Fréttatíminn - 22.10.2016, Síða 30
Iðunn Garðarsdóttir
27 ára. Vinstri græn.
Fyrsta vinnan mín var barnapöss-
un þegar ég var 12 ára en ég vann
með skóla og á sum rin. Það var
feikinóg að gera, segir Iðunn en
aðspurð segist hún aldrei hafa
verið atvinnulaus.
Hver er stefna Vinstri grænna varð-
andi atvinnuleysi unga fólksins og
lág laun?
Ég held að það skipti máli að fjár-
festa í rannsóknum og nýsköpun.
Í því samhengi skiptir máli að efla
menntakerfið sem er grundvöllur
þess að nýsköpun geti blómstrað.
Háskólamenntaðir eiga erfiðara
en áður með að finna störf við
sitt hæfi og við þurfum að vinna
lausnir við því vandamáli. Það er
til dæmis hægt að gera með því
að efla iðnnám og nám í skapandi
greinum.
Staða ungs fólks er lakari en hún
var fyrir þrjátíu árum og það á erf-
iðara með að kaupa eigið húsnæði
til dæmis. Liður í því að bæta
stöðu ungs fólks er að tryggja
að lægstu laun dugi fyrir fram
færslu. Unga fólkið er oftar með
lægri tekjur en eldra fólk. Laun
fólks á bilinu 25 - 39 ára hafa
lækkað frá aldamótum en laun
eldra fólks hafa hækkað. Vinstri
græn hafa réttlæti og jöfnuð að
leiðarljósi. Ungt fólk á
Íslandi á að geta haft
það gott.
30 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 22. október 2016
Hamingjumolinn
„Hamingjan er að forðast leiðin-
legt fólk. Að forðast leiðinlegt
fólk er alltaf fyrirhafnarinnar
virði, jafnvel þó að þú þurfir
að flýja út að ystu mörkum
alheimsins. Því hamingjan er að
líða vel í eigin skinni. Og leiðin-
legt fólk er þröngsýnt, sjálfhverft
og kæfandi og rembist við að
gera heiminn líka þröngan og
kæfandi. Forðastu
leiðinlegt fólk –
þá er hamingjan
þín.“
Sverrir Norland,
rithöfundur
Páll Marís Pálsson
19 ára. Framsókn.
Ég hef aldrei verið atvinnulaus
en ég er í menntaskóla.
Fyrsta vinnan mín var í kjötiðn
í Mosfellsbæ þegar ég var 14 ára.
Stjúppabbi minn frá Tælandi hefur
verið að vinna þar í mörg ár og ég
fékk hana í gegnum hann. Ég var
þar í eitt sumar.
Fólk á mínum aldri er ekki at-
vinnulaust, það fá allir vinnu á
veitingastöðum, við túrisma eða
verkamannavinnu. Ástandið hef-
ur breyst snögglega á fáum árum.
Varðandi eldri kynslóðir, fólk á
bilinu 25 til 39 ára, þá er forgangs-
verkefni hjá Framsókn að fjölda
störfum enn frekar í landinu en
við höfum fjölgað störfum um
15.000 á síðustu árum. Við viljum
ekki síst fjölgað sérfræðistörfum
en þar gegna lítil og meðalstór fyr-
irtæki lykilhlutverki. Ríkið á fyrst
og fremst að skapa hagstæðari um-
gjörð um atvinnulífið.
Ég er líka mikill talsmaður
starfsnáms þar sem við brúum
bilið milli skóla og vinnu. Það held
ég að geti hjálpað fólk mikið þegar
það fer á vinnumarkað.
Daníel Freyr
28 ára. Húmanistaflokkurinn.
Í fyrsta skipti sem ég fór að
vinna var ég 17 ára í pökkunar
þjónustu fyrir herinn á Vell
inum. Stuttu eftir það fór ég að
vinna á sjó. Ég hef einu sinni verið
atvinnulaus en þá hætti ég að
vinna á sjónum í mánuð og var á
bótum. Það var erfiður tími sem
var samt mikilvægur að taka út. Ég
fór aftur á sjó.
Það er til fullt af fólki sem nær
ekki að mennta sig eða kemur af
slæmum heimilum þar sem lífið
snýst um að komast beint á vinnu-
markað og hanga á leigumarkaði
þar sem það á rétt svo á og í sig
og sína.
Húmanistaflokkurinn vill inn-
leiða borgaralaun á Íslandi þannig
að allir sem ná 18 ára aldri fái
fasta upphæð á mánuði, 300.000
krónur, sem rennur bara beint
til þeirra. Pælingin er ekki sú að
fólk hætti að vinna heldur vinni
við eitthvað skemmtilegt og sé
meira með fjölskyldu sinni og
vinum. Fæstir vinna vinnu sem
þeim finnst skemmtileg. Eru bara í
henni launanna vegna.
