Fréttatíminn

Útgáva

Fréttatíminn - 27.08.2016, Síða 24

Fréttatíminn - 27.08.2016, Síða 24
24 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 27. ágúst 2016 Fjórar góðar kvikmyndir um nótt Night on Earth (1991) – Fimm kostulegir túrar með fimm leigu- bílum í Evrópu og Ameríku. Nattevagten (1994) – Það er ekkert grín að vera næturvörður í dönsku líkhúsi. Who’s Afraid Of Virginia Woolf? (1966) 4 Sígild og svarthvít. Alvöru leikrit um nótt með alvöru samtölum. Before Sunrise (1995) – Fyrir þá rómantísku og ástföngnu jafnast ekkert á við París um nótt eins konar uppsöfnuð skilaboð aldanna um það hvaða hættur geta leynst í henni. Líklega er hér um varnarviðbrögð að ræða sem liggja djúpt í fortíð mannsins því að í nóttinni býr það óséða og allt það sem við erum berskjölduð gegn. Rándýr, stigamenn og ann- að það sem getur meitt og hrætt okkur fer, samkvæmt hefðinni, um í skjóli nætur. Öll menningarsam- félög hafa því búið sér til sögur um hættur næturinnar, ástæðan er fyrst og fremst lífsbaráttan. Þetta byggist á því hvernig við hugsum um ljós og skugga sem al- gjörar andstæður. Ljósið veitir okk- ur hlýju og næringu en skuggan- um fylgir kuldi. Nóttin er þannig tími undirferlis, fávisku og svika á meðan dagurinn er tími sann- Í norrænni goðafræði er Nótt dóttir jötunsins Narfa. Hún er sögð svört og dökk, ríður hestinum Hrímfaxa og að morgni hverjum „döggvir hann jörðina með mél- dropum sínum.“ Sonur Náttar og ássins Dellings var Dagur sem er ljós og fagur. Dagur ríður hestinum Skinfaxa sem lýsir loft og jörð með faxi sínu. Málverkið af Nótt og Degi er eftir norska málarann Peter Nicolai Arbo. Þegar jarðskjálfti sló út rafmagnið af Los Angeles borg árið 1994 hringdu nokkuð skelkaðir íbúar sérstaklega í Griffith stjörnuskoðunar-miðstöð- ina í útjaðri borgarinnar til að spyrja um af hverju himininn væri svona skrít- inn. Þar skinu stjörnurnar eins og venjulega, nema nú sást í þær. leika, þekkingar og upplýsingar. Þetta endurspegla bæði heimspeki og trúarbrögð heimsins sem snúast svo oft um að leiða okkur úr skugg- anum og inn í ljósið. Á meðan hafa kukl og galdrar tilheyrt nóttinni, rétt eins og verur handanheima. Nyx hét gríska gyðjan sem var persónugerving næturinnar. Hún var dóttir óreiðunnar (Chaos) og móðir bæði himins og jarðar. Sam- kvæmt goðsögunum fæðir hún einnig af sér ýmis neikvæð og já- kvæð fyrirbæri. Þar á meðal má nefna eyðileggingu, dauða, örlög, sársauka, ásakanir, svik, vináttu, elli og erfiðleika. Við vitum ekki hvað býr í nóttinni en ef við njótum skjóls frá óvissunni sem nóttin ber með sér, kemur hún með sína jákvæðu eiginleika inn í líf okkar. Þá er hún tími hvíldar, vináttu, ástar og hlýju. Við fjarlægjumst nóttina Í raf lýstum heimi erum við að miklu leyti komin úr tengslum við nóttina og hve myrk hún getur ver- ið. Ljósmengun er vandamál sem við höfum búið okkur til með raf- lýsingu samtímans. Það var Sól- konungurinn Loðvík fjórtándi sem fyrstur fór að láta hengja upp götu- luktir í París á 17. öld. Baráttan við næturmyrkrið var merkilegt tákn um alvald konungsins sem sat í há- sæti í miðju síns miðstýrða ríkis. Í dag eru götuljós og lampar á vegum Reykjavíkurborgar, Vega- gerðarinnar og Faxaf lóahafna hátt í 30 þúsund talsins í höf- uðborginni. Kerfinu er ætlað að bægja nóttinni frá en ljósin gera það að verkum að sækja verður út fyrir bæinn til að styrkja upplifun- ina af næturhimninum og dýpt næturinnar. Sú er raunin víða um lönd að möguleikar fólks til að njóta næt- urhiminsins er orðnir heldur litlir. Stórborgir eru stjörnulausar. Talið er að 80 prósent Evrópu og Norð- ur-Ameríku bjóði ekki upp á alvöru myrkur vegna ljósmengunar. Þegar jarðskjálfti sló út rafmagnið af Los Angeles borg árið 1994 hringdu nokkuð skelkaðir íbúar sérstak- lega í Griffith stjörnuskoðunar-mið- stöðina í útjaðri borgarinnar til að spyrja um af hverju himininn væri svona skrítinn. Þar skinu stjörnu- rnar eins og venjulega, nema nú sást í þær. Að fagna nóttinni Vegna þess hve við virðumst for- rituð um hættur næturinnar get- ur reynst erfitt að uppfæra hug- myndir okkar um hana. Reynsla aldanna og hugmyndir um nóttina segja okkur að við eigum að forð- ast hana. Hins vegar má allt eins halda því fram að eftir ævintýri sumarsins komi myrkrið með kyrrð yfir Ís- land. Á haustin tökum við til í líf- inu, það færist aftur í fastar skorð- ur og því fylgir ákveðin hvíld. Skammdegið fer illa í marga en það er líka nauðsynlegt að reyna að taka nóttina í sátt. www.reykjavik.is/styrkir Styrkir Reykjavíkurborgar Reykjavík City grants Granty Miasta Reykjavík Reykjavíkurborg auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna starfsemi á árinu 2017. Meðal markmiða styrkveitinga er að styrkja og efna til samstarfs við félagasamtök, fyrirtæki og einstaklinga um uppbyggilega starfsemi og Þjónustu í samræmi við stefnumörkun, áherslur og forgangsröðun borgaryfirvalda. Styrkir eru m.a. veittir til verkefna á sviði eftirtalinna málaflokka: Á www.reykjavik.is/styrkir er hægt að sækja um og finna leiðbeiningar um umsóknarferli. Einnig er þar að finna reglur um styrkveitingar og nánari Upplýsingar um áherslur borgarinnar í einstökum málaflokkum. Umsóknarfrestur er til 12:00 á hádegi 3. október nk. English The city of Reykjavíkis currently accepting grant applications for the 2017 fiscal year. The goal of the grants is to strengthen and create cooperation with NGO´s businesses and individuals in constructive activities and services. In accordance with the city´s policies and priorties. Grants will be awarded for projects in the following fields: To apply go to: www.reykjavik.is/styrkir Also available on the website is information on grant rules and regulations and information about the city´s priorities in the various area of interest. The application deadline is at 12:00 pm on October 3rd. Fyrirspurnir og óskir um nánari upplýsingar má senda á netfangið: More information: Wiecej informacji: Reykjavíkurborg www.reykjavik.is

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.