Fréttatíminn - 22.10.2016, Síða 14
14 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 22. október 2016
Krafan um breytingar er arf-leifð Búsáhaldabyltingar-innar og hún er raunveru-leg. Gömlu f lokkarnir
reyndu að leggja snörur sínar fyrir
mótmælendur en þeir lögðu aldrei
raunverulega eyrun við kröfum
fólksins. Og þeir voru samtaka um að
virða að vettugi niðurstöður þjóðar-
atkvæðagreiðslu um að leggja til
grundvallar tillögur Stjórnlagaráðs
að nýrri stjórnarskrá.
Nú er komið að skuldadögum.
Átta árum eftir hrunið eru nær all-
ir gömlu flokkarnir klofnir í herðar
niður. Sjálfstæðisflokkurinn reynir
að bíta af sér Viðreisn og Íslensku
Þjóðfylkinguna. Framsóknarflokk-
urinn er að tærast upp af innanmeini
og þar talast menn við í þurrlegum
textaskilaboðum. Inngróin tánögl á
Vinstri grænum er farin í sérframboð
undir merkjum Alþýðufylkingarinn-
ar. Samfylkingin er nánast í andaslitr-
unum og niðurlæging hennar alger.
Samfylkingin og Sjálfstæðisflokk-
urinn voru turnarnir tveir í stjórn-
málum Davíðstímans með um tvo
þriðju fylgisins. Núna hafa þeir sam-
anlagt um fjórðung fylgisins.
Í Sjálfstæðisflokknum hafa menn
bent á Davíð Oddsson og hirðina í
kringum hann sem stökkti frjáls-
lyndari armi flokksins á flótta.
En hvert fóru jafnaðarmennirnir?
Sighvatur Björgvinsson, fyrrver-
andi forystumaður í Samfylkingunni,
segir að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
hafi tekið drauminn um Samfylkingu
með sér í hrunstjórnina og þaðan hafi
hann ekki átt afturkvæmt.
Það má til sanns vegar færa. Síðan
þá hafa logað eldar inni í Samfylk-
ingunni. Þeir sem voru ánægðastir
í því sambandi hafa lagt fæð á þá
sem reyndu að fjarlægjast Sjálfstæð-
isflokkinn eftir hrun. Þannig hef-
ur uppgjörið við hrunið farið fram
í kviku Samfylkingarinnar og skilið
eftir ógróin sár.
Þetta kristallaðist í árás Ingi-
bjargar Sólrúnar á Oddnýju Harðar-
dóttur eftir að hún varð formaður
flokksins. Henni var gert ljóst að hún
myndi ekki sitja á friðarstóli þar sem
Ingibjörg Sólrún ætti persónulegra
harma að hefna út af Landsdóms-
málinu. Árni Páll hafði verið óska-
barn hennar og annarra sem sátu í
hrunstjórninni. Meðan hann var for-
maður, var andrúmsloftið kæfandi af
óþoli þeirra sem höfðu verið vinstra
megin við hann í flokknum og langaði
að bregða fyrir hann fæti.
Það þarf öfluga særingamenn til
að skapa vinnufrið innan flokks sem
þannig er ástatt um.
Frjálslyndir og Evrópusinnaðir
Sjálfstæðismenn endurguldu tilfinn-
ingar hægri krata innan Samfylk-
ingarinnar og afkvæmi þeirra, Við-
reisn, ber svipmót beggja foreldra
sinna. Í Bjarta framtíð fór hinsvegar
ungt fólk sem vildi skjótari frama inn-
an Samfylkingarinnar. Það fékk sér
nýja kennitölu en eftir situr Samfylk-
ingin sköllótt og smáð, með syndir
hægri mannanna í hrunstjórninni í
fanginu og líka það sem miður fór í
vinstri stjórninni eftir hrun.
En hvert fóru þá jafnaðarmennirn-
ir?
Hinir raunverulegu jafnaðarmenn
sitja með sárt ennið inni í rústum
Samfylkingarinnar nema þeir sem
forðuðu sér yfir til Pírata og í VG.
Telur þú að stjórnarflokkarnir
verðskuldi annað tækifæri?
Þannig hefði spurning Pírata um
kosningabandalag stjórnarandstöð-
unnar allt eins getað hljómað. Björt
framtíð og Viðreisn gátu ekki svarað
þessu alfarið með nei eða já.
Það er erfitt að lesa úr stefnumál-
um þessara flokka að þar séu ein-
hverjir sérstakir jafnaðarmenn á
ferðinni. Til að mynda er stefnt að
áframhaldandi einkavæðingu undir
pilsfaldi ríkisins inni í heilbrigðiskerf-
inu og lagt upp með að almenning-
ur borgi fyrir þjónustuna, bæði með
sköttum sínum og líka með þjónustu-
gjöldum.
Samkvæmt nýrri hagspá ASÍ er
ójöfnuður að aukast í hagsveiflunni
og ekki langt frá því að ná þeim hæð-
um sem hann fór í árið 2007.
Miðju-hægristjórn sem virðist vera
draumur Viðreisnar er sama upp-
skrift af stjórnarfari og í hruninu.
Þannig á að reka út Framsóknar-
flokkinn en vinna með Bjartri framtíð
og Sjálfstæðisflokknum sem myndi
væntanlega fallast á þjóðaratkvæða-
greiðslu um aðild að ESB.
Kjósendur eru ekki á sama máli.
Meðan Viðreisn dreymir um nýja
hrunstjórn eru Píratar með forystu í
íslenskum stjórnmálum. Þeir eru skil-
getið afkvæmi búsahaldabyltingar-
innar sem sama stjórnarfar gat af sér.
Björt framtíð, Vinstri græn, Pírat-
ar og Samfylking geta myndað rík-
isstjórn á grunni jafnaðarstefnu,
samkvæmt könnun Félagsvís-
indastofnunar sem birtist í Morgun-
blaðinu í gær.
Stjórnarandstaða með Sjálfstæð-
isflokki og Framsóknarflokki yrði þá
hlutskipti Viðreisnar.
Þá er flokkurinn sama sem dauður.
Ef Viðreisn er alvara með því að
verða afl breytinga, tekur flokkurinn
í útrétta hönd stjórnarandstöðunn-
ar. Miðju-hægristjórn er ekki það
sem þjóðin þarf mest á að halda. Og
ekki það sem meirihluti kjósenda vill.
Slík stjórn mun ekki hindra áfram-
haldandi ójöfnuð í samfélaginu.
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
BÚSÁHALDA-
STJÓRN Í
KORTUNUM
Köllunarklettsvegi 1, 104 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is
Útgefandi: Gunnar Smári Egilsson. Ritstjórar: Gunnar Smári Egilsson og Þóra Tómasdóttir.
Fréttastjóri: Þóra Kristín Ásgeirsdóttir. Ritstjórnarfulltrúi: Höskuldur Daði Magnússon. Dreifing: Póstdreifing. Framkvæmdastjóri
og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson. Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 83.000 eintökum í Landsprenti.
Bæta þarf aðgengi að þjóðmenningu
Í hljóðritasafni Seðlabankans leynast
margir dýrgripir frá liðnum hrunum.
SKUGGALEGAR
S Ö G U R
Ragnheiður hlaut
Íslensku barnabóka-
verðlaunin 2015 fyrir
Arftakann og Bóksala-
verðlaunin í flokki
táningabóka
INNBUNDNAR VIKA 41
www.forlagid.is | Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39