Fréttatíminn - 22.10.2016, Síða 38
Áttu í vandræðum með sjálfstraustið og viltu reyna að byggja það upp? Það gerist auðvitað ekki á einni
nóttu en hægt og rólega getur
þú lært að breyta hegðun þinni
þannig að hún hafi jákvæð áhrif
á sjálfstraustið. Hér eru fimm ráð
sem vert er að hafa í huga viljirðu
bæta sjálfstraustið.
1. Lærðu að segja nei og
stattu við það
Flestir eru með langan lista af ým-
iskonar erindum og verkefnum
sem þeir þurfa að sinna, bæði fyrir
sig og aðra. Ef þér finnst sem verið
sé að hlaða of mörgum verkefnum
á þig þá geturðu sagt nei. Og þá er
mikilvægt að standa við það. Sum
verkefni eru kannski erfið og þú
þarft hjálp við þau, ekki hika við
að biðja um þessa hjálp.
Það er ekki hollt að taka að sér
verkefni sem þú veist að þú ræður
ekki við, andlega eða líkamlega,
og það getur haft neikvæð áhrif á
sjálfstraust þitt að færast of mikið
í fang.
Þekktu þín takmörk, það dregur
ekki úr verðleikum þínum, held-
ur sýnir fram á að þú þekkir þig
vel og veist hvað þú ert fær um að
framkvæma. Það ber merki um
sjálfstraust.
Þekktu þín takmörk Það er merki um styrkleika að geta sagt nei og þekkja sín takmörk.
Fimm ráð til að bæta
sjálfstraustið
Sjálfstraust verður ekki bætt á einni nóttu en við getum reynt að
breyta þeirri hegðun sem við höfum tileinkað okkur.
2. Gríptu tækifærin
Það er alltaf gott fyrir sjálfstraustið
að grípa tækifæri þar sem þú veist
að þú getur látið ljós þitt skína.
Verkefni sem þú átt auðvelt með
að leysa getur nefnilega verið öðr-
um mjög erfitt úrlausnar. Leggðu
áherslu að rækta tvo eða þrjá
hæfileika þína og nýttu þá alltaf
þegar færi gefst. Þetta eykur ör-
yggi þitt og sjálfstraust.
3. Ekki notfæra þér aðra
Ef þú hefur komið þér upp þeim
hvimleiða ávana að notfæra þær
annað fólk er líklegt að sjálfstraust
þitt sé ekki gott. Þess vegna þarftu
að hætta því. Það er nefnilega
mikill munur á því að notfæra sér
aðra og fá hjálp frá öðrum. Í síð-
arnefnda er jákvætt og nauðsyn-
legt oft á tíðum. Til að öðlast gott
sjálfstraust er mikilvægt að bera
virðingu fyrir öðrum og alls ekki
notfæra sér góðmennsku eða
hjálpsemi fólks, eða svíkja það
með einhverjum hætti, þér í hag.
4. Vertu þú sjálf/ur
Ef þú setur upp grímu sem sýnir
þig hamingjusamari eða sterkari
en þú ert í raun og veru, þá verður
erfiðara fyrir þig að greina raun-
verulegar tilfinningar þínar frá
látalátum. Það er merki um styrk-
leika að geta sýnt fólki hvernig þér
raunverulega líður. Það auðveld-
ar þér að tala um hlutina og sýnir
öðrum að þú berð virðingu fyrir
tilfinningum þínum. Auðvitað
þurfum við stundum að setja upp
grímu í vissum aðstæðum, en þá
þurfum við líka að kunna að fella
grímuna þegar það á við.
5. Elskaðu sjálfa/n þig
Öll gerumst við einhvern tíma sek
um að hugsa neikvæðar hugsan-
ir um okkur sjálf. En sumir gera
þetta oftar en aðrir og eiga erfitt
með að komast út úr sjálfsniður-
rifi. Það þarf ekki endilega að
kæfa þessar neikvæðu hugsanir í
fæðingu til að öðlast betra sjálfs-
traust, heldur getur verið gott
að skoða og skilja hvaðan þess-
ar hugsanir koma. Það er gott að
vera meðvitaður um veikleika sína
en ekki dæma þig fyrir þá. Til að
öðlast betra sjálfstraust er gott að
vinna í veikleikum sínum en leggja
áherslu á að rækta hæfileika sína.
…heilsa 6 | amk… LAUGARDAGUR 22. OKTÓBER 2016
Netlu-, túnfífla- og birkilaufstöflur
örva brennslu og meltingu og eru
bjúglosandi. Sérstaklega er mælt
með vörunni til að hreinsa líkamann.
Colonic Plus
Kehonpuhdistaja
www.birkiaska.is
www.birkiaska.is
Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði
vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar
starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar
efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum,
dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox).
Birkilaufstöflur
Michelsen_200x151_M116400GV_NEWSP_LOGO_ICEL_0816.indd 1 30.08.16 15:46