Fréttatíminn - 03.09.2016, Qupperneq 16
16 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 3. september 2016
Sagan af batteríinu sem
sameinaði samfélag
Tölvukerfi í bílum er eflaust góð hug-
mynd. Bara ekki á hjara veraldar.
Nema þar sem úrræðagóðir bænd-
ur, dásamlegur sundlaugarvörður
og skörulegur hafnarstjóri koma til
bjargar.
Fjórar lögðum við af stað eftir
vinnu á föstudegi, þyrstar í ný æv-
intýri. Áfangastaðurinn hafði ver-
ið valinn deginum áður. Á Strandir
skyldi haldið því þar er ekki að-
eins fámennasta samfélag landsins
í kynngimagnaðri náttúrufegurð
sem á sér enga hliðstæðu, fagrir bað-
staðir innan um hvali og refi, heldur
líka fínasti skáli í eigu Ferðafélags
Íslands.
Eftir að hafa keyrt norður í einni
bunu komum við að Norðurfirði í
niðamyrkri og leituðum uppi rautt
hlið. Tilfinningin var óneitanlega
að við værum komnar nákvæmlega
þangað sem við vildum, á hjara ver-
aldar.
Morguninn eftir vorum við sam-
mála um að sjaldan hefðum við sof-
ið jafn vel. Við væran öldunið og
ærandi kyrrð. Við helltum upp á
kaffi og horfðum yfir spegilsléttan
fjörðinn. Sáum fyrir okkur að eft-
ir sundsprett í Krossneslaug skyldi
gengið á næsta fjall þar sem hægt
væri að sjá yfir á Dranga, þaðan yfir í
næsta fjörð þar sem okkar biðu ekki
bara selir heldur líka grindhvalir.
Eftirvæntingin breyttist í von-
brigði á einu augabragði þegar í
ljós kom að við færum ekki hænu-
fet. Bíllinn sýndi ekki vott af lífs-
marki, sama hvað við reyndum.
Hinn dásamlegi Land Rover jeppi
hafði brugðist okkur á ögurstundu.
Vélarbilun eða rafmagnsleysi, hvað
vissum við?
Eftir tveggja tíma vangaveltur,
gúggl, símtöl og beiðnir um vináttu
jeppafróðra manna á Facebook, og
þegar vonbrigðin voru um það bil
að breytast í örvæntingu, birtist
Gulli á dráttarvél. Brosandi blíður
með múgavélina í eftirdragi. Gulli
er bóndinn á næsta bæ og það þarf
ekki margar mínútur með honum
til að átta sig á því að hann er mað-
ur lausna.
Upphófst nú ein sú skemmtileg-
Halla Harðardóttir | Þóra Tómasdóttir | Rut Sigurðardóttir ritstjorn@frettatiminn.is
Tómt liþíum batterí er allt sem þarf til að kynnast öllum íbúum
Norðurfjarðar á einu bretti og gestrisni sem líklega fer í sögubækurnar.
asta atburðarás sem við eigum í okk-
ar minnum. Við sögu komu Björn
bóndi í næstu vík með sína dráttar-
vél og reipi, lífsreyndir sjómenn á
strandveiðum í firðinum sem vissu
grunsamlega margt um bílvíra sem
hægt er að klippa á. Fjárhundur-
inn Kubbur. Skálavörðurinn Arnal-
dur. Hafnarstjórinn Elín og sund-
laugarvörðurinn Davíð. Uppgjöf
bílsins var ekki aðeins okkur heldur
öllu samfélagi fjarðarins hulin ráð-
gáta. Lömuð þjófavörn sökum batt-
erísleysis í lykli var líklegasta orsök-
in fyrir kyrrsetningu okkar á einum
afskekktasta stað landsins. Næsta
Eftir að hafa keyrt norður í einni bunu komum við að
Norðurfirði í niðamyrkri og leituðum uppi rautt hlið.
Tilfinningin var óneitanlega að við værum komnar ná-
kvæmlega þangað sem við vildum, á hjara veraldar.
Ýmis ráð voru reynd til að koma bílnum í lag, þar á meðal að draga hann úr hlaði með traktornum hans Björns
bónda á Melum. Hér má sjá ráðþrota ferðalanga ræða málin við heimamenn yfir rjúkandi kaffibolla. Myndir | Rut
Gulli bóndi í Steinstúni reffilegur við kaggann sinn. Hann skipaði vonlausum
strandaglópunum að taka bílinn sinn eignarnámi og þökk sé honum komumst
við í Krossneslaug.
VÍKURVAGNAR EHF.
Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík
Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is
Setjum undir á staðnum
Dráttarbeisli
undir flestar tegundir bíla
VÍKURVAGNAR EHF.
Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík
Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is
Einnig mikið úrval varahluta
í Ifor Williams og aðrar gerðir af kerrum,
ásamt úrvals viðgerðarþjónustu.
Kerrur
frá Ifor Williams
í öllum stærðum
og útfærslum
VÍKURVAGNAR EHF.
Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík
Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is
Einnig mikið úrval varahluta
í Ifor Williams og aðrar gerðir af kerrum,
ásamt úrvals viðgerðarþjónustu.
Kerrur
frá Ifor Williams
í öllum stærðum
og útfærslum
VÍKURVAGNAR EHF.
Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík
Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is
Úrval af lokuðum farangurskerrum
frá Ifor Williams
Sýningareintak á staðnum.