Fréttatíminn - 22.10.2016, Síða 43
„Ég horfi töluvert á sjónvarpið, en
helst geri ég það á föstudags- eða
laugardagskvöldum þegar ekkert
annað skemmtilegra er í boði. Sunnu-
dagar eru samt helstu dagarnir til að
horfa á sjónvarpið enda „náttfata/
badhairday“ dagur, samkvæmt lög-
um. Þá er gott að rúlla yfir nokkra
þætti í einu, ég horfi voða lítið á kvik-
myndir heima hjá mér. Best er þegar
ég get rúllað yfir heila seríu í einu.
Stranger Things er dæmi um seríu
sem er nauðsyn að rúlla yfir í einu
lagi, ég ætlaði rétt að kíkja á einn eða
tvo fyrstu þættina um daginn áður en
ég færi í partí og svo á skrallið í 101.
En vissi ekki fyrr en ég var búin með
alla seríuna og löngu komið fram yfir
miðnætti.
Friends eru þættir sem má alltaf
horfa á og það skiptir engu máli
hvaða þætti skellt er í, ég þarf ekkert
að horfa á þá í röð. Alltaf hægt að
hlæja með þessum sex vinum manns.
Núna er ég helst að horfa á
þættina sem er nýbúið að frumsýna
vestanhafs og til að nefna nokkra;
Designated Survivor með Kiefer
Sutherland í hlutverki forseta Banda-
ríkjanna (getur hann ekki tekið að sér
djobbið í alvörunni?), Impastor um
glæpamann sem þykist vera samkyn-
heigður prestur, Notorious um
framleiðslu á vinsælum fréttaþætti,
Pitch um fyrstu stelpuna sem leikur í
úrvalsdeild hafnaboltans, Westworld
um skemmtigarð með róbótum og
Timeless um tímaflakk og baráttu við
glæpamann. Það er allavega ljóst að
það er nóg framboð af fínum sjón-
varpsþáttum og ef að einhver er að
leita að sófakartöflu í fullt starf þá er
ég til.“
Sófakartaflan
Ragna Gestsdóttir,
blaðamaður á Séð og Heyrt
„Ef einhvern vantar sófakartöflu í fullt starf þá er ég til“
Heimsækir allar
gömlu ástkonurnar
RÚV laugardag kl. 21.25
Visnuð blóm
Broken Flowers er gamanmynd
á mannlegum nótum um hinn
hlédræga Don sem dag einn fær
nafnlaust bréf sem inniheldur
þær upplýsingar að hann eigi son.
Með aðstoð vinar leggur Don upp
í ferðalag þar sem hann ætlar að
heimsækja allar ástkonur for-
tíðar í leit að syninum. Aðalhlut-
verk: Bill Murray, Jessica Lange
og Sharon Stone. Leikstjórn: Jim
Jarmusch.
Martin á slóðum
lemúrsins
RÚV mánudag kl. 20.05
Síðasta vígi lemúrsins
Leikarinn Martin Clunes ferðast
að Indlandshafi og kynnir sér það
sem virðist vera síðustu heim-
kynni lemúrsins og hvað þyrfti til
að bjarga tilveru þeirra. Clunes er
landsmönnum að góðu kunnur í
hlutverki Martins læknis en sýnir
þarna á sér aðra hlið í áhugaverð-
um þætti.
Heill forseta vorum,
Kiefer Sutherland
ABC Designated Survivor
Kiefer Sutherland er ekkert í
neinu stoðhlutverki hér, hann er
ekki að vernda forsetann lengur
eins og hann gerði í 24. Nei, nú er
hann sjálfur í hlutverki forsetans
og tekst alveg fáránlega vel á
við það. Auðvitað er hann enginn
venjulegur forseti. Hann er hús-
næðismálaráðherra sem er settur
í embætti þegar forsetinn og öll
ríkisstjórnin lætur lífið í sprengju-
árás. Okkar maður veit ekki að sú
árás er bara byrjunin á því sem
koma skal. Þættirnir eru sýndir á
ABC og það er búið að sýna fjóra
af 22.
Gott að glápa Rögnu þykir langbest að geta horft á heila sjónvarpsþáttaseríu í einu.
t
ht.is
7 VERSLANIR UM LAND ALLT
HAFNARGÖTU 90 REYKJANESBÆ S: 414 1740 • AUSTURVEGI 34 SELFOSSI S: 414 1745 • GARÐARSBRAUT 18A HÚSAVÍK S: 464 1600 • GLERÁRTORGI AKUREYRI S: 460 3380 • KAUPVANGI 6 EGILSSTÖÐUM S: 414 1735 • ÞJÓÐBRAUT 1 AKRANESI S: 431-3333 • SUÐURLANDSBRAUT 26 REYKJAVÍK S: 569 1500
SJÓNVÖRP
Þú hefur ekkert séð
fyrr en þú hefur séð það með
Ambilight
Allt að
endurgreiðsla
af keyptum
Philips Ambilight
sjónvörpum
25.000 kr.
Gildir frá 14. október til 10. desember árið 2016
af Philips 7000 series Ambilight sjónvörpum.
49" – 7.500 kr.
55" – 15.000 kr.
65" eða 75" – 25.000 kr.
VAXTALAUSAR RAÐGREIÐSLUR
TIL ALLT AÐ 12 MÁNAÐA
…sjónvarp11 | amk… LAUGARDAGUR 22. OKTÓBER 2016