Fréttatíminn - 19.08.2016, Qupperneq 71
Unnið í samstarfi við Hauka
Við leggjum mikla áherslu á starfið hjá yngri flokk-unum. Haukar er stórt félag sem býður upp á
mikla möguleika fyrir alla,“ segir
Ívar Ásgrímsson, íþróttastjóri hjá
íþróttafélaginu Haukum.
Nú er vetrarstarfið að fara að
hefjast í Haukum. Í næstu viku
verða allar æfingatöflur klárar og
munu þær þá verða aðgengilegar
á heimasíðu félagsins.
„Við höfum reyndar verið
með heilsársstarf í öllum okk-
ar stærstu deildum. Krakkarnir
í fótboltanum æfa hér úti alveg
sama hvernig veðrið er. Það er
gríðarleg elja í þessum krökk-
um og oft ótrúlegt að horfa á þá.
Handboltinn og körfuboltinn hafa
svo boðið upp á æfingar hjá yngri
flokkum allt sumarið. Við höfum
lagt mikinn metnað í að bjóða upp
á góða þjálfara allt árið um kring
fyrir iðkendur í öllum deildum,“
segir Ívar. „Að þessu heilsárs-
starfi hafa komið ég sjálfur og svo
íþróttastjórar handboltans, Gunn-
ar Magnússon og íþróttastjórar
fótboltans, þau Luka Kostic og
Bryndís Sigurðardóttir.“
Starfið hjá Haukum nær líka
niður til allra yngstu krakkanna
með leikjaskólanum sem starf-
ræktur er á laugardagsmorgn-
um yfir vetrartímann. Leikjaskóli
barnanna er fyrir 2-5 ára börn og
markmið hans er að þau kynn-
ist íþróttasalnum og áhöldum
þar inni. Þá er farið í grunn hinna
ýmsu greina ásamt grunnhreyf-
ingum barna. Forráðamenn barn-
anna eru með þeim allan tímann til
halds og trausts.
„Þetta hefur notið mikilla vin-
sælda og við erum alla jafna með
um 60-70 krakka hér á laugar-
dagsmorgnum,“ segir Ívar. Að auki
bjóðum við upp á sumaríþrótta-
skóla fyrir krakka á aldrinum
6-12 ára þar sem við erum með
fótbolta, handbolta, körfubolta og
fjölþrautarnámskeið.“
Félagið byrjaði líka á því metn-
aðarfulla verkefni að vera með
frístundaheimili á veturna fyrir
yngstu krakkana sem eru í grunn-
skólum Hafnarfjarðar. „Þarna
erum við að reyna að tengja
saman skólann og íþróttir og
erum að reyna að spara foreldr-
um þetta eilífa skutl á milli staða. Í
vetur eru mun fleiri sem hafa sótt
um en við getum tekið inn og von-
um við að með nýju íþróttahúsi
getum við tekið inn fleiri krakka
á næstu árum. Ljóst er að þetta
verkefni hefur fallið vel í kramið
hjá foreldrum grunnskólakrakka
sem vilja tengja betur skólann við
íþróttastarfið.“
„Stærstu deildirnar eru
knattspyrnudeildin, handbolt-
inn og körfuboltinn. Svo erum við
með skákdeild, karatedeild, rug-
by-deild og mjög öfluga almenn-
ingsdeild þar sem er starfrækt-
ur öflugur hlaupahópur sem er
t.d. að taka þátt í Reykjavíkur-
maraþoni á laugardaginn og svo
nýstofnaða blakdeild. Blakliðið
keppir í fyrsta skipti á Íslands-
mótinu í vetur en það er ekki enn
búið að koma á fót yngri flokkum
hjá blakdeildinni þar sem ekki fást
æfingatímar fyrir það hjá okkur.“
Hafnarfjörður er stórt bæjarfélag.
Hvað eru margir krakkar að æfa
hjá ykkur?
„Í heildina eru þetta eitthvað í
kringum 1.200 krakkar. Þetta er
gríðarlegur fjöldi. Stærsta deildin
er knattspyrnudeildin, eins og í
flestum félögum í dag. En þar á
eftir koma handboltinn og körfu-
boltinn sem eru með stærstu
deildum landsins.“
Rúmast allur þessi fjöldi á Ásvöll-
um?
