Fréttatíminn

Eksemplar

Fréttatíminn - 19.08.2016, Side 60

Fréttatíminn - 19.08.2016, Side 60
„Ég hélt að ég væri farinn. Ég fylltist örvæntingu og lungun mín voru að fyllast af vatni. Þegar ég komst aftur upp á yfirborðið, eftir að hafa spark- að af mér skónum, svimaði mig og ég fékk hausverk,“ segir matreiðslu- meistarinn Gordon Ramsay. Ramsay rifjaði í vikunni upp Íslandsheimsókn sína fyrir átta árum þegar hann dó næstum því við lundaveiðar í Vestmannaeyj- um. Hann hrasaði þegar hann var að klifra í klett um og datt í sjó inn og hélt að hann myndi ekki lifa af. Ramsay lifði þessa raun af og tókst á endanum að veiða lunda og éta hjarta úr einum þeirra. „Ég trúi ekki að þú hafir látið mig éta þetta,“ sagði hann við leiðsögumann sinn. alla föstudaga og laugardaga Hann reyndi að brjóta sér leið inn í húsið á ýmsan hátt og einu sinni komst hann inn. Sema Erla Serdar í viðtali í amk á morgun Þegar Gordon Ramsay lenti í lífshættu á Íslandi Datt í sjóinn við lundaveiðar. Urban Decay til  Íslands Snyrtivörumerkið Urban Decay er væntanlegt til Íslands í nóvember og að því tilefni var nokkrum íslenskum lífsstíls- og förðunarbloggurum, eða sam- félagsmiðladrottningum öllu heldur, boðið í partí í Danmörku í vikunni á vegum merkisins. Þórunn Ívars dóttir var ein þeirra. Leyfði hún fylgjendum sínum á snapchat að fylgjast vel með öllu sem fram fór, en að sjálfsögðu var mikið um dýrðir í partíinu. Sam félagsmiðladrottningarnar fóru svo ekki tómhentar heim og hafði Þórunn orð á því að hún hefði varla komið öllum snyrti- vörunum í töskuna sína. Áhugafólk um förðun og snyrtivörur getur heldur betur farið að hlakka til góðrar við- bótar við snyrtivöruflóruna hér landi, en Urban Decay vörurnar eru þekktar fyrir að vera litríkar og skemmtilegar. Ligeglad-skaup í ár Nú þegar fer að hausta hefst undirbúningur Áramótaskaups Ríkissjónvarpsins fyrir alvöru. Ekki vantar efniviðinn enda einkar líflegir mánuðir að baki og hópurinn sem skrifar skaupið verður því nokkuð öfundsverður. Ekkert hefur verið gert opinbert um handritshöfundana en samkvæmt heimildum amk... verður hópurinn sem gerði hina vinsælu sjónvarpsþætti Ligeglad í brúnni. Það þýðir að við fáum að sjá nóg af Önnu Svövu Knúts- dóttur og Vigni Rafn Valþórssyni. Og vonandi Helga Björns líka. Kveðja frá Gústafi Níelssyni Útvarpsmaður- inn Frosti Logason eignaðist í vikunni son með unnustu sinni, Helgu Gabríelu Sigurðardóttur, og hefur drengurinn fengið nafnið Logi. Frosti svífur um á bleiku skýi og er einkar duglegur að birta myndir af frumburðunum á samfélagsmiðlum, þar sem margir samgleðjast, en yfir 2300 manns hafa sett „læk“ á fyrstu myndina af Loga litla. Gústaf Níelsson er einn þeirra sem hefur óskað Frosta til hamingju með soninn en í kveðju sinni til fjölskyldunnar sagðist Gústaf meðal annars fagna því að ungt fólk skyldi nenna að eignast börn. Í lífshættu Gordon Ramsay féll í sjóinn við Vestmannaeyjar og hélt að hann myndi deyja. Sérlega áhrifaríkt 12 vikna námskeið fyrir þær sem vilja losna við aukakílóin fyrir fullt og allt. 12 vikna námskeið fyrir konur Heilsuáskorun Heiða Björk Gunnarsdóttir losaði sig við 40kg á 12 mánuðum. Álfheimar 74 - 104 Reykjavík - S: 414-4000 - www.hreyfing.is Sérlega áhrifaríkt námskeið fyrir þær sem vilja losna við aukakílóin fyrir fullt og allt. Á námskeiðinu er mikil áhersla á stuðning, fræðslu og aðhald. Þú lærir að tileinka þér varanlega lífsstíl sem bætir heilsu þína, líðan og útlit svo um munar. Þú setur þér skýr markmið sem þú vinnur markvisst að. Nánari upplýsingar og skráning á www.hreyfing.is Heiða áður en hún tók málin föstum tökum

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.