Fréttatíminn - 19.08.2016, Qupperneq 48
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrunlilja@amk.is
Þetta er í fyrsta sinn sem ég sýni verk eftir sjálfa mig en að mestu leyti hef ég verið að vinna við „portrait“ og
„commercial“ ljósmyndun, taka
myndir fyrir tískubæklinga og
tískuþætti. Svo hef ég líka svolítið
verið að vinna með listamönnum,
þar á meðal Ragnari Kjartanssyni,
Hrafnhildi Árnadóttir og Kristínu
Önnu,“ segir Elísabet Davíðsdótt-
ir, ljósmyndari og fyrrverandi of-
urfyrirsæta, sem opnar í dag, föstu-
dag, sína fyrstu ljósmyndasýningu í
gallerí Mengi á Óðinsgötu. Sýningin
nefnist SURFACE.
Fékk spark í rassinn
Ljósmyndun hefur verið hennar
aðalstarf síðastliðin sex ár, en hún
hefur ekki gefið sér tíma til að setja
upp sýningu fyrr en nú. Reyndar
hefði hún örugglega aldrei farið út
í þetta verkefni nema af því hún
fékk smá spark í rassinn frá fram-
leiðanda sýningarinnar, Ragnheiði
Pálsdóttur.
Elísabet hefur verið með heim-
ili í New York í 17 ár og fékk Græna
kortið fyrir nokkrum árum. Hún
er í sambúð með manni sem rekur
gallerí þar í borg og saman eiga þau
15 mánaða gamlan son, en fyrir á
Elísabet son sem er 11 ára. Hún tal-
ar samt ennþá um Ísland sem heima
og býst ekki við því að það breytist.
Fann ró í götumerkingum
„Ég hef alltaf reynt að fara heim
tvisvar til þrisvar á ári en undan-
farin tvö ár ég hef ég bara kom-
ist heim einu sinni á ári. En alltaf
þegar ég kem heim finn ég hvað það
er gott að fara út á land og ná jarð-
tengingu. En verkefnið spratt út frá
því að finna þessa ró í New York,“
útskýrir hún.
Ég hef alltaf verið mjög upptekin
af áferð og formum, bæði í íslenskri
náttúru og víðar. Götumerkingarn-
ar í New York vöktu þess vegna
athygli mína. Þegar maður fer að
skoða þetta nánar þá getur mað-
ur alveg gleymt sér, segir Elísabet.
„Ég er með 15 mánaða gamalt barn
þannig þetta hefur verið minn tími
– að fara út að mynda,“ bætir hún
við og brosir. En afraksturinn kem-
ur nú fyrir sjónir almennings.
Í lýsingu á verkum sýningar-
innar segir meðal annars: „Á sýn-
ingunni SURFACE eru einstök at-
riði götumerkinga einangruð sem
leiðir fram nýjar myndbyggingar,
óþekkjanlegar frá upprunalegum
tilgangi sínum. Teknar af jörðinni
og lyft í augnsýn, stöndum við eftir
með hugleiðingu um það sem við
lítum oftast framhjá, jafnvel þegar
við stöndum á orðinu STOP.“
Elísabet tók ársnám í ljósmyndun
í ICP og námskeið hjá Mary Ellen
Mark. Hún býr yfir mikilli reynslu
og þekkingu á tískubransanum
frá því hún var sjálf fyrir framan
myndavélarnar, sem hefur nýst
henni mjög vel.
Ætlaði að verða læknir
Fyrirsætuferill Elísabetar hófst árið
1994, þegar hún sigraði í Ford fyr-
irsætukeppninni hér á landi. Hún
var þá 18 ára og í raun fór hún ekki
á fullt fyrr en hún var um tvítugt.
