Fréttatíminn - 27.08.2016, Page 44
alla föstudaga
og laugardaga
Njóttu listar
Lókal, alþjóðleg sviðslistahátíð fer fram í Reykjavík um helgina.
Hægt er að nálgast upplýsingar um viðburði á lokal.is.
Fullyrðir að sambandinu sé lokið
Jennifer Lopez hætti með Casper Smart eftir að hann sveikst um að mæta á góðgerðarsamkomu.
Ungfrú Ísland fer
fram í kvöld
Ungfrú Ísland 2016 fer fram í
kvöld í kvöld í Hörpu, en þar mun
21 stúlka keppa um titilinn
eftirsótta. Stelpurnar hafa staðið í
ströngu síðustu mánuði enda hafa
stífar æfingar staðið yfir á ýmsum
sviðum. Arna Ýr Jónsdóttir,
Ungfrú Ísland 2015, hefur verið
stúlkunum innan handar og
miðlað reynslu sinni. En hún
virtist glöð í vikunni þegar hún
var á leið á næstsíðustu æfinguna
fyrir keppnina. Árið er búið að
vera viðburðaríkt hjá Örnu, en
það verður eflaust kærkomið fyrir
hana að afhenda nýrri stúlkunni
kórónuna og halda á vit nýrra
verkefna. Arna sýndi fylgjendum
sínum á snapchat nokkra af
kjólunum sem stúlkurnar munu
klæðast í kvöld og óhætt er að
segja að þar verði allt með
hefðbundu sniði. Prinsessukjólar
og pallíettur.
Ekki bara fegurð?
Og talandi um fegurðar-
samkeppni, þá styttist óðum í
aðra slíka hér á
landi. Miss
Universe Iceland
fer fram í Gamla
bíói þann 12.
september
næstkomandi, en
fegurðardrottn-
ingin Manúela
Ósk Harðar-
dóttur er ein af
þeim sem sér um
skipulagningu
keppninnar. Sjálf
fór hún út til að taka þátt í
keppninni á sínum tíma, en varð
að hætta við vegna veikinda.
Undirbúningur keppninnar
stendur nú sem hæst, en það
verður fróðlegt að sjá hvort hún
skeri sig frá Ungfrú Ísland
keppninni á einhvern hátt. Sjálf
hefur Manúela tekið fram að
keppnin snúist að sjálfsögðu ekki
bara um fegurð, en það á hin
keppnin reyndar heldur ekki að
gera.
Jennifer Lopez sleit sambandi sínu við
leikarann Casper Smart af því hann
sveikst um að mæta með henni á góð-
gerðarsamkomu fyrr í þessum mánuði.
Lopez hafði gert Smart grein fyrir því
að það væri mjög mikilvægt að hann
kæmi með henni á þennan viðburð, en
hann var líklegra ekki sammála henni
um mikilvægi þess. Honum þótti alla-
vega mikilvægara að fara með vinum
sínum til Vegas að fylgjast með bardaga
á milli Conor McGregor og Nate Diaz.
Lopez ku hafa orðið alveg brjáluð
yfir þessari ákvörðun Smart og sleit
sambandinu „á nóinu“. Þá var hann
reyndar kominn til Vegas og hún í The
Hamptons og uppsögnin skilaði sér
ekki alveg strax. Hann virtist allavega
ekki meðvitaður um það á bardag-
anum, þar sem hann sagði fólki sem
hann hitti, að hann væri að fara að hitta
kærustuna í New York daginn eftir.
Eitthvað virðist Lopez þó hafa runnið
reiðin og eru þau farin að tala saman
aftur, en bara sem vinir. Hún full-
yrðir að sambandi þeirra sé lok-
ið fyrir fullt og allt, en Smart er
í afneitun hvað það varðar. Það
að hann skyldi svíkja hana á góð-
gerðarsamkomunni var víst korn-
ið sem fyllti mælinn í þeirra sam-
bandi, að hennar mati. Parið
fyrrverandi hefur reyndar hætt
saman nokkrum sinnum svo það er
aldrei að vita hvað framtíðin ber í
skauti sér.
Meðan allt lék í lyndi Lopez
og Smart hafa hætt saman
nokkrum sinnum áður, svo
það er aldrei að vita hvað
gerist í samskiptum þeirra.
FACEBOOK.COM/KISSFMICELAND
ÍSAFJÖRÐUR
FM104,1
AKUREYRI
FM102,5
REYKJAVÍK
FM104,5