Fréttatíminn - 27.08.2016, Síða 56
Askur í hálfa öld
Hefðbundinn, heimilislegur og fjölskylduvænn.
Unnið í samstarfi við Ask
Askur Steikhús á 50 ára afmæli í ár. Hjónin Hauk-ur Ragnarsson og María Jóhannsdóttir hafa rekið
Ask Steikhús síðan 2006 og tóku
þau við góðu búi af fyrri eigend-
um. Askur hefur fest sig í sessi
sem klassískur steikarstaður með
fjölbreyttan matseðil.
„Ég man sjálfur eftir að hafa
hoppað í strætó, komið við á Aski
að kaupa franskar og kokteilsósu
á leiðinni í Laugardalinn að horfa
á fótbolta, þegar ég var smá
polli,“ segir Haukur. Fyrstu árin
var Askur við Suðurlandsbraut 8,
við hliðina á Fálkahúsinu, en flutt-
ist í núverandi húsnæði, Suður-
landsbraut 4a, á 8. áratugnum.
Bernaisesósan heim
Fyrirkomulagið á Aski hefur hald-
ist nokkuð óbreytt gegnum tíðina;
hádegishlaðborð alla virka daga
og steikarhlaðborð á sunnudags-
kvöldum sem hefur verið fastur
punktur hjá mörgum fjölskyldum.
Aðalsmerki Asks er án efa steikta
lambalærið, bernaisesósan og
bakaðar kartöflur. Raunar er það
svo að margir koma á Ask til þess
að taka með sér bernaisesósu
heim þegar verið er að undirbúa
veislu eða grill. „Fólk er að koma
og grípa með sér hálfan eða einn
lítra til að fara með heim.“
Barnvænn og hefðbundinn
„Matseðillinn er mjög hefðbund-
inn hjá okkur og hefur haldist
nánast eins gegnum tíðina, hann
er bara að virka það vel. Við erum
með kótilettur, lambainnralæris-
steik og djúpsteiktan fisk. Fólk
veit að hverju það gengur og við
erum frekar íhaldssöm,“ segir
Haukur. Börn eru mjög velkomin
á Ask og tekið er vel á móti þeim.
„Við heyrum reglulega þegar
fjölskyldur koma að börnin hafi
ekki viljað fara neitt annað,“ segir
Haukur.
Eldra fólk sækir einnig stað-
inn, sumt hvert sem hefur komið
reglulega þessa hálfu öld sem
staðurinn hefur verið starfandi.
„Svo koma heilu stórfjölskyldurn-
ar saman, stórar fjölskyldur sem
koma kannski fast hingað á af-
mælum eða við önnur tækifæri.“
Askur hefur ekki farið varhluta
af aukningu ferðamanna á Íslandi
og þeir koma í sífellt meira mæli
til að gæða sér á hefðbundinni ís-
lenskri steik og öðru góðgæti.
Hinn eini sanniAskur Askurinn hefur verið órjúfanlegur partur af sögu staðarins í 50 ár.
List eftir Línu Rut Stórt listaverk eftir Línu Rut setur svip sinn á innréttingu staðarins og vekjur jafnan mikla athygli bæði innlendra og
erlendra gesta.
Eitthvað fyrir alla Matseðillinn á Aski er fjölbreyttur og hefðbundinn.
LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 201612 MATARTÍMINN