Fréttatíminn - 03.09.2016, Blaðsíða 10
10 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 3. september 2016
Streita er oftast
ástæða fyrir forföllum
starfsmanna, slakari
frammistöðu og
afköstum ásamt
neikvæðu andrúmslofti.
Talið er að um 50-
60% allra tapaðra
vinnudaga í ríkjum
Evrópusambandsins
megi tengja við streitu
og vegna andlegrar
vanlíðunar sem
þunglyndis, kvíða,
minnistruflana og
þreytu.
Alþjóða
heilbrigðisstofnunin
spáir því að árið 2020
verði þunglyndi önnur
helsta orsök örorku.
Margir andlega fjarverandi í vinnunni
Streita er ein algengasta
ástæða vinnufjarveru og
kostar samfélagið stórar
upphæðir. Ólafur Þór Æv-
arsson, yfirlæknir á Streitu-
rannsóknarstofnuninni í
Gautaborg (Institutet för
stressmedicin), segir stóran
hlut tapsins einnig koma
til vegna veikindanærveru.
Hann vill aukna umræðu um
vandann.
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Ólafur Þór Ævarsson geðlæknir
hefur eytt stórum hluta starfsævi
sinnar í að vinna á sviði forvarna
og streitu en síðastliðið ár hóf hann
störf sem læknir og vísindamaður
við Streiturannsóknarstofnunina í
Gautborg, þar sem orsakir, eðli og
einkenni streitu eru rannsakaðar.
Stofnunin er rekin í samstarfi við há-
skólann í Gautaborg og segir Ólafur
það forréttindi að fá að kynnast því
sem Svíar eru að gera en á stofnun-
inni starfi mjög færir læknar og vís-
indamenn undir stjórn Ingibjargar
Jónsdóttur prófessors.
60% forfalla má rekja til streitu
Af hverju eru Svíar svona framarlega
í vinnuvernd?
„Ætli það sé ekki af því að þeir eru
búnir að átta sig á því hvað það hlýst
mikill kostnaður af veikindafjar-
veru, bæði fyrir fyrirtækin og sam-
félagið allt. Það er mun kostnaðar-
samara að missa fólk úr vinnu en að
fyrirbyggja streitu með forvörnum,“
„Ég tók á móti manni hér
í morgun, hámenntuðum
prófessor, sem mundi
ekki hvar hann hafði lagt
bílnum.“
ekki vinnufærir. Það er talið að veik-
indanærvera sé jafn kostnaðarsöm
fyrir fyrirtæki og veikindafjarvera,
þar sem framleiðnin er mun minni.“
Er lausnin aldrei að skipta um vinnu?
„Jú, stundum er það niðurstaðan
að fólk hafi ekki burði eða áhuga
til að vera í ákveðinni vinnu. Og þá
er best að skipta. En það er mun-
ur á starfsleiða og andlegri og lík-
amlegri vanlíðan vegna streitu. En
besta leiðin til að fyrirbyggja hvers
kyns vanlíðan er hvíld og endur-
næring því þá eru minni líkur á að
afleiðingar á heilsufar verði alvar-
legri. Svíar leggja mikla áherslu á
vel sé fylgst með líðan starfsfólks
með sálfélagslegri greiningu og að
gripið sé fljótt inn með aðstoð ef líð-
an er ekki góð. Einnig er lögð mik-
il áhersla á gott vinnuumherfi. Því
er vel gætt að því að fólk fái hvíld
í vinnutímanum, taki kaffipásur og
hádegishlé og fari ekki með vinnuna
heim. Mjög mikil áhersla er lögð á
reglulega hreyfingu, en rannsóknir
Streiturannsóknarstöðvarinnar hafa
sýnt að hreyfingin eflir heilastarf-
semina og vinnur gegn neikvæðum
áhrifum streitunnar.“
segir Ólafur en rannsóknir sýna að
allt að 60% forfalla á vinnumarkaði
megi rekja til streitu.
„Stjórnvöld virðast hafa skiln-
ing á þessu því það hefur verið
sett töluvert fjármagn í rannsókn-
ir á streitu og forvarnir. Þar að auki
eru Svíar nýbúnir að endurskoða
vinnuverndarlögin sem eru mun
skýrari en þau íslensku. Nýju lög-
in leggja meiri
áherslu á ábyrgð atvinnuveitanda
og mannauðsstjóra þegar kemur að
heilsu starfsfólksins. Ábyrgðin er
sett á aðrar herðar en bara launþeg-
ans. Mergur málsins er að þetta er
ekki einstaklingsvandamál. Það þarf
auðvitað að sjá um einstaklinginn
en það þarf að lyfta úrvinnslunni
á annað plan og beina athyglinni á
kerfið sem einstak-
lingurinn vinnur í. Vinnuveitandi
þarf að sjá til þess að vinnuaðstæður
séu ekki þess eðlis að þær framkalli
streitu eða vanlíðan.“
Gleymska og þreyta
Hvernig lýsir þessi vanlíðan sér?
