Fréttatíminn - 22.10.2016, Side 56
LAUGARDAGUR 22. OKTÓBER 201612 MATARTÍMINN
Lebowskiborgari Bestu hamborgarar i heim, vilja sumir meina
Toppið þetta! White Russian með Cocoa Puffsi -
hvernig getur það klikkað?
„The Dude“ er sáttur
Rétti andinn á Lebowski Bar.
Unnið í Samstarfi við Lebowski Bar
Litrík og glaðleg innan-hússhönnunin á Lebowski bar getur kætt hvaða fýlu-púka sem er og afslapp-
að andrúmsloftið og „feel-good“
tónlistin lætur alla komast í kósí
gír. Kokkteilarnir eru þekktir
fyrir gott bragð og frumleika og
maturinn er ekta „comfort-food“
sem gleður líkama og sál. Að
sjálfsögðu er dásamlegur White
Russian á drykkjarseðlinum –
„The Dude“ hefði orðið stoltur af
honum.
Allskonar fólk sækir Lebowski
bar heim, frá 20 ára og upp úr.
Ávallt er mikið um að vera; „happy
hour“ daglega þar sem er 2 fyrir 1
af drykkjum og þegar mikið liggur
við í boltanum er hann sýndur á 5
Mt.
Toppið þetta! White Russian með Coco Puffsi – hvernig getur það klikkað?
Lebowskiborgari Hamborgararnir á Lebowski eru ekki af þessum heimi, segja gárungar.
risaskjám. Eftir miðnætti er dans-
gólfið pakkað, plötusnúðar lyfta
kvöldunum upp á æðra stig.
Hvar er borgarinn, Lebowski?
En víkjum aðeins að borgaran-
um. Þeir eru búnir til úr 150 g af
nautakjöti og settir saman með
metnaðarfullu hráefni s.s. chili-
-maríneruðu beikoni, hungangs-
gljáðu beikoni, karamellíseruð-
um lauk og japönsku majónesi.
Jack Daniels BBQ sósan kemur
líka sterk inn. Borgari mánaðar-
ins kemur alltaf á óvart og margir
leggja leið sína á Lebowski bar
um leið og heiðursborgari mánað-
arins kemur á seðilinn. Þau sem
fúlsa við nautakjötinu geta fengið
frábæran kjúklingaborgara og
þau sem fúlsa alfarið við kjöti
geta pantað „The Stranger“ –
grænmetisborgara sem mestu
kjötætur hafa heillast af. Einnig er
hægt að hugsa smærra og fara í
laukhringina eða fylltan jalapeno
með bjórnum.
Morgunverður meistaranna
Drykkjarseðillinn hefur vak-
ið verðskuldaða athygli, allt frá
jarðarberjainnblásnum „pink-
-russian“ yfir í morgunverð
meistaranna; White Russian sem
er toppaður með Coco-Puffsi.
Getur eiginlega ekki klikkað. Le-
bowski býður líka upp á vegan
útgáfu af White Russian þannig
að allir fái eitthvað fyrir sinn snúð
auk mjólkurhristinga sem sumir
hverjir eru göróttir – og jafnvel
göldróttir, ekki síst eftir fjörugt
kvöldið áður.