„Í dag þykir þetta gamalt. Ég byrj-
aði mjög seint. Ég ætlaði bara að
taka mér spá pásu frá námi þegar
ég kláraði menntaskólann, fara út í
ár og koma svo aftur heim.“
Elísabet hafði hug á því að fara í
læknisfræði áður en örlögin gripu í
taumana og stýrðu henni inn á allt
aðra braut. Hún sér alls ekki eftir
þeirri U-beygju. „Það fór að ganga
svo vel hjá mér og þá var erfitt að
stoppa. En það tók smá tíma að síast
inn. Það var sama uppi á teningn-
um þegar ég byrjaði að mynda. Ég
Skemmtilegra fyrir aftan myndavélina
Elísabet Davíðs, fyrrverandi ofurfyrirsæta, heldur sína fyrstu ljósmyndasýningu. Hún prýddi forsíður allra helstu tísku
tímarita í heiminum á fyrirsætuferlinum, en er nú komin hinumegin við myndavélina.
var að taka myndir og reyna að vera
fyrirsæta líka en að lokum varð ég
að velja. Taka ákvörðun um hvað
ég ætlaði að gera. En þá var líka
kannski kominn tími til að koma sér
út úr fyrirsætubransanum,“ segir
Elísabet, en það var einmitt brans-
inn sem kveikti áhuga hennar á ljós-
myndun. „Ég hefði sennilega aldrei
farið ljósmyndaleiðina ef ég hefði
ekki verið fyrirsæta. Mér finnst
ljósmyndunin eiga vel við mig. Mér
hefur alltaf fundist skemmtilegra
fyrir aftan vélina heldur en fyrir
framan hana. Og hafði alltaf mik-
inn áhuga á því sem var að gerast
bak við tjöldin.“
Á forsíðu franska Vogue
Elísabet starfaði sem fyrirsæta
víða um heim og prýddi forsíð-
ur margra stærstu tískablaðanna,
meðal annars franska Vogue. „Ég er
mjög sátt við það sem ég er búin að
gera, en ég veit ekki hvort ég myndi
þrauka í dag. Það eru allt aðrir tím-
ar. Instagram og þessir samfélags-
miðlar skipta svo miklu máli. Mað-
ur þarf að vera mjög duglegur að
koma sér sjálfur á framfæri. Þegar
ég var í þessu þá sá skrifstofan að
miklu leyti um að stýra ferlinum
mínum,“ segir Elísabet og á þar við
Ford skrifstofuna í New York. „Ég
skipti reyndar eitthvað um stofur,
en ég var alltaf með góðan umboðs-
mann.“
Þá segir Elísabet að tilkoma staf-
rænu myndavélanna hafa breytt
miklu. Þegar hún var að hefja sinn
feril þá var enn notast við filmur að
miklu leyti og þar af leiðandi fór
meiri tími í hvert verkefni. „Maður
var að fara í lengri ferðir. Í staðinn
fyrir að vera í einn dag í tökum þá
voru þetta kannski fjórir dagar. Þá
fékk maður meira tækifæri til þess
að upplifa að vera á staðnum. Yfir
vetrartímann var oft farið á eyj-
ar í Karíbahafinu og jafnvel alveg
yfir höttinn. Það var meira fjár-
magn sett í tökur en í dag. Það er
miklu meiri hraði núna og stelpur í
bransanum verða alveg örmagna á
skömmum tíma. Það eru örfáar sem
þrauka lengi.“
Ljósmyndarastarfið erfiðara
Þó Elísabet hafi fengið að ferðast
mikið og sjá heiminn þá var fyr-
irsætulífið alls ekki dans á rós-
um. „Þetta var oft erfitt andlega,
sérstaklega á hátindinum. Ég var
kannski að vinna allan daginn í New
York, fór svo í flug og vaknaði í Par-
ís þar sem ég þurfti að vinna allan
daginn. Ég var alltaf annað hvort
sofandi í flugi, eða að vinna. Ég var
því svolítið útkeyrð á tímabili.“
Svo fylgdi það vissulega starfinu
að missa af stórviðburðum inn-
an fjölskyldunnar, sem og missa
tengslin við vini. „Alltaf ef ég gerði
einhver plön þá kom upp verkefni.
