Fréttatíminn - 03.09.2016, Page 55
Dularfulli
töframaðurinn
RÚV sunnudag kl. 21.40 Houdini
Seinni hluti ævintýramyndar með
Adrian Brody í aðalhlutverki um
dularfulla töframanninn Houdini
og hvernig hann öðlaðist frægð
og frama. Töframaðurinn átti
stormasama ævi og var jafnan í
skrautlegum félagsskap stór-
stjarna, spíritista og annarra and-
ans manna og kvenna.
Seinfeld
Klassík sem eldist hreinlega ekki.
Alltaf fyndið.
House Of Cards
Vel skrifað. Kennslumyndbönd í
því hvernig á að ráðskast með fólk.
Sons Of Anarchy
Desperate Housewives á mótor-
hjólum. Gott drama.
Fawlty Towers
Farsi og fimmaurar á háu leveli.
Arrested Development
Húmor fyrir lengra komna.
Skemmtileg blanda af sit-com og
Mockumentary. Sennilega bestu
grínþættir síðustu 10 ára.
Uppáhalds
sjónvarpsþættirnir
Amk fékk Hannes Friðbjarnar-
son, trommuleikara og fram-
leiðenda, til að segja frá uppá-
halds sjónvarpsþáttunum sí-
num.
Arrested Development og Seinfeld standa upp úr
…sjónvarp19 | amk… LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 2016
Frábær stríðsepík
Spielbergs
Netflix Saving Private Ryan
Eftirminnileg mynd Stevens
Spielberg frá 1998 sem gerist
í innrásinni í Normandí í seinni
heimsstyrjöldinni. Fyrstu 27 mín-
útur myndarinnar eru sérstaklega
eftirminnilegar en þar er árásin
á Omaha-ströndina hinn 6. júní
1944 endurgerð á nákvæman
hátt. Í myndinni segir af liðsfor-
ingjanum John H. Miller, sem Tom
Hanks leikur, og sveit hans (sem
leikin er af Tom Sizemore, Edward
Burns, Barry Pepper, Giovanni
Ribisi, Adam Goldberg og Jer-
emy Davies) sem leita að týndum
fallhlífarhermanni. Það er Matt
Damon sem leikur hermanninn
en hann er einn fjögurra bræðra í
hernum sem enn lifir. Myndin var
tilnefnd til ellefu óskarsverðlauna
og hlaut fimm verðlaun.
Listin að rækta
Hringbraut laugardag kl. 22
Lífið og kryddjurtir með Auði Rafns
Kryddjurtasérfræðingurinn Auður
Rafnsdóttir eys úr viskubrunni sín-
um um ræktun kryddjurta sem sí-
fellt fleiri hafa áhuga á hér á landi.