Fréttatíminn - 27.08.2016, Qupperneq 4
4 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 27. ágúst 2016
Viðskipti Olíuverð í heimin-
um er um það bil helmingi
lægra en það var í heimin-
um árið 2013. Olíufélagið N1
sýnir samt meiri framlegð
af olíusölu en þá. Til marks
um að lækkað olíuverð skili
sér ekki til íslenskra neyt-
enda.
Ingi F. Vilhjálmsson
ingi@frettatiminn.is
Nærri þrisvar sinnum meira varð
eftir í kassanum hjá olíufélaginu N1
vegna sölu eldsneytis á fyrri helm-
ingi þessa árs en á sama tímabili
árið 2013. Á fyrstu sex mánuðum
þessa árs var framlegð N1, mis-
munurinn á innkaups- og sölu-
verði á eldsneyti auk kostnaðar
við söluna, af sölu eldsneytis 27,7
prósent en 9,9 prósent árið 2013.
Þetta er meðal þess sem sjá má í
hálfsársuppgjöri N1 sem gert var
opinbert á miðvikudaginn. N1 er
skráð á íslenska hlutabréfamarkað-
inn og er að langstærstu leyti í eigu
íslenskra lífeyrissjóða og er Lífeyr-
issjóður verslunarmanna stærsti
hluthafinn með 14,2 prósent.
Bensínverð hefur lækkað mjög
í heiminum á síðustu árum en
þessi lækkun hefur ekki skilað
sér með nægilega miklum hætti
hlutfallslega til neytenda á Ís-
landi. Sem dæmi lækkaði verð á
tunnu af Brent-olíu um 57 prósent
á einu ári, frá ágúst 2014 og þar
til í ágúst 2015, en hún fór frá 116
Bandaríkjadölum og niður í um 50
dollara. Lítri af bensíni á Íslandi
kostaði 260 krónur á Íslandi árið
2013 en tæplega 195 krónur hjá N1
á fimmtudaginn.
Til marks um þessi lækkun á
bensínverði hafi ekki skilað sér til
neytenda á Íslandi í hlutfalli við
lækkunina voru brúttótekjur N1 af
sölu á eldsneyti tæplega 22 millj-
arðar króna á fyrstu sex mánuðum
ársins 2013 en aðeins tæplega 10,3
milljarðar á fyrri helmingi þessa
árs. Framlegð N1 út af sölunni á
þessu ári var samt hærri en árið
2013: Tæplega 2,9 milljarðar í
stað tæplega 2,2 milljarða árið
2013. Þrátt fyrir að tekjurnar af
sölu eldsneytis hafi minnkað um
rúman helming vegna lækkandi
bensínverðs verður samt meira eft-
ir í kassanum hjá N1 vegna á sölu á
bensíni í ár en árið 2013.
Fréttatíminn hringdi í Eggert
Þór Kristófersson, forstjóra N1, til
að spyrja hann um árshlutaupp-
gjörið og bensínverð N1 og bað
ritara hans um að biðja hann um
að hringja í blaðið. Eggert hafði
ekki samband.
N1 græðir meira á bensíni þrátt fyrir hrun olíuverðs
N1 skilar meiri fram-
legð af bensínsölu
nú en árið 2013 þrátt
fyrir að tekjurnar
af sölu bensíns hafi
hríðfallið. Eggert
Þór Kristófersson er
forstjóri N1 en hann
tók við af Eggerti
Guðmundssyni í
fyrra.
Viðskipti Stærstu lífeyris-
sjóðir landsins fengu fjár-
festakynningu á kísilmálm-
verksmiðju Thorsil en aðeins
Almenni lífeyrissjóðurinn
hefur ákveðið að setja fé
í verkefnið, 350 milljónir
króna. Þrír stærstu sjóðirnir
eru enn að hugsa sig um en
þrír ætla ekki að fjárfesta.
Kísilverð í heiminum hefur
lækkað um þriðjung á tveim-
ur árum. Framkvæmdastjóri
Thorsil segir verkefnið
fullfjármagnað en að ganga
þurfi frá því formlega.
Ingi F. Vilhjálmsson
ingi@frettatiminn.is
Einungis einn af tíu stærstu líf-
eyrissjóðum landsins hefur tekið
ákvörðun um að fjárfesta í kísil-
málmverksmiðju Thorsil í Helguvík.
