri flokka á heimasíðu félagsins undir liðnum „Barnastarf“ www.haukar.is/aefingatoflur
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.