„Nei, því miður. Í dag erum við
að æfa í fimm íþróttahúsum
víðsvegar um bæinn sem er mjög
óhentugt fyrir foreldra sem þurfa
að keyra krakkana á milli og líka
ef litið er til fjölgunar hjá okk-
ar deildum. Íþróttahúsið okkar á
Ásvöllum er sprungið. Við erum
með tvo sali sem við skiptum
alveg á milli handbolta og körfu
og knattspyrnudeildin hefur því
miður ekki fengið inni vegna tíma-
skorts. Þetta stendur þó vonandi
til bóta því nú á að fara að byggja
nýtt íþróttahús hér sem á að taka
í notkun á næsta ári. Við þurfum
líka knattspyrnuhús og vonandi
kemur það fljótlega. Þessi hús-
næðisekla hefur hamlað fjölgun
að miklu leyti.“
Þetta öfluga starf hjá Haukum
í gegnum árin hefur skilað sér.
Það sést vel á meistaraflokkum
félagsins sem eru að stærstum
hluta mannaðir með uppöldum
leikmönnum.
„Haukarnir hafa verið þekkt-
ir fyrir að spila mikið á sínu fólki,
þ.e. uppöldum leikmönnum. Það
hefur verið stefna félagsins síð-
ustu ár að leggja áherslu á yngri
flokka starfið og að byggja upp
afreksfólk innan Hauka. Við erum
mjög stolt af því sem við höfum
afrekað. Á gamlársdag verðlaun-
um við alla þá iðkendur innan
félagsins sem hefur verið boðið í
landsliðsverkefni á árinu, bæði hjá
yngri flokkum og meistaraflokk-
um. Mest hafa þetta verið 120
krakkar sem tóku þátt í lands-
liðsverkefnum á einu ári. Síðasta
vetur voru þetta um 90 krakkar
og mér sýnist að þeir verði fleiri á
þessu ári. Við erum mjög stolt af
þessum krökkum og viljum verð-
launa þá sem ná svona langt.“
Ívar segir aðspurður að það sé
spennandi vetur að fara í hönd hjá
Haukum í Hafnarfirði. „Já, Hauk-
arnir eru spenntir fyrir vetrinum.
Árangurinn hjá félaginu undanfar-
in ár hefur líka verið frábær. Í fót-
boltanum vorum við nálægt því að
komast upp í efstu deild á síðasta
tímabili með mjög ungt lið og er
verið að byggja vel upp þar fyrir
framtíðina. Í handboltanum urðum
við Íslandsmeistarar í karlaflokki
og kvennaliðið datt út í undanúr-
slitum og erum við í raun stórveldi
í handboltanum. Í körfunni spilaði
kvennaliðið til úrslita en tapaði
á móti Snæfelli og karlarnir spil-
uðu líka til úrslita en töpuðu fyrir
KR. Þannig hefur karfan verið að
koma fram með gríðarlega ungt
og spennandi lið. Það er bara bjart
framundan hjá okkur.
Haukar eru eitt af stærstu
íþróttafélögum landsins í dag
sem sést á því að við vorum með
heimaleikjarétt bæði í hand-
boltanum og körfunni. Álagið á
íþróttahúsinu er fyrir vikið gríðar-
legt og það er auðvitað löngu
sprungið. Árangurinn er í raun
stórkostlegur miðað við hvað við
missum mikið af æfingum yfir
vetrartímann.“
Eins og áður sagði verða allar
æfingatöflur vetrarins tilbúnar
á heimasíðunni, www.haukar.is/
barnastarf, eftir helgina. Þá er
hægt að hafa samband á haukar@
haukar.is eða í síma 525-8700 ef
einhverjar spurningar vakna.
Öflugt starf Um 1.200 krakkar æfa hjá Haukum í Hafnarfirði undir styrkri stjórn. Hér eru þrír af íþróttastjórum félagsins; Gunnar Magnússon
í handbolta, Ívar Ásgrímsson í körfubolta og Luka Kostic, sem er íþróttastjóri í fótboltanum ásamt Bryndísi Sigurðardóttur. Mynd | Hari
Stórt félag sem býður upp
á mikla möguleika fyrir alla
Vetrarstarf Hauka í Hafnarfirði fer í gang í næstu viku. Um 1.200 krakkar iðka íþróttir hjá félaginu. Flestir eru í fótbolta,
handbolta og körfubolta en félagið býður líka upp á fleiri íþróttir svo sem skák, blak, hlaup, rugby og karate auk
leikjaskóla fyrir börn um helgar.
…tómstundir kynningar11 | amk… FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 2016
Þetta hefur
notið mikilla
vinsælda og við
erum alla jafna með
um 60-70 krakka hér
á laugardags-
morgnum.