Fréttatíminn - 27.08.2016, Page 58
Unnið í samstarfi við Búrið
Ljúfmetisverslunin Búrið hefur nú verið við Grandagarð í 3 ár en í lok september fagna Búrverjar átta
ára afmælinu sínu. „Við höfum í
þessi átta ár verið að sinna fólki
sem er að hafa gaman saman,“
segir Eirný Sigurðardóttir sem
hefur verið vakin og sofin í heimi
sælkeravara og góðgætis í yfir
áratug.
Vel þjálfað starfsfólk
Í vetur verður boðið upp á við
bót við þá þjónustu sem fyrir er;
ósamsetta ostabakka þar sem
Búrverjar velja það sem þeim
finnst best. „Eitt af því sem við
höfum gert mikið af gegnum tíð
ina eru ostabakkar þar sem fólk
kemur og velur úr borðinu hjá
okkur. Við höfum fundið að sum
um finnst þetta flókið og vilja að
við veljum fyrir það. Með þessari
þjónustu eru Búrverjar í rauninni
bara að setja saman það sem við
myndum gera heima hjá okkur.
Við leggjum mikinn metnað í að
starfsfólkið okkar sé vel þjálf
að og gefi persónulegar ráð
leggingar, við erum í raun bara
að hugsa fyrir fólk. Við erum að
taka næsta skref – sendum fólk
heim með góðgætið og góðu ráð
in,“ segir Eirný en með hráefninu
Himnasending fyrir
ostaunnendur á
hraðferð
Búrverjar senda þig heim með það sem þeim finnst best.
Bakkinn í bitum Dæmi um hvaða hráefni fylgir með í pakkanum
Myndir | Rut
Fullt hús matar Hillurnar svigna undan kræsingum
Búrverjar Viðskiptavinir Búrsins treysta Búrverjum fyrir veisluföngumEirný Búrið verður 8 ára í lok september.
Ætluðu bara
að vera tvö í
rómantíkinni
Gæðin öll í hlutföllum og meðhöndlun
á hráefninu.
Unnið í samstarfi við Eldofninn
Hjónin Ellert Ingimundarson og Eva Karlsdóttir ætluðu að stofna lítið fjölskyldufyrirtæki en
eiga í dag einn vinsælasta pítsu
staðinn í Reykjavík, Eldofninn í
Grímsbæ. „Þetta var bara gamall
draumur, að þegar losnaði um
hjá okkur ætluðum við stofna
lítið fjölskyldufyrirtæki. Bara tvö
hérna í rómantíkinni en þetta hef
ur bara vaxið langt yfir okkur,“
segir Ellert og bætir við að planið
hafi verið að selja um 100 pítsur
á dag en það sé nærri sölunni á
klukkutímanum, kannski tveimur.
Eldofninn sérhæfir sig í þunn
botna eldbökuðum pítsum og
leggur mikinn metnað í sósuna
sem er hægelduð með plómu
tómötum, rauðlauk, hvítlauk og
kryddi.
Ellert og Eva komu ný inn í
veitingabransann þó að Ellert hafi
reyndar fengið eldskírnina í pítsu
bakstri á Eldsmiðjunni í gamla
daga. „Við erum búin að vera að
læra allan tímann og erum að
læra ennþá. Það tók okkur langan
tíma að finna rétta deigið og
við fórum margar krókaleiðir en
það var líklega bara einhver sem
stýrði okkur á réttan stað. Gamlir
pítsu bakarar segja að þetta felist
í húsnæðinu. Hefunin og allur
„próssessinn“ með deigið, það eru
gamlar bábiljur um að þetta sé
allt í húsinu. En þetta er vissulega
allt lifandi.“
Eldofninn virðist hafa hitt
naglann á höfuðið með uppskrift
ir að sósunni og deiginu, það er
eitthvað sem gengur fullkomlega
upp. Ellert vill þó ekki meina að
um leyniuppskrift sé að ræða;
gæðin séu öll í hlutföllum og
meðhöndlun á hráefninu. „Það er
þessi natni sem skiptir svo miklu
máli. Það fer svo mikill tími í alla
þessa væntumþykju í hráefnið.
Fólk kemur ekkert hingað inn og
byrjar bara að baka, allir verða að
vita hvað þeir eru með í höndun
um.“
Eldofninn er ekki stór staður
og oft verður biðin töluverð eftir
borði. „Við þökkum fyrir það að
kúnnarnir eru mjög þolinmóðir.
Við erum með eins mikinn mann
skap og við komum fyrir á þess
um 100 fermetrum. Það gengur
hratt fyrir sig um leið og pláss
fæst.“ Eftir pítsuna er tilvalið að
fá sér góðan kaffibolla en fjöl
skyldan flytur einmitt inn ítalskt
gæðakaffi sem er til sölu í Mela
búðinni og Kjöthöllinni.
