Fréttatíminn - 27.08.2016, Side 55
Bergsson Mathús er opið frá klukkan 7 til 21 alla virka daga, en til
klukkan 5 um helgar. Bergsson RE er opinn á virkum dögum frá klukkan
9 til 16 en lokað er um helgar. Upplýsingar um matseðil dagsins er að
finna á Facebook síðu staðanna.
Einfaldur, hægur, nærandi og bragðgóður
Vinsæll Bergsson Mathús veitingastaður hefur fest sig í sessi sem vinsæll
morgun- og hádegisverðastaður. Stemmningin er góð og maturinn ljúffengur. Mynd | Rut
Fallegur, litríkur og góður matur Það skiptir mig mjög miklu máli hvernig fólk upplifir
matinn og sem betur fer er fólk oftast ánægt, segir Þórir Bergsson.morgun- og hádegis-
verðastaður. Stemmningin er góð og maturinn ljúffengur. Mynd | Rut
Mathús hefur fest sig í sessi
sem staður þar sem hægt er
að fá einfaldan, hollan og góðan mat
á skyndibitatíma. Þjónað er til borð
en jafnframt lagt upp úr því að fólk
þurfi ekki að bíða lengi eftir matn-
um.
Góður matur
í góðu umhverfi
Bergsson Mathús og Bergsson RE eru vinsælir morgun- og hádegisverðarstaðir,
þekktir fyrir einfaldan, hollan og góðan mat en ekki síst þægilegt andrúmsloft.
Unnið í samstarfi við
Bergsson Mathús
Staðirnir eru fallega innrétt-aðir á afslappaðan máta í þeim tilgangi að láta fólki líða vel á meðan það nýt-
ur góðs matar og félagsskapar.
September mánuður verður til-
einkaður heilsunni og mun Bergs-
son RE, í samstarfi við Siggu Völu
sem áður var á Manni Lifandi,
opna morgunbar með grautum,
drykkjum og skotum sem hægt er
að grípa með sér.
„Einfaldur. Hægur. Nær-
andi. Bragðgóður. Árstíðabund-
inn. Beint frá bónda. Eldaður af
ástríðu. Úr góðu hráefni. Sem þú
borðar aftur & aftur. Í góðum fé-
lagsskap. Það er okkar matur.“
Þessi orð mæta gestum Berg-
son Mathús við Templarasund og
segja allt sem segja þarf um þann
metnað og umhyggju sem lögð
er í allt á staðnum, frá innrétting-
um, framkomu starfsfólks til hins
einstaklega ljúffenga matar sem
þar er borinn á borð. Staðurinn er
vinsæll morgunverðarstaður og
opnar klukkan sjö á morgnana.
Mathús er það orð sem eigandi
staðarins, Þórir Bergsson mat-
reiðslumeistari, telur lýsa best
þeirri tegund veitingastaðar sem
staðurinn er. Orðið bjó hann til
þegar hann stofnaði Bergsson
Mathús, það hefur náð fótfestu
og er víða notað í dag.
„Mathús hefur fest sig í sessi
sem staður þar sem hægt er að fá
einfaldan, hollan og góðan mat á
skyndibitatíma. Þjónað er til borð
en jafnframt lagt upp úr því að
fólk þurfi ekki að bíða lengi eftir
matnum,“ segir Þórir. Áhersla er
lögð á gæði og vellíðan þeirra
sem heimsækja staðinn. Matur-
inn er nærandi og bragðgóður og
mikið af grænmeti. Hann höfðar
til allra skilningarvita og er ekki
síst fallegur og litríkur. „Ég geri
miklar kröfur um að halda litnum í
salatinu, hann má alls ekki þynna
út. Brokkólí á að vera vel grænt
og eggaldin á að halda sínum
rústik dökka lit. Þar að auki þarf
að hugsa um litasamsetningar og
form þegar maturinn er borinn
fram. Það skiptir mig mjög miklu
máli hvernig fólk upplifir matinn
og sem betur fer er fólk oftast
ánægt,“ segir Þórir.
Bergsson Mathús hefur til
margra ára boðið upp á súr-
deigsbrauð sem bökuð eru á
staðnum og má segja að það
hafi verið upphafið að súr-
deigsbrauðs-æðinu hér á landi.
Þórir lærði að baka brauðin hjá
sjálfum Chad Robertsson sem
stundum er nefndur brauð-
hvíslarinn og er þekktur fyrir
brauðin sem hann bakar og rek-
ur eitt besta bakarí í Bandaríkj-
unum í San Francisco.
„Áhrifavaldar mínir eru víða
og fylgist ég grannt með matar-
senunni.“
Hollur matur er Þóri hugleik-
inn og í september verður sér-
stakt heilsuátak í Bergsson RE
þegar þar opnar heilsumorgun-
verðarbar í samstarfi við Siggu
Völu sem áður var hjá Manni Lif-
andi. „Á morgunverðarbarnum
verða meðal annars chia-graut-
ar í boði, wheat-grass skot,
engiferskot og fleira sem fólk
getur tekið með sér úr húsi. Þetta
er mjög spennandi samstarf,“
segir Þórir.
Bróðir Bergsson Mathúss er
Bergsson RE á Grandagarði. Það
er hádegisverðarstaður sem
hefur til að bera öll sömu höfuð-
einkenni Bergsson Mathúss, en
sérstök áhersla er lögð á að elda
úr fiski. „Á Bergsson RE finnst
okkur skemmtilegast að elda
fisk, hvað sem er úr fiski, enda
horfum við á fiskinn koma í land
út um gluggann hjá okkur,“ segir
á heimasíðu staðarins. Útsýnið
og staðsetningin er heillandi og
gefst fólki færi á að panta salinn,
ásamt veitingum, fyrir allskonar
veislur, svo sem brúðkaup, afmæli
eða árshátíð. „Veitingastaður-
inn Bergsson RE er ekki opinn á
kvöldin því við viljum geta boðið
fólki að panta staðinn fyrir sér-
stök tilefni.“
LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 2016 11 MATARTÍMINN