Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 22.10.2016, Blaðsíða 4

Fréttatíminn - 22.10.2016, Blaðsíða 4
4 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 22. október 2016 Stjórnmál Sænski þingmaður- inn Oscar Sjöstedt er í vand- ræðum eftir að hann sagði frá reynslu sinni í íslensku slátur- húsi í myndbandi sem var lekið úr röðum Svíþjóðardemókrata. Á myndbandinu segir hann frá þýskum vinnufélögum sínum sem spörkuðu í kindaskrokka og kölluðu þá gyðinga. Vinnu- staður Sjöstedts á Íslandi hefur enn ekki fundist. Ingi F. Vilhjálmsson ingi@frettatiminn.is Sænski þingmaðurinn og Svíþjóðar- demókratinn Oscar Sjöstedt fékk að öllum líkindum vinnu í sláturhúsi á Íslandi árið 2009 í gegnum fjóra þýska þjóðernissinna sem hann þekkti. Þetta segir fyrrverandi samstarfsmaður hans í Svíþjóðar- demókrötum. Myndband af Sjö- stedt, þar sem hann segir frá með því með gamansömum hætti hvern- ig fjórir þýskir nasistar sem hann starfaði með í sláturhúsi á Íslandi spörkuðu í dauðar kindur og köll- uðu þær gyðinga, hefur vakið mikla athygli í Svíþjóð. Myndbandið þykir vera enn ein sönnunin fyrir tengslum Svíþjóðar- demókrata við öfgafulla þjóðern- isshyggju, gyðinga- og útlendinga- hatur auk þess sem það sýni fram á samskipti þeirra við öfgafull öfl í öðrum Evrópulöndum. Flokks- forysta Svíþjóðardemókrata hefur þurft að svara fyrir myndbandið og sagði formaður flokksins, Jimmie Åkeson, meðal annars að það væri „óheppilegt“. Daniel Assai, fyrrverandi með- limur og þátttakandi í flokksstarfi Svíþjóðardemókrata, segir í við- tali við Fréttatímann að hann telji að Sjöstedt hafi þekkt Þjóðverjana fjóra sem hann starfaði með á Ís- landi og að hann hafi farið til Ís- lands til að vinna í sláturhúsinu af því hann var ekki með vinnu á þess- um tíma. „Þetta var engin tilviljun miðað við þau samtöl sem ég átti við hann. Ég skildi hann þannig að hann hefði verið í samskiptum við Þjóðverjana áður en hann fór þar sem hann sagði okkur að hann ætti þýska vini á Íslandi. […] Hann seg- ir núna að hann hafi ekki þekkt þá fyrir en það er kjaftæði,“ segir Assai sem er sá sem opinberaði mynd- bandið af Sjöstedt. Assai, sem var þátttakandi í starfi Svíþjóðardemókrata frá 2007 til 2013 og sat meðal annars í stjórn flokksins í Stokkhólmi, þekkti Sjö- stedt vel á þessum tíma. „Hann sagði frá því að hann hefði slátrað 31.400 kindum á Íslandi.“ Hann segir að Oscar hafi komið til baka til Svíþjóðar frá Íslandi og með- al annars unnið hjá sænsku flutn- ingafyrirtæki í kjölfarið af því hann átti erfitt með að fá annað starf. Síð- an hafi hann sest á þing fyrir Sví- þjóðardemókrata árið 2014. „Sjö- stedt fékk ekki að fara á þing fyrr en árið 2014 vegna þess að hann var með bakgrunn innan hreyfingar nýnasista.“ Fréttatíminn hefur síðustu dag leitað að sláturhúsinu á Íslandi þar sem Oscar Sjöstedt kann að hafa unnið. Sjálfur hefur Sjöstedt ekki viljað svara spurningum Frétta- tímans um málið en blaðið hef- ur ítrekað haft samband við hann símleiðis, í tölvupóstum og SMS- -skilaboðum. Leit Fréttatímans að vinnustað Sjöstedts á Íslandi hefur hins vegar ekki borið árangur en blaðið hefur spurst fyrir um málið hjá yfirmönnum í sláturhúsunum á Selfossi, Sauðárkróki, Vopnafirði, Hvammstanga, Húsavík, Blönduósi, Kópaskeri og Höfn í Hornafirði. Þá hefur Fréttatíminn heimildir fyrir því að sænskir fjölmiðlar hafi einnig leitað eftir vinnustað Sjöstedts í sláturhúsum Íslands. „Hann segir núna að hann hafi ekki þekkt þá fyrir en það er kjaftæði.