Það var nánast undantekningalaust
þannig. Ég var alltaf að bíða og til-
búin að stökkva í verkefni.“
Elísabet segir ljósmyndastarfið þó
að mörgu leyti erfiðara en fyrirsæt-
ustarfið, enda þarf ljósmyndarinn
bæði að undirbúa tökuna og vinna
myndirnar þegar henni er lokið, á
meðan fyrirsætan mætir á staðinn
og er svo laus allra mála.
Aðspurð hvaða verkefni standi
upp úr frá fyrirsætuferlinum seg-
ir hún það að prýða forsíðu Vogue,
vissulega hafa verið mjög stórt.
„Þá urðu ákveðin tímamót á mín-
um ferli. Ég fór úr því að vera bara
einhver fyrirsæta yfir í að vera til-
tölulega þekkt. Svo voru líka ljós-
myndarar sem maður lítur upp til
og er gaman að hafa unnið með.
Svo voru það alls ekki alltaf mest
spennandi verkefnin sem voru
skemmtilegust, og öfugt.“
Nafnið ekki í fersku minni fólks
Verkefnin sem Elísabet hefur fengist
við sem ljósmyndari eru heldur ekki
af verri endanum, en hún hefur
meðal annars verið að mynda fyrir
L’uomo Vogue , Another Magazine
og New York Times.
Hún segir það ekkert hafa hjálp-
að sér á ljósmyndaferlinum að hafa
einu sinni verið ofurfyrirsæta, enda
sé langt um liðið og nafnið henn-
ar því ekki í fersku minni fólks. En
það kemur stundum fyrir að hún
hittir fólk sem hún starfaði með
sem fyrirsæta. „Ef ég hefði ver-
ið byrjuð meira að mynda þegar
ég starfaði sem fyrirsæta þá hefði
það kannski hjálpað. Það er svo
mikill hraði í þessum bransa. Nú
er stelpa kannski „The It girl“ eitt
„season“ og svo kemur ný. Það er
líka ódýrara fyrir viðskiptavinina
að skipta út,“ útskýrir hún. Hann er
harður bransinn.
Elísabet er mjög sátt við sinn nýja
feril og hana hefur ekki skort verk-
efni og sér ljósmyndunina fyrir sér
sem framtíðarstarf. Fram að þessu
hefur hún sjálf séð um að bóka ver-
kefni en hún segir alveg að fara að
koma tími á umboðsmann. „Ljós-
myndarar vilja gjarnan finna sig
aðeins áður en þeir fá sér umboðs-
mann og ég held að ég sé komin á
þann stað.“
Fyrsta ljósmyndasýningin Elísabet hefur ekki gefið sér tíma til að halda halda ljósmyndasýningu fyrr en nú, þrátt fyrir að eiga heilmikið af efni.
Köllunarklettsvegi 1, 104 Reykjavík • Sími: 531 3300 • ritstjorn@amk.is
Útgefandi: Gunnar Smári Egilsson. Blaðamenn: Guðrún Veiga Guðmundsdóttir, gudrunveiga@amk.is; Kidda Svarfdal, kidda@amk.is og Sólrún Lilja Ragnarsdóttir,
solrunlilja@amk.is. Framkvæmdastjóri og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson. amk… er gefið út af Morgundegi ehf. og er prentað í 83.000 eintökum í Landsprenti.
…viðtal 4 | amk… FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 2016
Þetta var oft erfitt andlega,
sérstaklega á hátindinum. Ég
var kannski að vinna allan daginn í
New York, fór svo í flug og vaknaði í
París þar sem ég þurfti að vinna allan
daginn. Ég var alltaf annað hvort sof-
andi í flugi, eða að vinna. Ég var því
svolítið útkeyrð á tímabili.
majubud.is