Af tíu stærstu lífeyrissjóðunum hafa
allir nema einn, Söfnunarsjóður líf-
eyrisréttinda, fengið fjárfestakynn-
ingu á verksmiðjunni en það er bara
einn, Almenni lífeyrissjóðurinn,
sem tekið hefur ákvörðun um að
setja fé í hana. Þetta kemur fram
í svörum frá framkvæmdastjór-
um stærstu lífeyrissjóðanna við
spurningum Fréttatímans. Verð-
bréfafyrirtækið Arctica Finance
sá um fjárfestakynningarnar fyrir
Thorsil. Meðal eigenda Thorsil eru
Þorsteinn Már Baldvinsson, Einar
Sveinsson og Eyþór Arnalds.
Fjármögnun Thorsil hefur
staðið yfir lengi og sagði fram-
kvæmdastjóri Thorsil, Hákon
Björnsson, fyrr í sumar að henni
ætti að ljúka í júlí. Fyrirhuguð fjár-
festing Thorsil er upp á 34 milljarða
króna og stendur til að opna kísil-
verksmiðjuna árið 2018. Fjármögn-
uninni er hins vegar ekki enn lokið
og eru nokkrir af lífeyrissjóðunum,
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins,
Gildi og Lífeyrissjóður verslunar-
manna, ennþá að hugsa sig um.
Hákon segir í samtali við Frétta-
tímann að fjármögnunin hafi dreg-
ist og í júlí hafi markmiðið verið að
klára hana fyrir sumarfrí en að það
hafi ekki náðst. Hákon vill ekki gefa
upp hversu margir lífeyrissjóðir
muni fjárfesta í verksmiðju Thorsil.
Hann segist búast við því að fjár-
mögnuninni ljúki á næstu vikum.
„Það liggja fyrir vilyrði fyrir allri
þessari fjármögnun en það þarf
bara að ganga frá þessu. Ekkert er
hins vegar tryggt fyrr en búið er að
undirrita samninga.“
Viðbrögð lífeyrissjóðanna við
hugmyndinni um Thorsil-verkefnið
sýna að forsvarsmönnum Thorsil
hefur gengið erfiðlega að sækja fé
til þeirra enda hefur kísilverð hríð-
fallið í verði í heiminum. Á síðustu
tveimur árum hefur heimsmark-
aðsverðið lækkað um þriðjung, far-
ið frá 2400 evrum fyrir tonnið og
niður í 1600 evrur. Sérfræðingur
í orkumálum, Ketill Sigurjónsson,
sagði í síðasta mánuði að hann furð-
aði sig á því að lífeyrissjóðir ætluðu
að fjárfesta í svo áhættusömum
rekstri.
Gunnar Baldvinsson, fram-
kvæmdastjóri Almenna lífeyris-
sjóðsins, hefur hins vegar trú á
verksmiðju Thorsil og skráði sjóð-
urinn sig fyrir hlutafé upp á þrjár
milljónir dollara, ríflega 350 millj-
ónum króna, eða sem nemur einu
prósenti af hlutafé fyrirtækisins.
Hann bendir á að frágangi skjala
vegna fjárfestingarinnar sé ekki
lokið og því sé hún ennþá háð fyr-
irvörum. Aðspurður um af hverju
sjóðurinn telji Thorsil vera góð-
an fjárfestingarkost segir Gunnar:
„Ágæt vænt ávöxtun í USD að teknu
tilliti til áhættu. Fjárfesting í Thorsil
felur í sér tækifæri fyrir lífeyrissjóð-
inn til fjárfestinga í atvinnugreinum
sem eru ekki aðgengilegar með öðr-
um hætti og veitir ákveðna áhættu-
dreifingu í söfnum sjóðsins. Iðnað-
urinn felur í sér umbreytingu á
hreinni raforku í fullunnar afurðir
sem seldar eru í gjaldeyri, auk þess
að vera atvinnuskapandi á Íslandi.
Stefnt er að því að mengunarvarnir
verði í háum gæðaflokki.“
Þeir stóru lífeyrissjóðir sem fengu
kynningu en hafa ákveðið að fjár-
festa ekki í Thorsil eru Sameinaði
lífeyrissjóðurinn, Stapi og Stafir.
Framkvæmdastjóri Stafa, Ólafur
Sigurðsson, segir að sjóðurinn gefi
ekki upp af hverju ekki hafi verið
ráðist í fjárfestingu í Thorsil: „Fjár-
festingaráð er ekki að vinna með
þetta sem fjárfestingakost í dag af
ýmsum ástæðum sem við gefum
ekki upp.“
Thorsil og lífeyrissjóðirnir
Kynning á Thorsil? Ákvörðun?
