Fréttatíminn - 27.08.2016, Blaðsíða 52
Lostæti Bjórsoðin bláskel. Myndir | Rut
Geggjaður
bjór og ferskt
sjávarfang
Bjórinn brátt fáanlegur í Vínbúðum.
Unnið í samstarfi við
Bryggjuna Brugghús
Bryggjan Brugghús hefur á stuttum tíma stimplað sig rækilega inn sem eft-irsóttur staður fyrir bjór-
unnendur og aðra sælkera. Stað-
urinn er fyrst og fremst brugghús
og bístróveitingastaður með
áherslu á sjávarfang. Elvar Ingi-
marsson er markaðsstjóri Bryggj-
unnar Brugghúss. „Við erum að
brugga 5 tegundir að geggjuð-
um bjór; lager, redale, paleale,
IPA og hveitibjór. Við erum með
tvo bruggara í vinnu sem brugga
allan daginn,“ segir Elvar. Bjór-
inn hefur fengið góðar viðtök-
ur, raunar svo góðar að innan
skamms verður hægt að fá hann í
Vínbúðum. „Við erum að láta setja
hann á dósir, hann verður fáan-
legur eftir um tvo mánuði.“
Á Bryggjunni Brugghúsi er
salur sem tekur um 100 manns
þægilega í sæti, þar er orðið vin-
sælt að halda hvers kyns veislur,
fyrirtæki nýta hann fyrir árshá-
tíðir og einstaklingar fyrir afmæli
og brúðkaupsveislur. „Svo erum
við með bjórkynningar, þá kemur
fólk í bjórsmakk og tekur rúnt um
brugghúsið með bruggmeistur-
unum. Svo er líka hægt að koma í
bjórskóla. Hann er um 90 mínútna
langur, bruggararnir sýna brugg-
ferlið á breiðtjaldi og fólk fær
að smakka alla bjórana og getur
drukkið allan þann bjór sem það
vill.“ Reglulega eru svo alls kyns
uppákomur, tónleikar og fleira
til. Ekki má gleyma taco-þriðju-
deginum eða „taco-tuesday“ sem
margir sækja vikulega.
Um þessar mundir eru fram-
kvæmdir í gangi við Brugghús-
ið. „Við erum að stækka staðinn,
smíða bryggju hérna fyrir utan
þar sem fólk getur setið í sólinni
með bjórsoðinn krækling og bjór
eða hvítvínsglas,“ segir Elvar.
Eins og áður sagði er lögð
áhersla á ferskt sjávarfang og það
nýjasta á matseðlinum eru ferskar
rækjur í skel sem fólk pillar sjálft
og hefur rétturinn slegið í gegn
að, sögn Elvars, og er kominn til
að vera. Að sjálfsögðu eru hefð-
bundnari réttir á seðlinum; borg-
arar, steikur, humar og vitanlega
barnamatseðill.
Í bígerð er bjórklúbbur sem
bjóráhugamenn eiga eflaust eftir
að fagna. „Fólk fær rafrænt kort
og getur skráð sig þannig í klúbb-
inn. Þá er bjórinn á góðu verði og
meðlimir fá að koma og smakka
nýja bjóra þegar þeir koma úr
brugghúsinu.“
Margrét Ríkharðsdóttir yfirkokkur.
Girnilegt Stökkur þorskur og franskar.
Á Bryggjunni
Brugghúsi er
salur sem tekur um
100 manns þægilega
í sæti, þar er orðið
vinsælt að halda
hvers kyns veisl-
ur, fyrirtæki nýta
hann fyrir árshátíðir
og einstaklingar
fyrir afmæli og brúð-
kaupsveislur.
Elvar Ingimarsson
Markaðsstjóri Bryggjunnar
Brugghúss
LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 20168 MATARTÍMINN