Fréttatíminn

Issue

Fréttatíminn - 22.10.2016, Page 51

Fréttatíminn - 22.10.2016, Page 51
Hreindýrasteik með gljáðum skalottlauk, kóngssveppum og villisveppamauksósu fyrir 4 4 x 200 g hreindýrasteikur salt og nýmalaður pipar 2 msk. olía 30 g þurrkaðir villisveppir, malað- ir í kaffikvörn eða matvinnsluvél 1 dl portvín 1/2 dl brandí 2 1/2 dl rjómi 1/2 msk. nautakjötskraftur sósujafnari Kryddið hreindýrasteikur með salti og pipar og steikið í olíu á vel heitri pönnu í 2 mínútur á hvorri hlið. Takið steikurnar af pönnunni og setjið í 180°C heitan ofn í 5-7 mínútur. Setjið sveppamulning á sömu pönnu ásamt portvíni og brandíi og sjóðið vínið niður um 3/4. Bætið rjóma og kjötkrafti í sósuna og þykkið til með sósu- jafnara. Smakkið til með salti og pipar. Gljáður skalottlaukur: 8-12 skalottlaukar 1/2 l vatn 2 msk. olía 4 msk. sykur 3 timjangreinar 2 lárviðarlauf 2 msk. balsamedik 1 dl rauðvín salt og pipar Setjið skalottlauk og vatn saman í pott, þannig að rétt fljóti yfir laukinn. Kveikið undir en takið pottinn af hellunni um leið og suð- an kemur upp. Skrælið þá lauk- inn og steikið í olíu á pönnu þar til hann er orðinn fallega brúnn. Bræðið sykur á pönnu og látið hann brúnast. Bætið timjangrein- um, lárviðarlaufum, balsamediki, rauðvíni, salti og pipar á pönnuna og sjóðið vökvann niður um 3/4. Kóngssveppir: 4-6 kóngssveppir, skornir í báta 1-2 msk. smjör salt og nýmalaður pipar Steikið sveppi upp úr smjöri á vel heitri pönnu í 2-3 mínútur og kryddið með salti og pipar. 1 laxaflak, u.þ.b. 1 kg 2 msk. þurrkuð hvannarfræ, steytt 2 msk. anísfræ, steytt 2 msk. dillfræ, steytt 2 msk. fenníkufræ, steytt 2 msk. salt 1 msk. sykur Þerrið laxaflakið vel og legg- ið í fat. Blandið kryddi, salti og sykri saman og stráið yfir laxinn. Leggið plastfilmu yfir og geymið í kæli í 48 tíma. Skafið þá megnið af kryddinu af laxinum og skerið hann í fallegar sneiðar. Berið fram með sinnepssósunni, ristuðu brauði og salati. Sinnepssósa: ½ dl Dijon sinnep ½ dl sætt sinnep ½ dl púðursykur eða hunang ½ dl olía ½ tsk. anísfræ, steytt ½ tsk. hvannarfræ, steytt ½ tsk. fenníkufræ, steytt ½ tsk. dillfræ, steytt Setjið allt saman í skál og blandið vel saman. Dill er vissulega vinsælasta kryddið þegar kemur að því að grafa lax en þó má ekki gleyma öðrum kryddjurtum og krydd- tegundum. Einu hráefnin sem þurfa alltaf að vera í graflax- blöndunni eru saltið og sykurinn. Hvannar- og anísgrafinn lax með sinnepssósu forréttur fyrir 10 LAUGARDAGUR 22. OKTÓBER 2016 7 MATARTÍMINN „Mér finnst ótrúlega gam- an í stangveiðinni að elda fiskinn á bakk- anum, hrámarínera hann á bakkanum. Þetta er líka hægt að gera í skotveiði- nni, taka með sér heitreykingarkassa.“ Eftir að bækurnar okkar Heilsuréttir fjölskyldunnar og Nýir heilsuréttir komu út kom í ljós að fólk hefur því miður ekki alltaf tíma til þess að elda næringar- ríkan mat frá grunni eins og það vildi gera, m.a. til þess að forðast aukaefni og of mikinn sykur. Þannig að fljótlega varð okkar næsta verkefni að búa til heilsurétti án aukaefna, viðbætts sykurs, eins og maturinn væri í raun matreiddur í eld- húsinu heima, en samt hægt að kaupa tilbúna úti í búð. Nú eru komnir tveir nýir réttir frá okkur, Grænmetispottréttur með viðbættu Omega-3 og Fiskibollur með viðbættu Omega-3. Bragðgóðir réttir, fullir af þarflegum næringarefnum. Bestu kveðjur, Berglind og Siggi.

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.