Fréttatíminn - 27.08.2016, Qupperneq 28
Óhætt er að fullyrða að skotvopna-
löggjöf og byssumenning Bandaríkj-
anna hafi verið afar umdeild lengi
vel. Skotvopn í einkaeigu eru talin
sjálfsvörn og mörgum finnst þar eins
venjulegt að bera með sér byssu eins
og hverja aðra handtösku.
Nú nýlega var ákveðið að leyfa
skotvopn í háskólabyggingum
Texasríkis og hafa miklar umræð-
ur sprottið út frá þeirri ákvörðun.
Efnt hefur verið til mótmæla við
háskólann í Texas þar sem leyfi til
að bera skotvopn í skólanum hefur
verið fordæmt, en á sama tíma eru
kynlífsleikföng bönnuð í háskólan-
um. Ákveðið var að dreifa kyn-
lífsleikföngum til nemenda og sýna
með því hversu fáránlegt það er að
nemendum sé bannað að hafa á sér
gervilimi en leyfilegt að bera skot-
vopn á meðan lært er um Shakespe-
are.
4000 gervilimum hefur ver-
ið dreift um háskólasvæðið, sem
flestir hafa verið gefnir af fullorðins
leikfangabúðum á svæðinu í kring.
Herferðin heitir „Cocks not Glocks“
eða Limir en ekki Glock sem er vin-
sæl byssutegund vestanhafs. | hdó
28 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 27. ágúst 2016
Á meðan japanskar konur ryðja
sér til rúms á vinnumarkaði og
kynin umgangast hvort annað
meira en nokkru sinni fyrr blasir
ákveðið vandamál við Japönum í
dag. Einungis þriðjungur Japana
er í sambandi og ástin hefur orðið
að forgangsmálum stjórnvalda;
að koma fólki saman til að auka
fæðingartíðni og giftingar.
Hiroyuki Nomura er fimmtíu
og eins árs Japani sem kýs frekar
að búa með 17 Anime-dúkkum úr
sílíkoni en að eigu í alvöru ástar-
sambandi. „Margir menn verða
fyrir vonbrigðum með alvöru
kvenmenn. Ég hef aldrei verið með
konu og legg ekki í það.
Held það sé tilfinninga-
lega erfitt. Dúkkurn-
ar hafa róandi áhrif
á mig og koma mér
til að brosa,“ segir
Nomura en mönnum
eins og honum sem lifa
í á fantasíuheimi er oft
kennt um vanda Japana.
Allar dúkkurnar eru
persónur úr uppáhalds
teiknimyndunum hans.
„Þegar maður klæðir þær og greið-
ir þeim er eins og þær séu á lífi.“
Eftirlætisdúkkan hans er Tise en
hana keypti hann fyrst. „Hún er
fyrsta stelpan sem ég bauð
velkomna í líf mitt,“ seg-
ir Nomura. ,,Fyrst var
hún bara dúkka sem
ég keypti í búð en síð-
an varð hún mér mjög
kær. Hún er hvorki
kærasta né dóttir mín
heldur eitthvað mikil-
vægara.“ Áður hafði Nomura
safnað mótorhjólum en sú
ástríða þurfti að víkja fyrir
dúkkunum.
Nomura á reyndar dúkkunni
Tise mikinn vinskap að þakka með
öðrum söfnurum en hann tekur
þær iðulega með í ferðalög um
Japan þar sem hann hittir önnur
„nörd“ eins og hann kallar það. „Ég
elska að fara með dúkkurnar mínar
í ferðir þar sem ég fæ hól fyrir að
eiga svona fínar dúkkur. Ég vona
líka að með því að vera með dúkk-
unum opinberlega, og hitta aðra
safnara, eyði það fordómum.“
„Ég er ekki að leita mér að konu
því fólk sem giftir sig verður bara
vansælt. Maður á að njóta lífsins.“
| bg
Býr með sautján Anime-dúkkum
Nomura situr með Tise, umvafinn Anime-dúkkum. Mynd | Aljazeera
Mótmælin fyrir utan háskólann
í Austin.
Guðni Tómasson
gudni@frettatiminn.is
Mér líður bara vel með þetta,“ segir Bene-dikt Hermann Hermannsson
inntur eftir því hvernig tilf-
inningin sé að senda frá sér
ljóðabók í fyrsta sinn. „Ég er
eiginlega bara hálf hissa á því
hvað þetta er allt eins og það á
að vera.“
Draumur um ljóðabók hef-
ur ekki brotist um í tónlist-
armanninum, en nú kölluðu
verkin á þessa framsetningu.
„Ég áttaði mig á því síðasta
haust að það sem ég vann að
var ekki plata, eins og ég hélt,
heldur ljóðabók. Reyndar
bætti ég tónlistinni síðan við
og hef samið lög við nokkur
ljóðanna. Þau gef ég út á net-
inu, ásamt myndböndum
við þau.“
Nýju lögin eru 22 talsins og
þau ætlar Benedikt að flytja á
þrennum tónleikum í Mengi
þann 2. og 3. september. Þar
kemur Benedikt fram með
þremur ólíkum hópum tón-
listarfólks, en engar æfingar
verða haldnar.
„Þetta er dálítið þemað
í þessu verkefni,“ segir
Benedikt, „að vita ekki alveg
hvað maður er að gera. Ég
tók lögin upp án þess að vera
búinn að læra þau, gaf út
ljóðabók án þess að kunna á
hefðir ljóðsins og svo verða
tón leikarnir ekki æfðir. Ork-
an verður önnur og maður er
eiginlega eins berskjaldaður
Skordýrin hans Benna
Óvissan er þema nýrrar ljóðabókar sem fann
sér farveg í ljóðum, tónlist og myndböndum.
Gömul slæða
Tómur, svangur, léttur svífandi.
Kaldur að utan, heitur að innan.
Svífandi upp
húðin harðnar
líffærin mýkjast.
Húðin harðnar
líffærin leysast upp.
Á örskotsstundu skil ég allt.
Ekkert hefur breyst.
Maður – loftbelgur – egg.
Ein
af Anime-
-dúkkum
Nomura.
og maður getur mögulega verið.“
Benedikt segist hafa verið skít-
hræddur við hugmyndina um að
gefa út ljóðabók, „en síðan þurfti
ég bara að díla við það. Það er
fyndið augnablik þegar maður
fattar allt í einu að maður er að
gera ljóðabók og fer að vinna með
það í huga. Ég hef alltaf talið mér
trú um að þetta sé alveg sitt hvor
hluturinn, lagatextar og ljóð. Ég
var á því að ég kunni bara annað,
en ekki hitt. Það er síðan eins og
hver önnur vitleysa sem maður
segir sjálfum sér. Á endanum er
það bara hressandi að takast á við
það óþekkta.“
Fyrir Benna Hemm
Hemm var það
sérstök reynsla
að átta sig á því
að ljóðabók væri
að fæðast.
Mótmæla byssuleyfi
með gervilimum
Viðhaldsfríir
gluggar, hurðir, rennihurðir, sólskálar og svalalokanir
Allar tæknilegar upplýsingar, snið og teikningar,
eru fyrirliggjandi hjá okkur - hafðu samband.
Yfir 80 litir í boði. Nánari upplýsingar á www.solskalar.is
Við höfum framleitt viðhaldsfría glugga og hurðir í yfir 30 ár.