Fréttatíminn - 27.08.2016, Síða 53
Lystisemdir Frú Laugu
í Listasafninu
Góðgæti af Laugalæknum í Hafnarhúsinu.
Kaffi- og matstofa Frú Laugu Staðurinn er beint framhald af Frú Laugu. „Við erum að nýta góðu vörurnar og afurðirnar okkar sem við erum með í Frú Laugu í létta,
næringarríka og gómsæta rétti,“ segir Rakel Halldórsdóttir í Frú Laugu. Mynd | Rut
Hafnarhúsið Opið er lengur í Listasafninu á fimmtudagskvöldum og þá er hægt að njóta
listarinnar og þeirra viðburða sem eru á vegum Listasafnsins og líta svo við á kaffistofunni
og gæða sér á góðu víni og ostabakka.
Mynd | Rut
Unnið í samstarfi við Frú Laugu
Á Listasafni Reykjavíkur Hafnarhúsi, Tryggvagötu 17, er nú hægt að setjast niður og gæða sér á góð-
gæti beint frá Frú Laugu; á Kaffi-
og matstofu Frú Laugu. „Staður-
inn er í rauninni beint framhald af
búðinni okkar. Við erum að nýta
góðu vörurnar og afurðirnar okk-
ar sem við erum með í Frú Laugu
í létta, næringarríka og gómsæta
rétti,“ segir Rakel Halldórsdótt-
ir, eigandi Frú Laugu. „Við erum
alltaf með súpu og brúskettur þar
sem við notum lífrænu ólífuolí-
una okkar og ekta mozzarellaost
eða ricotta sem við flytjum inn,
mozzarella di bufala eða ricotta
di bufala. Svo erum við með
einstaklega góða tómata sem fást
í búðinni og einnig tómata sem
við ræktum sjálf í gróðurhúsinu
í Laugardalnum,“ segir Rakel en
Frú Lauga er í samstarfsverkefni
með Grasagarðinum í Reykjavík
og inn í það tvinnast fræðsla til
grunnskólabarna um ræktun. „Í
fyrrahaust kom allur fjórði bekk-
ur í hverfisskólanum í heimsókn,
skoðaði ræktunina og fékk að tína
af trjánum. Krakkarnir voru mjög
áhugasamir og ánægðir og þetta
er eitthvað sem við munum vænt-
anlega endurtaka í haust.“
Bulsur og bjór
Fleiri léttir réttir eru í boði í Kaffi-
og matstofunni en úrvalið fer
eftir því hvaða hráefni er í boði
hverju sinni í búðinni. „Ef við erum
með sítrónur í búðinni bjóðum
við til dæmis upp á sítrónuböku
og gerum pestó úr þeim jurt-
um sem eru ferskar hjá okkur
hverju sinni.“ Eins og nafnið gefur
til kynna er kaffi á boðstólum,
ítalskt og sérinnflutt, og einnig
er hægt að gæða sér á sætum
bitum og konfekti. „Svo erum við
með ítalskan bjór, Baladin, sem
enginn annar er með á Íslandi, og
lífræna húsvínið okkar er frá siki-
leyska framleiðandanum Valdi-
bella, sama framleiðanda og gerir
ólífuolíuna okkar góðu sem fylla
má á flöskur að heiman í verslun
Frú Laugu.“ Á fimmtudagskvöld-
um er opið til klukkan 22 á Kaffi
og matstofunni og annað hvert
fimmtudagskvöld í vetur verð-
ur boðið upp á viðburði. „Næsta
fimmtudag, 1. september, verðum
við til dæmis með bulsur og bjór,
bulsurnar frá Svavari Pétri og
Berglindi í Havaríi með sinnepi
og súrkáli og bjór með,“ segir
Rakel. Opið er lengur í Listasafn-
inu á fimmtudagskvöldum og þá
er hægt að njóta listarinnar og
þeirra viðburða sem eru á vegum
Listasafnsins og líta svo við á
kaffistofunni og gæða sér á góðu
víni og ostabakka.
Íslenskar kantalópur
Nú er uppskerutími sem þýðir að
Frú Lauga er stútfull af íslenskri
uppskeru, rótargrænmeti, að-
albláberjum og jafnvel sólberj-
um. Ræktun á íslensku hráefni
er einnig í blóma og eru íslenskir
garðyrkjubændur óhræddir við að
fara ótroðnar slóðir ásamt því að
rækta það sem er hefðbundnara.
„Við höfum verið með mjög góðar
íslenskar strengjabaunir, sellerí,
blómkál, spergilkál, vorlauk svo
eitthvað sé nefnt. Einnig fengum
við um daginn melónur frá Engi í
Laugarási, stórar, flottar og safa-
ríkar kantalópur. Þær eru alls ekki
síðri en þær sem koma frá sól-
ríkum löndum svo það er sannar-
lega ýmislegt hægt að gera,“
segir Rakel. „Svo erum við að fá
sendingu frá Ítalíu með lífrænum
ferskjum, apríkósum, nektarín-
um, vínberjum, einstaklega góða
ítalska hvítlauknum og fleiru.
Þá fara vinsælu lífrænu eplin frá
Englandi alveg að detta í hús.“
LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 2016 9 MATARTÍMINN