Það á nú ekkert endilega við um
mig, ég er ánægður á sjónum, en
ég er að leysa af sem skipstjóri á
sjó. Eina við mína vinnu er að ég
er lengi í burtu. Stundum hugsa
ég auðvitað til baka um hvað hefði
verið gaman að læra en sé svo sem
ekki eftir neinu. Maður var upp-
reisnarseggur þegar maður var
yngri.
Hvað segja ungu
frambjóðendurnir?
Kosningar til Alþingis fara fram í lok mánaðar en alls eru tólf flokkar
í framboði. Finna má reynslubolta í röðum frambjóðenda en líka ný
andlit. Fréttatíminn tekur púlsinn á ungu frambjóðendunum fram að
kosningum og heyrir hvað þeir hafa að segja um málin. Við fáum að heyra
hvað Húmanistaflokkurinn, Vinstri græn og Framsókn hafa að segja um
atvinnumál ungs fólks.
Birna Guðmundsdóttir
birna@frettatiminn.is
Daníel
Freyr segir
Húmanista
vilja innleiða
borgaralaun.
Páll Marís segir fólk
á sínum aldri ekki
vera atvinnulaust.
Mynd | Rut Fyrsta vinna
Iðunnar var
barnapöss-
un. Mynd
| Rut
Á endursölusíðunni bland.is má
finna margan dýrgripinn og oft
gera skínandi góð kaup. Starfs-
menn Fréttatímans eru sér-
staklega skotnir í þessum flotta
grip sem kom upp úr krafsinu á
síðunni.
Það er mikilvægt að ná að slaka á af
og til, losna við áhyggjur og kúpla
sig rækilega út. Og hvað er betra til
þess en hágæða djúpslökunartank-
ur sem nú fæst keyptur á bland.is?
Þar er hægt að láta sig fljóta í róleg-
heitum og láta allar áhyggjur heims-
ins líða úr sér.
Tankurinn er úr áli og klædd-
ur að innan með einangrunarefni.
Upphitun er í gegnum heitt vatn
undir botni en tvær hljóðlausar vift-
ur sjá um loftræstingu. Með fylgja
125 kíló af Epsom salti út í flotvatnið
en það er gott fyrir húðina og gefur
hraustlegt og gott útlit.
Einhver kann að halda að slíkir
einangrunartankar nýjar græjur, en
svo er aldeilis ekki. Það var Banda-
ríkjamaðurinn John C. Lilly sem
þróaði tæknina árið 1954. Hann fór
hins vegar flatt á því að blanda flot-
inu við neyslu ofskynjunarlyfsins
LSD, sem þá var reyndar löglegt í
Bandaríkjunum. Fréttatíminn mæl-
ir ekki með neinum slíkum viðbót-
um við hina fljótandi slökunarver-
öld tanksins.
Af myndinni á bland.is að dæma
er líklegt að núverandi eigandi
tanksins hafi ekki nýtt hann mikið
að undanförnu og kannski má bjóða
í gripinn. Uppsett verð er litlar 700
þúsund krónur, sem einhverjum
kann að þykja vera slatti af pen-
ingum. Fyrir þá aura má til dæmis
kaupa sér BMW 320 stationbíl ár-
gerð 2002, en hann er þó líklega
töluvert meira stressandi eign. | gt
Bland vikunnar:
Þín einka flot-veröld
Ekkert pláss
lengur fyrir
lundabúðum
og hótelum
Markaður fyrir unga listamenn
sem eiga hvergi heima.
„Ungir listamenn búa enn í for-
eldrahúsum og eru með vinnustofur
fimm saman,“ segir Óli Gumm, einn
skipuleggjenda menningarveislunn-
ar Sour Cream í Íslenska sjávarklas-
anum í dag. Þar verður hægt að fara
á listamarkað og hlýða á teknó-tón-
list en gamanið hefst klukkan tvö og
verður fram á nótt.
„Ég er sjálfur myndlistarmaður og
hef verið með nokkra búðir niðri í
bæ. Nakta apann og Gallerí Gallera.
En eins og staðan núna er leiga svo
há í miðbænum að það er erfitt fyrir
ungt fólk að sýna sitt dót og koma
sér á framfæri. Leigan er óviðráðan-
lega há og það er vöntun á stað fyrir
unga listamenn og hönnuði til að
sýna sitt dót og sjá aðra. Það er búið
að loka öllum fínum hönnunarbúð-
um og breyta í staðinn í lundabúðir.“
„Við hugsum um markaðinn í
Sjávarklasanum sem stökkpall fyrir
ungt skapandi fólk. Það er betra að
halda markað þar sem leigan er lág
og allir listamenn geta komið saman
og kynnst. Þá myndast einhver sena
sem er mjög mikilvæg,“ segir Óli en
yfir 20 listamenn og hönnuðir verða
með eitthvað til að selja á markaðn-
um.