“ Leitin að rót sænsks hneykslismáls á Íslandi Eitt af því sem skiptir máli í umræðunni um störf Oscars Sjöstedts í óþekktu íslensku sláturhúsi árið 2009 er hvernig hann fékk starfið og hvort það var í gegnum fjóra þýska nasista sem hann þekkti áður, líkt og Daniel Assai ýjar að. 29771 Berjast fyrir kofa sem stenst ekki öryggiskröfur Samfélag „Við byggðum þennan kofa með styrkjum frá borginni. Svo kom heilbrigðisfulltrúi og sagði þetta einhverskonar dauða- gildru,“ segir Guðmundur Albert Harðarson, verkfræðingur og formaður íbúasamtaka Vestur- bæjar. Samtökin fengu 300 þúsund króna styrk frá Reykjavíkurborg og ákváðu að nýta féð til þess að byggja upp leik- svæðið í Nýlendugarði, eða Hólaróló, eins og svæðið er oft kallað. Samtökin hafa mætt töluverðri andstöðu við uppbygginguna, en formaðurinn og foreldrar í hverfinu eru orðin langþreytt á stappinu við eftirlitsaðila. Foreldrar og nágrannar komu saman síðsumars og byggðu upp svæðið, meðal annars svalir sem voru byggðar á sandkassa sem fyrir var. „Heilbrigðisfulltrúi kom svo og tók út svalirnar og niðurstaðan var sú að þær væru hættulegar,“ útskýrir Guð- mundur Albert. Hann segir að hann og aðrir foreldrar hafi þá ákveðið að breyta svölunum í kofa til þess að tryggja öryggi allra. Nokkru síðar kemur eftirlitið aft- ur og þá voru gerðar athugasemd- ir við kofann og krafa gerð um að hann yrði fjarlægður umsvifalaust þar sem hann stæðist ekki örygg- iskröfur. Guðmundur segir kofann varla hættulegan og bendir á að það megi finna hættulegri leiktæki víða um borg. Hann er ósáttur við þung- lamalegt eftirlit borgarinnar sem hef- ur áður fjarlægt körfuboltahring af svæðinu. Guðmundur segir það lýjandi fyr- ir íbúa að reyna að auðga umhverf- ið sitt en ávallt mæta, að því er sem þau vilja meina, smásmugulegum athugasemdum eftirlitsaðila, en hópurinn fundaði í gær með lands- lagsarkitekt á vegum borgarinnar um málið. | vg Hér má sjá kofann hættulega og dæmi nú hver fyrir sig. Verður 86 ára þegar launajafnrétti er náð Sonja Ýr er 34 ára í dag, en verður orðin 86 ára þegar jafnrétti næst, ef þróunin verður samskonar og síðustu ellefu ár. Jafnréttismál „Það verður geng- ið út klukkan 14.38,“ segir Sonja Ýr Þorbergsdóttir, lögmaður hjá BSRS og ein af þeim sem koma að skipulagi þegar konur leggja niður störf á mánudaginn næsta. Konur munu leggja nið- ur störf á slaginu 14.38 næsta mánudag til þess að mótmæla launamuni kynjanna. Síðast, eða árið 2010, var gengið út klukkan 14.25. „Á ellefu árum höfum við grætt heilan hálftíma,“ segir Sonja sem þykir barátt- an ganga heldur hægt fyrir sinn smekk. „Þetta þýðir að við höfum þokast áfram um þrjár mínútur á ellefu árum. Með sama áframhaldi verðum við búin að jafna munin árið 2068,“ útskýr- ir Sonja, sem er 34 ára í dag. Hún verður því orðin 86 ára þegar jafn- rétti er náð, að því gefnu að þróunin verði stöðug. „Við hvetjum konur til þess að fjölmenna á Austurvöll klukk- an 15.15 á mánudaginn, og eins hvetjum við karlmenn til þess að axla ábyrgð á heimilisstörfum og öðru þennan tíma,“ segir