Fréttatíminn - 27.08.2016, Síða 18
18 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 27 . ágúst 2016
„Við erum fyrsta fyrir
tækið í heiminum sem
býður upp á streymi
þjónustu á hljóðbókum.“
„Ég byrjaði að vinna að þessu í kjall-
aranum mínum í Lundi þegar ég
var í feðraorlofi,“ segir Jón Hauks-
son, eigandi og annar af stofnend-
um sænska hljóðbóka fyrirtækisins
Storytel sem orðið er alþjóð-
legt stórfyrirtæki með um 200
starfsmönnum og 300 þúsund not-
endum. „Við byrjuðum bara tveir;
ég sá um tæknilegu hliðina og Jonas
[Tellander] sá um viðskiptalegu
hliðina.“ Umræddur vinur hans,
Jonas Tellander, er forstjóri Storyt-
el og stærsti hluthafi þess með um
12 prósenta hlut. Jón á sjálfur um
6,6 prósent af hlutabréfum félags-
ins og er þriðji stærsti hluthafi þess.
Nærri 27 milljarða virði
Storytel er fyrirtæki sem selur fólki
aðgang að hljóðbókum í appi. Við-
skiptavinurinn borgar ákveðið
mánaðargjald fyrir áskriftina –
í Svíþjóð kostar áskrift 169 sænskar
krónur eða tæplega 2400 íslenskar
– og getur hann síðan streymt og
hlustað á eins mikið af hljóðbók-
um Storytel og hann vill. Í gegn-
um appið er hægt að hlusta
á f leiri þúsundir titla
af alls kyns gerðum,
allt frá sjálfshjálpar-
og barnabókum til
þekktustu verka
þýska heimspek-
ingsins Immanu-
els Kants.
Fyrirtækið er
með starfsemi í
sex löndum:
Svíþjóð,
Danmörku, Noregi, Finnlandi, Pól-
landi og Hollandi. Munurinn á þjón-
ustu Storytel og fyrirtækjum eins
og hinu bandaríska Audible er að
notkunin á Storytel er ótak mörkuð
fyrir áskrifendur þjónustunnar.
„Við erum fyrsta fyrirtækið í heim-
inum sem býður upp á streymiþjón-
ustu á hljóðbókum,“ segir Jón sem
hefur búið í Svíþjóð frá árinu 1979
þegar hann var níu ára gamall.
Storytel er skráð á hlutabréfa-
markað í Svíþjóð sem heitir Aktie-
torget og er bókfært markaðsverð-
mæti hlutabréfa fyrirtækisins nærri
tveir milljarðar sænskra króna,
nærri 27 milljarðar íslenskra
króna. Hlutabréfaverð fyrirtækis-
ins hefur hækkað stöðugt á síðustu
árum, meðal annars um 5 prósent
á nokkrum klukkutímum á mánu-
dagsmorgun þegar jákvæðar niður-
stöður um rekstur félagsins á fyrsta
ársfjórðungi 2016 voru gerðar opin-
berar. Í ár hafa hlutabréf fyrirtækis-
ins hækkað um 100 prósent.
Kaup á sænskri menningarstofnun
Í sumar hefur verið mikil umfjöllun
um Storytel í sænskum fjölmiðlum,
og einnig miðlum í öðrum lönd-
um, eftir að fyrirtækið keypti eitt
stærsta, elsta og virtasta bóka forlag
Svíþjóðar, Norstedts, fyrir um 150
milljónir sænskra króna, rúmlega
tvo milljarða íslenskra króna. Nor-
stedts var stofnað á nítjándu öld,
árið 1823, og eru höfuðstöðvar
þess í þekktri, gamalli byggingu
í miðbæ Stokkhólms; Storytel er
hins vegar einungis rúmlega 10
ára gamalt hljóðbókarfyrirtæki
sem hefur vaxið hratt. Viðskiptin
eru því merkileg og sæta tíðindum
í þessu ljósi.
Með kaupunum á Norstedts getur
Storytel gert alla titla bókaforlags-
ins aðgengilega á hljóðbókaformi
í gegnum app fyrirtækisins. Með-
al höfunda Norstedts er til dæmis
David Lagercrantz sem skrifaði síð-
ustu Millenium bókina með sögu-
persónum Stieg Larssons, Astrid
Lindgren – í gegnum dótturfélag
Norstedts – og P.O. Enquist sem er
einn þekktasti fagurbókmenntahöf-
undur Svíþjóðar. Norstedts gefur
einnig út bækur Arnaldar Indriða-
sonar í Svíþjóð.
Stóðu frammi fyrir gjaldþroti
Jón segir að stofnun og vinnan við
Storytel hafi verið mikið hark fyr-
ir þá Jonas Tellander framan af. Á
fyrstu árum Storytel stóð fyrirtæk-
ið frammi fyrir gjaldþroti vegna
peningaleysis. Jón segir að eft-
ir efnahagshrunið árið 2008 hafi
þeir verið að því komnir að hætta
starfseminni. „Árið 2008 vorum
við bara með 2000 áskrifend-
ur. Við ætluðum að auka við
hlutafé félagsins og leituðum
til fjárfesta víða um Evrópu. En
það gekk ekki neitt og svo kom
efnahagshrunið. Það var allt að
fara á hausinn, við vorum mjög
nálægt gjaldþroti. Svo bauðst
okkur að fara í sjónvarpsþátt-
inn Draknästet – það var síðasta
„Við áttum engan pening, vorum alveg búnir á því og vöknuðum á hverjum degi í hálfgerðu hjartaáfalli.“
Íslendingurinn sem byggt hefur upp
27 milljarða, alþjóðlegt bókafyrirtæki
Jón Hauksson og vinur hans, Jonas
Tellander, voru til að byrja með einu
starfsmenn Storytel. Í dag starfa
200 manns hjá fyrirtækinu og
áskrifendurnir eru um
300 þúsund.
Jón Hauksson þekkja sjálf
sagt ekki margir hér á landi
en hann er einn af stofn
endum alþjóðlega hljóð
bókafyrirtækisins Storytel
sem vaxið hefur hratt á
liðnum árum. Story tel var
byggt upp frá grunni af Jóni
og viðskiptafélaga hans
og byrjaði tæknileg þróun
þess í kjallara Jóns í Lundi
í Svíþjóð á meðan hann var
í fæðingarorlofi. Saga fyrir
tækisins er langt í frá þrauta
laus og varð það næstum
því gjaldþrota eftir hrunið
2008. Íslenskt fyrirtæki Stef
áns Hjörleifssonar hyggst
opna sams konar þjónustu
á Íslandi á næstunni.
Ingi F. Vilhjálmsson
ingi@frettatiminn.is