Fréttatíminn - 27.08.2016, Qupperneq 22
22 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 27. ágúst 2016
Ár eftir ár vekur koma
næturmyrkursins hér á
Íslandi hjá manni furðu. Það
er líklega til merkis um það
hve íslenska sumarið, með
alla sína birtu er magnað, að
við skulum nánast gleyma
myrkrinu yfir hásumarið.
Guðni Tómasson
gudni@frettatimann.is
Birtan á Íslandi er öfgakennd. Það
gerir hnattstaðan og afstaða og
hreyfing sólar og tungls, sem virð-
ast alltaf á snúningi í kringum okk-
ur, þrátt fyrir það sem við vitum nú
um gang himintunglanna.
Nóttin tekur auðvitað alltaf við
af deginum en eftir langt íslenskt
sumar er samt eins og hún komi
aftur, stimpli sig inn.
Nóttin læðist
Á Íslandi lengist nóttin um 7-8
mínútur á hverjum sólarhring um
þetta leyti árs og dagurinn stytt-
ist auðvitað á móti. Breyting þessi
er nokkuð stöðug fram í nóvember
en þá hægir á henni og hún er afar
hæg í mánuð eða svo í kringum
vetrarsólstöður.
Myrkrið kom til sögunnar í
Reykjavík í síðari hluta júlí en
svokallað dagsetur, þegar nóttin
verður samkvæmt skilgreiningu
aldimm, kemur ekki til sögunn-
ar fyrr en í fyrstu viku septem-
ber. Það má því með sanni segja
að nóttin sé að læðast yfir okkur
þessa dagana.
Dagurinn hefur þó enn vinn-
inginn hvað lengd varðar því að
haustjafndægur verða ekki fyrr
en 22. september. Þá verða nótt
og dagur jafnlöng á jörðinni og þá
er stundum sagt að haustið hefjist
formlega á norðurhveli en vorið á
suðurhveli. Aðeins á jafndægrum á
vori og hausti rís sólin nákvæmlega
í austri og sest nákvæmlega í vestri.
Andstæður dags og nætur
Nóttin hefur lengi heillað mann-
inn en líka ógnað tilveru hans. Öll
menningarsamfélög hafa reynt að
koma sér upp kerfum til að reyna
að skilja gang himintunglanna.
Vísindamenn og kenningasmið-
ir trúarbragðanna hafa reynt að
koma böndum á nóttina með því
að skilja hana og skilgreina, enda
gerir nóttin okkur agnarsmá. Að-
dáun okkar og óvissa um nóttina
er því gríðarlega mannleg forvitni
og óvissan um hana situr djúpt í
mannlegu eðli.
Í okkur sitja líka ýmsar menn-
ingarlegar tengingar um nóttina,
Nóttin
ER AÐ KOMA
Við vitum ekki hvað býr
í nóttinni en ef við njótum
skjóls frá óvissunni sem
nóttin ber með sér, kemur
hún með sína jákvæðu
eiginleika inn í líf okkar.
Þá er hún tími hvíldar,
vináttu, ástar og hlýju.
Næturvaktin eftir Rembrandt er eitt mesta meistaraverk hollenska málarans,
pólitísk pöntun frá árinu 1642. 34 manneskjur málverksins eru nærri í fullri
stærð. Varðmennirnir vernduðu íbúa Amsterdam frá hættum næturinnar:
Ribböldum, uppþotum og eldi.
Nokkur hugtök
um nóttina:
Dagsetur heitir það þegar sól-
miðjan er 18° undir sjóndeildar-
hring á niðurleið, en dögun þegar
hún er jafnlangt undir sjónhring
á uppleið. Þegar dagsetri er
náð er himininn orðinn aldimm-
ur. Dagsetri verður fyrst náð í
Reykjavík eftir sumarið í fyrstu
viku september.
Myrkur er skilgreint þegar sól-
miðjan er 6° undir sjóndeildar-
hring en talað um birtingu þegar
hún er jafnlangt undir sjónhring
á uppleið.
Sólarlag er miðað við að efri rönd
sólar sýnist vera við sjóndeildar-
hring og sama á við um sólris.
Byggt á Almannaki Háskóla
Íslands en í því og á Vísindavef
skólans má finna ýmsan fróðleik
um gang himintunglanna.
ÓKEYPIS
KYNNINGAR-
TÍMI
HREYFING Á AÐ VERA SKEMMTILEG!
5 PARTÝ + 3 JÓGATÍMAR Á VIKU
200 ZUMBA PARTÝ + 100 JÓGA TÍMAR
15%
AFSLÁTTUR
Í ÁGÚST
DANS & JÓGA · VALSHEIMILIÐ HLÍÐARENDA · WWW.DANSOGJOGA.IS
DANS & JÓGA
FÁÐU ÞÉR
ÁRSKORT!
Heimili & hönnun
Þann 3. september
Allt um eldhús, bað & blöndunartæki
auglysingar@frettatiminn.is | 531 3300
VIÐ GEFUM HJÓL!
FACEBOOK.COM/KISSFMICELAND
AÐ VERÐMÆTI 114.900 KR