Sonja Ýr. | vg Gústaf vann við sér- verkefni hjá súlustað Stjórnmál „Manni líst satt að segja ekki á það í hvaða farveg stjórnmálin er komin,“ segir Gústaf Níelsson, en hann var sakaður um tengsl við súlu- staði, vændi og jafnvel mansal af Jens G. Jenssyni, oddvita Íslensku þjóðfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi. Ummælin lét Jens falla í forystu- sætinu á RÚV. Gústaf hefur raunar tengsl við súlustaði en hann starfaði í sérverkefnum hjá súlustaðnum Bó- hem snemma á síðasta áratug. „Það var allt fullkomlega lög- legt,“ segir Gústaf sem telur það þó algjört aukaatriði. Hann segir um- mæli oddvitans alvarleg og að það sé sérkennilegt að RÚV hafi leyft þeim að birtast, hafi viðtalið ekki verið í beinni útsendingu. „Ég læt auðvitað lögmenn fara yfir málið,“ segir hann, en for- maður Íslensku þjóðfylkingarinn- ar, hefur hótað að kæra Gústaf fyrir stuld á kjörgögnum. | vg Gústaf Níelsson seg- ist ekki hugnast það hvert stjórnmála- umræðan er að stefna. Prima ehf sennilega úr leik Útboð Reykjavíkurborgar hefur hert reglur um reynslu til fyrirtækja sem mega byggja nýjan skóla í Úlfarsárdal. Prima ehf, sem átti óvenju- lega lágt boð í verkið, er því líklega úr leik. Tilboð verktakans Prima ehf í útboði Reykjavíkur um byggingu skóla í Úlfarsárdal, þykir óvenjulega lágt, eins og fram kom í Fréttatímanum í vikunni. Boðið var 79% af kostnaðaráætlun. Þá var sagt frá því að Prima ehf hefði samið um vinnu við nýtt Icelandair-hótel fyrir 59% af kostnað- aráætlun. Samkeppnisaðilar saka fyrirtækið um óeðlileg undirboð. Ámundi Brynjólfsson, skrifstofustjóri framkvæmdasviðs Reykjavíkurborgar, segir að formgalli hafi verið á útboðinu um skólabygginguna og því hafi þurft að hafna öllum boðum, framlengja umsóknarfrestinn og kalla eftir nýjum tilboðum. Í nýja útboðinu gerir borgin nú hertari kröfur til fyrirtækjanna um að hafa reynslu af slíkum framkvæmdum. „Vegna umfangs verksins þurftum við að auglýsa það á evrópska efnahagssvæðinu líka. Við ákváðum að skerpa á reglum um reynslu fyrirtækjanna sem taka þátt. Það er eðlilegt því verkið er umfangsmikið, dýrt og flókið og krefst reynslu.“ Þar sem Prima ehf hefur ekki verið með starfsemi á undanförnum árum er ekki ólíklegt að það sé úr leik í kappi um verkið. | þt Ámundi Brynjólfsson segir eðlilegt að gera kröfur um reynslu. Létt og skemmtileg spænskunámskeið Verða haldin í Stórholti 18. Kennarar eru Jakobína Davíðsdóttir og Carmen Nogales. Gestakennari með fyrirlestur um Spán og spænska menningu eru Kristinn R. Ólafsson. Meiri áhersla er lögð á tal og minni á málfræði. Námskeiðinu lýkur svo með tapaskvöldi. Námskeiðin standa í 4 vikur. Boðið er uppá byrjendanámskeið og framhaldsnámskeið. Byrjendakúrs: Mánudaga og miðvikudaga 10:00 - 11:30 Mánudaga og miðvikudaga 13:00 - 14:30 Mánudaga og miðvikudaga 17:30 - 19:00 Mánudaga og miðvikudaga 19:15 - 20:45 Þriðjudaga og fimmtudaga 19:15 - 20:45 Framhaldsnámskeið II: Þriðjudaga og fimmtudaga 10:00 - 11:30 Þriðjudaga og fimmtudaga 17:30 - 19:00 Framhaldsnámskeið III: Þriðjudaga og fimmtudaga 13:00 - 14:30 Námskeiðin hefjast 24 og 25 október. Verð á mann 25.500.- Upplýsingar í síma 698 5033 eða spaenskuskolinnhablame@gmail.com Spænskuskólinn Háblame
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.