Lífeyrissjóður starfsmanna ríksins Já Ekki tekin
Lífeyrissjóður verslunarmanna Já Ekki tekin
Gildi-lífeyrissjóður Já Ekki tekin
Sameinaði lífeyrissjóðurinn Já Fjárfestir ekki
Stapi Já Fjárfestir ekki
Almenni lífeyrissjóðurinn Já Fjárfestir
Stafir Já Fjárfestir ekki
Frjálsi lífeyrissjóðurinn Svarar ekki já eða nei Hefur ekki fjárfest
Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda Nei
Festa lífeyrissjóður Já Ekki tekin
Einungis einn
lífeyrissjóður af
þeim stærstu á
Íslandi hefur tek-
ið ákvörðun um
að setja peninga
í kísilmálmverk-
smiðju Thorsil í
Helguvík. Meðal
eigenda Thorsil
er Þorsteinn Már
Baldvinsson,
útgerðarmaður í
Samherja.
Bara einn af stóru
lífeyrissjóðunum ætlar
að fjárfesta í Thorsil
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK
Jólaferð til Regensburg
Miðaldaborgin Regensburg á árbökkum Dónár er heillandi
á aðventunni. Jólamarkaðurinn innan um hús frá 11.-13.
öld er einstaklega huggulegur og ilmurinn af jólaglöggi og
brenndum möndlum kemur öllum í jólaskap.
Verð: 109.900 kr. á mann í tvíbýli.
Skoðunarferð til Nürnberg er innifalin!
24. - 27. nóvember
Viðskipti Félag fjárfestisins
Heiðars Guðjónssonar fékk
96 milljónir frá hluthafa HS
Veitna. HS Veitur kaupir upp
hlutabréf eigenda sinna í
stórum stíl.
Eigendur HSV eignarhaldsfélags
slhf., næst stærsta hluthafa al-
mannaþjónustufyrirtækisins HS
Veitna á Suðurnesjum, borguðu
sér út 750 milljónir króna í fyrra
með því að lækka hlutafé sitt sem
nam þessari upphæð. Félagið fékk
til þess sérstakt leyfi frá Ríkisskatt-
stjóra og fór hlutafé félagsins þá
niður úr 3.1 milljarði í rúmlega 2.4
milljarða. Með þessu móti þarf ekki
að greiða skatt af útborguðu fé líkt
og þegar arður er greiddur. Þetta
kemur fram í gögnum hjá Ríkis-
skattstjóra. Þá borgaði fyrirtækið
líka út 154 milljóna arð til hluthafa
sinna.
Félagið á 34,4 prósenta hlut í HS
veitum. Fjárfestirinn Heiðar Guð-
jónsson er einn stærsti hluthafi fé-
lagsins og fékk hann í sinn hlut 96
milljónir króna af milljónunum 750.
Þessa peninga fékk HSV
eignarhaldsfélag frá HS Veitum
þar sem fyrirtækið hefur á síðustu
árum keypt upp hlutabréf eigenda
sinna í sjálfu sér. Þessi viðskipti HS
Veitna hafa verið fjármögnuð með
lántökum. Bara í fyrra fékk HSV
eignarhaldsfélag til dæmis greidd-
ar rúmlega 842 milljónir frá HS
Veitum en inni í þeirri upphæð er
einnig arður frá fyrirtækinu.
Þetta þýðir að í fyrra fengu
hluthafar HSV eignarhaldsfélags
greidda út upphæð sem nemur
tæpum 27 prósentum af því verði
sem fyrirtækið keypti hlutabréfin í
HS Veitum á árið 2014. Fyrirtækið
keypti hlutabréfin af Reykjanesbæ,
Orkuveitu Reykjavíkur og nokkrum
minni sveitarfélögum og voru um-
deild.
Í ársreikningi HSV eignarhaldsfé-
lags kemur fram að fyrirtækið muni
einnig ætla að feta þessa sömu leið
sem og að greiða út arð á þessu ári.
| ifv
Borguðu sér út 750
milljónir frá HS Veitum
Næst stærsti hlut-
hafi HS Veitna, sem
Heiðar Guðjónsson
er hluthafi í, greiddi
út 750 milljónir
króna skattfrjálst
til hluthafa í fyrra.
Fjármunirnir koma
frá HS Veitum.