En hvað fær Elli yfirbakari sér
á pítsuna? „Það er ein sem varð
til mjög snemma og heitir Elli
pepp sem ég fer alltaf aftur í. Ég
hef alltaf verið mikið fyrir sterkt
þannig að það er auðvitað pepp
eroni og hakkað jalapeno, flestir
eru með jalapeno skífur en við
hökkum það niður og dreifum því
meira eins og kryddi, svo set ég
rauðlauk og papriku sem verður
svakalega sæt og góð. Svo koma
sveppir þar ofan á, þetta er alveg
svakaleg pítsa.“
munu fylgja pörunarráðleggingar
sem hjálpa til við að setja saman
bakkann.
Gæti ekki verið einfaldara
Það sem mun fylgja þessum til
búnu ósamsettu bökkum er allt
sem þarf til þess að byggja upp
fallegan og girnilegan osta
bakka. „Bakkinn í bitum“, eins
og Eirný orðar það; fjórir ostar af
topp tíu vinsældalista Búrsins,
ferskir ávextir, kex eða brauð,
sætmeti og sultmeti og niður
skorið kjöt. Eirný segir erfitt að
áætla nákvæmt innihald pakk
ans hverju sinni enda fari það
eftir því hvað er ferskast og best
á hverjum tíma fyrir sig. Hægt
verður að koma með séróskir
upp að vissu marki en svo er það
bara að treysta Búrverjum – enda
traustsins verðir! „Þú hringir og
pantar, við tökum góðgætið til
og þú stekkur inn til okkar og
sækir, þetta gæti ekki verið ein
faldara.“ Hægt er að panta fyrir í
minnsta lagi 6 manns og verðið á
mann er 2600 krónur, Sé pantað
fyrir 12 eða fleiri keyra Búrverjar
sælgætið heim að dyrum á höf
uðborgarsvæðinu. Öruggast er
að panta daginn áður en sækja
á góðgætið en Eirný segir það
sleppa ef fólk hringir að morgni ef
það ætlar að sækja eftir vinnu.
Vert er að minna á að ný önn
er að hefjast í Ostaskóla Búrsins.
Hann hefur verið starfræktur frá
öðru ári rekstursins en mikið vatn
hefur runnið til sjávar síðan. „Þá
voru kannski bara ég og tve
ir aðrir aðilar inni í búðinni eftir
lokun en núna fara mörg hund
ruð manns gegnum húsið á hverri
önn,“ segir Eirný og bendir á vef
síðuna burid.is ef fólk vill kíkja á
þau námskeið sem framundan eru
en þeirra á meðal er Ostaást 101,
Ostar og vín og Vetrarostar og
yljandi meðlæti.
Það besta í bænum
Tímaritið Grapevine útnefnir bestu veitinga
staðina í Reykjavík
Tímaritið Reykjavík Grapevine út-
nefndi á dögunum það besta sem
er í boði í veitingahúsaflórunni í
höfuðborginni. Grapevine hefur
gert þetta á hverju ári um nokkurt
skeið og niðurstöðurnar gefa því
ágætis mynd af því hvað stendur
upp úr hverju sinni.
Besti veitingastaðurinn, eða The
Best Goddamn Restaurant eins og
flokkurinn kallast, er Snaps við
Óðinstorg. Þetta er fimmta árið
í röð sem Snaps þykir sá besti í
þessum flokki en að þessu sinni
hafnaði Matur og drykkur í öðru
sæti og Apótek í þriðja.
Bestu fjölskyldumáltíðina
færðu á Laundromat Café, besta
sushi-ið er á Fiskmarkaðinum og
besta pítsan fyrirfinnst á nafn-
lausa staðnum á Hverfisgötu 12,
samkvæmt Grapevine.
Þá er Búllan með besta borgar-
ann í bænum en þar á eftir koma
Block Burger og Dirty Burger &
Ribs. Besti grænmetisborgarinn er
hins vegar á Kaffi Vest en græn-
fóðrungar fá sömuleiðis góðan
borgara á Block Burger og Bike
Cave í Skerjafirði.
Besta grænmetisfæðið er á Kaffi
Vinyl, besti tælenski maturinn er
á Ban Thai, þriðja árið í röð, en
Austur-Indíafjelagið er með besta
indverska matinn.
Bestur Snaps er besti veitingastaðurinn í Reykjavík, að mati Reykjavík Grapevine.
Besti borgarinn Á Búllunni fást bestu
borgarar bæjarins.
LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 201614 MATARTÍMINN