Fréttatíminn - 19.08.2016, Qupperneq 34
34 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 19. ágúst 2016
GOTT
UM
HELGINA
„It’s a done deal,
Daniel!“
Í kvöld má búast
við miklu stuði
á skemmtistaðn
um Tivoli þar sem
plötusnúðurinn Done
deal Daniel mun þeyta skífum
fram á rauða nótt. Búast má við
miklu gamni kvöldið fyrir Menn
ingarnótt okkar Íslendinga.
Hvar? Tivoli skemmtistað
Hvenær? Kl. 22
Shakespeare í Paradís
Í kvöld er komið að viðburði sem margir hafa beðið lengi eftir. Bíó
Paradís mun sýna myndina 10 Things I Hate About You en um er að
ræða eina rómuðustu unglingagamanmynd allra tíma. Söguþráðurinn
tekinn upp úr leikriti Shakespeare sjálfs; Skassið tamið. Íðilfögur og vin
sæl tánings stúlka getur ekki farið á stefnumót fyrr en að geðvond systir
hennar fer út á stefnumót. Myndin skartar þeim Heath Ledger og Juliu
Stiles í aðalhlutverkum. Um klassík ræðir sem allir ættu að sjá — þó það
sé í annað, þriðja eða fjórða skiptið.
Hvar? Bíó Paradís
Hvenær? Í kvöld kl. 20
Hvað kostar? 1600 kr.
Rafntónlistarsmiðjan
á Akureyri
Haraldur Örn Haraldsson er ung
ur og upprennandi tónlistarmað
ur sem mun vera með raftón
listarsmiðju í dag þar sem hann
kennir byrjendum á hljóðvinnslu
forrit. Annað kvöld verða síðan
tónleikar þar sem ungir raftónlist
armenn á Akureyri stíga á stokk.
Hvar? Sal Myndlistarfélagsins í
Listagilinu, Akureyri
Hvenær? Í dag kl. 17-19.
Afmæli tuttugu ára
sólar
Hljómsveitin Á móti sól er tuttugu
ára um þessar mundir og því er
ekki ráð nema í tíma sé tekið að
staldra við og líta um öxl. Jafnvel
axlir. Ljúflingarnir Heimir, Þórir,
Stebbi, Sævar og Magni ætla að
leika nokkur af sínum þekktari
lögum og segja spennandi sög
ur tengdar söngvunum á Græna
hattinum.
Hvar? Græna hattinum, Akureyri
Hvenær? Kl. 22
Hvað kostar? 3000 kr.
Ceasetone stimplar
sig inn
Hin unga og upprennandi hljóm
sveit Ceasetone gaf út sína fyrstu
plötu er nefnist Two Strangers í
sumar en nú er komið að útgáfu
tónleikum sveitarinnar. Á tón
leikunum verður öllu tjaldað til
og bætir hljómsveitin við sig kór,
strengjasveit og ásláttarhljóð
færum til að fanga hljóðheim
Two Strangers.
Hvar? Tjarnarbíó
Hvenær? Í kvöld klukkan 21
Hvað kostar? 2900 krónur
Sveitt stemning
á Prikinu
Hljómsveitin Foxtrain Safari spilar
á Prikinu í kvöld og heldur uppi
fjörinu þangað til plötusnúður
inn Gunni Ewok mætir til leiks
svo allir munu dansa og syngja
uns þakið rifnar af húsinu. Allir
á Prikið. Þar verður fjörið í kvöld.
Hvar? Prikinu
Hvenær? Kl. 22
Lazaretto
Hljóðlistahópurinn Innra eyrað
býður upp á hljóðgöngu um
Farsóttarhúsið svokallaða við
Þingholtsstræti. Einn gestur
í einu gengur um húsið með
heyrnartól og hljóðin streyma inn
í hlustirnar.
Hvar? Farsóttarhúsinu, Þingholts-
stræti
Hvenær? 24. ágúst kl. 13
Hvað kostar? 2500 kr.
Everybody is
Spectacular
Frá miðvikudeginum næstkom
andi til sunnudags fer fram svið
listahátíðin Everybody is Spect-
acular. Búast má við aragrúa
áhugaverðra sýninga og eru þessar
þeirra á meðal:
Peaches Christ Superstar
Kanadíska elektrópönk drottn
ingin Peaches flytur söngleikinn
Jesus Christ Superstar á stóra sviði
Borgarleikhússins. Með henni
á sviði verður píanóleikari en
Peaches er einn mest ögrandi lista
maður samtímans og hefur gert
óheflaða sviðsframkomu að aðals
merki sínu.
Hvar? Borgarleikhúsinu
Hvenær? 24. ágúst kl. 21
Hvað kostar? 6500 kr.
Stripp
„Í gær fór ég í einkaherbergið.
Hans borgaði mér 1000 evrur og
ég gerði eiginlega ekki neitt. Við
settumst í nuddpottinn og töluð
um um kapítalisma, sem hann
elskar. Ég sagði honum að ég hefði
ekki kynmök við viðskiptavinina
og hann sagði að það væri allt í
lagi. Hann langaði bara að „fühle
mich“.“ – Dagbók Olgu Sonju, 5.
september 2013.
Hvar? Tjarnarbíó
Hvenær? 24. ágúst kl. 19
Hvað kostar? 3900 kr.
Reykjavíkur Apótek býður upp á allar
tegundir lyfja. Mikið og
fjölbreytt úrval af heilsulyfjum,
bað- og ilmvörum, gjafavörum
auk ýmissa annarra góðra kosta.
Reykjavíkur Apótek er
sjálfstætt starfandi apótek sem
leggur áherslu á persónulega
þjónustu og hagstætt verð.
Apótekið þitt
í gamla Héðinshúsinu við Seljaveg 2
Afgreiðslutími:
9-18:30 virka daga
10-16:00 laugardaga
Öryrkjar og eldri borgarar njóta sérkjara hjá okkur
Seljavegur 2 | Sími: 511-3340 | Fax: 511-3341 | www.reyap.is | reyap@reyap.is