Fréttatíminn

Útgáva

Fréttatíminn - 19.08.2016, Síða 57

Fréttatíminn - 19.08.2016, Síða 57
Ég hef verið sófakartafla – eða sjónvarpssjúklingur – frá því ég var krakki. Þá horfði ég á allt, Santa Bar- bara, Falcon Crest, Hunter, Murder She Wrote og Golden Girls – sama hvað það var. Ég hef því mjög breiðan smekk á sjónvarpsefni, nema hvað ég get ekki þolað raunveruleikasjónvarp – það er nær allt drasl. Ég hef sér- stakt dálæti á velþekktu gæðaefni eins og The Wire, House of Cards, Sopranos og Mad Men, en einnig því sem sumir kalla lágmenningu eins og Vampírubananum Buffy og Angel. Verð síðan að viðurkenna að ég á Breaking Bad alveg eftir. Síðasta árið höfum við hjónin horft saman á Modern Family, tekið maraþonáhorf á Game of Thrones og nú allra síðast spænt í okkur nýj- ustu syrpuna af Vikings. Það eru vel heppnaðir víkingaþættir. Sérstak- lega er gaman að hlusta á breska og bandaríska leikara reyna að koma óbrenglað út úr sér heilu setningun- um á íslensku. Þegar ég er einn við tækið fer ég yfir í Agents of SHIELD, Daredevil eða Mr. Robot. Nýlega kláraði ég fyrstu syrpuna af Billions og bíð spenntur eftir þeirri næstu. Næst á dagskrá er að byrja á Sons of Anarchy. Svo þarf ég að fara að halda áfram með Justified, Parks and Recreation og nýju syrpuna af Silicon Valley sem eru frábærir. Fyrstu syrpuna kláraði ég á mettíma og hef sjaldan hlegið jafn mikið. Af væntanlegum þáttum næsta vetrar bíð helst eftir spennuþáttun- um Designated Survivor með Kiefer Sutherland og þriðju syrpu af hinum frábæru Fargo sem kemur einhvern tímann á fyrrihluta næsta árs. Sófakartaflan Guðjón Helgason, samskiptastjóri ÖBÍ Get ekki þolað raunveruleikasjónvarp Úrslitin ráðast í kvennaboltanum RÚV 2 klukkan 20.20 Úrslitaleikur í kvennaboltanum Úrslitaleikurinn í knattspyrnu kvenna á ólympíuleikunum. Þar mætast Brasilía/Svíþjóð – Þýska- land/Kanada. Ein sígild frá Coen- -bræðrum Netflix No Country for Old Men Enn ein snilldin frá Coen-bræðr- unum Ethan og Joel. Veiðimað- ur finnur tvær milljónir dollara í reiðufé, dóp og fullt af líkum ná- lægt Rio Grande. Hann freistast til að taka peningana og er í kjöl- farið hundeltur af Anton Chigurh, leigumorðingja sem var ráðinn til að ná í peningana. Aðalhlutverk leika Javier Bardem, Tommy Lee Jones og Josh Brolin. Líf hins áhyggju- lausa piparsveins RÚV klukkan 20 Saga af strák Þetta er fyrsti þátturinn í annarri þáttaröð About a Boy um áhyggjulausa piparsveininn Will Freeman. Þættirnir eru byggðir á frægri bók Nick Hornby, rétt eins og samnefnd mynd með Hugh Gr- ant í aðalhlutverki. Aðalhlutverk: Minnie Driver, David Walton og Benjamin Stockham. Sjónvarpssjúklingur Guðjón Helgason horfði á allt sem hann komst í þegar hann var krakki og hefur verið sófakartafla æ síðan. Mynd | Hari Fullkomnaðu augnablikið með ljúffengri sælkeraköku. – Láttu það eftir þér! H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA - 1 6- 04 29 Lát mig ganga í sannleika þínum og kenn mér því að þú ert Guð hjálpræðis míns... www.versdagsins.is …sjónvarp13 | amk… FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 2016

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.