„Miðbærinn er að færa út kví-
arnar og menningarlífið má finna
úti á Granda. Þar er mikið af
skemmtilegum hlutum í gangi eins
og fusion-eldhús, hönnun, list og
„Micro-brewerie“. Reyndar var
Reykjavíkurborg að selja húsnæði til
einhverra verktaka hér úti á Granda
þannig 40 listamenn misstu stúdíóin
sín fyrir stuttu. Sem er mjög slæmt.
Sjáum hvernig fer með Granda.“ | bg
Óli Gumm býr til stökkpall fyrir unga
listamenn. Mynd | Rut
Eldur inni í þér?
20 mg, 14 og 28 stk. – fáanlegt án lyfseðils í næsta apóteki
Omeprazol Actavis
– Við brjóstsviða og súru bakflæði
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
/
A
c
ta
vi
s
5
1
1
1
4
0
Notkunarsvið: Omeprazol Actavis inniheldur virka efnið ómeprazól sem tilheyrir flokki lyfja sem kallast „prótónpumpuhemlar“ og verka með því að draga
úr sýruframleiðslu magans. Omeprazol Actavis er ætlað til notkunar hjá fullorðnum til skammtímameðferðar við einkennum bakflæðis (t.d. brjóstsviða og
nábít). Frábendingar: Ofnæmi fyrir ómeprazóli eða öðru innihaldsefni lyfsins. Ofnæmi fyrir lyfjum sem innihalda aðra prótónpumpuhemla. Ef þú tekur lyf
sem inniheldur nelfinavír (við HIV sýkingu). Varúð: Ekki taka Omeprazol Actavis lengur en í 14 daga án samráðs við lækni. Ef einkennin minnka ekki, eða
ef einkennin versna, skaltu ræða við lækninn. Omeprazol Actavis getur dulið einkenni annarra sjúkdóma. Því skaltu ræða strax við lækninn ef eitthvað af
eftirfarandi kemur fyrir þig áður en þú tekur eða meðan þú tekur Omeprazol Actavis: Ef þú léttist að ástæðulausu og átt í erfðleikum með að kyngja, færð
magaverk eða meltingartruflanir, kastar upp mat eða blóði, hefur svartar hægðir (blóðlitaðar hægðir), ert með alvarlegan eða langvarandi niðurgang
(ómeprazól hefur verið tengt við lítillega aukningu á smitandi niðurgangi), hefur verið með magasár eða gengist undir skurðaðgerð á meltingarfærum, ert
á samfelldri meðferð við einkennum meltingartruflana eða brjóstsviða í 4 vikur eða lengur, þjáist stöðugt af meltingartruflunum eða brjóstsviða í 4 vikur
eða lengur, ert með gulu eða alvarlegan lifrarsjúkdóm, ert eldri en 55 ára með ný eða nýlega breytt einkenni. Sjúklingar skulu ekki nota ómeprazól í
fyrirbyggjandi tilgangi. Omeprazol Actavis inniheldur súkrósa. Meðganga og brjóstagjöf: Segðu lækninum frá því ef þú ert barnshafandi eða ert að reyna
að verða barnshafandi áður en þú tekur Omeprazol Actavis. Læknirinn mun ákveða hvort óhætt sé fyrir þig að nota Omeprazol Actavis ef þú ert
barnshafandi eða með barn á brjósti. Skömmtun: Sýruþolnu hylkin má taka fyrir máltíð (t.d. morgunmat eða kvöldmat) eða á fastandi maga. Mælt er með
að hylkin séu tekin inn að morgni dags. Venjulegur skammtur er eitt 20 mg hylki eða tvö 10 mg hylki einu sinni á sólarhring í 14 daga. Hafðu samband við
lækninn ef einkennin hafa ekki horfið á þessum tíma. Nauðsynlegt getur verið að taka hylkin í 2–3 daga samfellt áður en einkennin réna. Hylkin á að gleypa
með glasi af vökva. Ekki má tyggja eða mylja hylkin. Aukaverkanir: Hafðu samband við lækni strax ef eftirfarandi einkenni koma fram: Öndun verður skyndi-
lega hvæsandi, þroti í vörum, tungu og hálsi eða líkama, útbrot, yfirlið eða kyngingarörðugleikar (alvarleg ofnæmisviðbrögð). Roði í húð með blöðrum og
húðflögnun. Einnig getur verið um að ræða verulega blöðrumyndun og blæðingar í vörum, augum, munni, nefi og kynfærum. Þetta getur verið „Stevens-
Johnsons heilkenni“ eða „eitrunardrep í húðþekju“. Gul húð, dökkt þvag og þreyta sem geta verið einkenni lifrarsjúkdóms. Algengar aukaverkanir: Höfuð-
verkur. Áhrif á maga eða þarma (niðurgangur, magaverkur, hægðatregða, vindgangur). Ógleði eða uppköst. Markaðsleyfishafi: Actavis Group PTC ehf.
Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Lesið vandlega leiðbeiningar sem fylgja lyfinu. Nóvember 2015.