„Á Íslandi er talað um að brenna út
en Svíar tala um að keyra í vegginn.
Það er ástand sem margir kannast
við og góð hvíld getur lagað það. En
ástandið getur orðið mun alvarlegra.
Þegar maður er kominn í mikla
vanlíðan vegna streitu og nánast
orðin óvinnufær þá fylgja nánast
alltaf með kvíði og þunglyndi, verkir
og svefntruflanir. En til viðbótar eru
lúmsk einkenni sem óeðlileg þreyta
og orkuleysi, einbeitingarskortur og
gleymska. Ég tók á móti manni hér
í morgun, hámenntuðum prófess-
or, sem mundi ekki hvar hann hafði
lagt bílnum. Hann gleymdi því ekki
í augnablik heldur bara fann hann
ekki bílinn sinn aftur,“ segir Ólafur
og bætir því við að í dag séu flest-
ir vísindamenn sammála um að
grunnstarfsemi heilans truflist við
of mikla streitu. Tengsl hans við
hormónakerfið fari allt úr jafnvægi
og það valdi þessum líkamlegu ein-
kennum.
Veikindanærvera
Ólafur segir nauðsynlegt að fjalla
meira um streitu og veikindafjarvist-
ir á Íslandi. „Það er ekkert sem seg-
ir að staðan á Íslandi sé önnur en í
Svíþjóð og við vitum að veikinda-
fjarvistir eru miklar á Íslandi en Ís-
lendingar hafa átt það til að líta á
streitu sem feimnismál. Streita er
ennþá talin vera veikleiki því við
erum svo miklir víkingar. Það er dá-
lítið fast í okkur að þrýsta á fólk til
að vinna þó það sé í raun óstarfhæft,
sem veldur því að starfsfólk mæt-
ir en er samt andlega fjarverandi.
Streita er ein algengasta ástæða
vinnufjarveru og kostar samfélag-
ið mjög mikið. Veikindanærvera er
nýtt hugtak sem er farið að nota
meira í Svíþjóð og víðar, en það
hjálpar til við að skilja aðstöðu þeirra
einstaklinga sem mæta til vinnu en
eru í raun andlega fjarverandi og alls
KÚNSTIN AÐ NÆRAST
Misvísandi upplýsingar um mataræði og flóra af iðnaðarfram-
leiddum mat getur gert fólki erfitt fyrir í daglegum ákvörðunum
um matarvenjur. Við bjóðum upp á hagnýtan fróðleik í stuttum
erindum fyrir alla með áhuga á heilbrigðum lífsstíl.
Haldið í sal Krabbameinsfélags Íslands, Skógarhlíð 8, þriðjudaginn 6. sept-
ember kl. 17 til 18:15. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir en óskað er
eftir skráningu á krabb@krabb.is.
Samantekt frá Foodlose
ráðstefnunni
Guðmundur F. Jóhannsson, læknir og
skipuleggjandi Foodlose ráðstefnunnar,
fjallar um helstu niðurstöður fyrirlesara
á Foodlose ráðstefnunni sem haldin
var í maí í Hörpu.
Borðar þú með frum-
eða framheilanum?
Lára G. Sigurðardóttir, læknir og
doktor í lýðheilsufræðum og
fræðslustjóri Krabbameinsfélagsins,
fjallar um þá þætti sem stjórna
fæðuinntöku okkar.
Hollir og gómsætir réttir úr eldhúsi Happ í boði fyrir gesti.
Máttur matarins Er fiskur ofurfæða?
Jóhanna Eyrún Torfadóttir, löggiltur
næringarfræðingur og doktor í
lýðheilsuvísindum, fjallar um nýja
skýrslu sem hún vann um heilnæmi
fiskneyslu og áhrifa hennar á heilsu.
Á 21. ÖLDINNI
Apótek framtíðarinnar er að finna
í ísskápnum. Lukka í Happ fjallar um
hvernig við getum haft áhrif á heilsu
okkar og vellíðan með því að velja
gott hráefni til að setja inn fyrir okkar
varir. Hugmyndir og uppskriftir að
hollum og góðum réttum.
Ólafur Þór Ævarsson geðlæknir hefur
síðastliðið ár unnið sem yfirlæknir við
Streiturannsóknarstofnun Gauta-
borgar (Institutet för Stressmedicin).
Ólafur verður með erindi um andlega
fjarveru í starfi á málþinginu „Líður
þér vel í vinnunni?“ sem er um vinnu-
vernd í september. Þar munu Kristina
Glise læknir og prófessor Ingibjörg
Jónsdóttir, yfirmaður Streitustofn-
unarinnar, einnig koma fram og segja
frá nýjustu rannsóknum á streitu; sjá
frekar á www.stress.is