Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 16.12.2016, Blaðsíða 14

Fréttatíminn - 16.12.2016, Blaðsíða 14
14 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 16. desember 2016 „Ég var einhvern veginn alltaf í vinnunni. En hérna, þótt það sé brjálað að gera og mikið álag, hugsa ég ekki um vinnuna þegar ég geng út af vinnustaðnum. Launin eru sambærileg og mér finnst þau alveg sanngjörn fyrir vinnuna sem ég er að vinna núna.“ Myndir | Rut Erla Sigurlaug Sigurðardóttir ritstjorn@frettatiminn.is Anna Lára er grunnskóla-kennari og sagði frá því í viðtali við Fréttatím-ann í vor að það gengi tæplega upp fyrir hana að starfa sem kennari í bænum ver- andi einstæð þriggja barna móðir. Endar náðu ekki saman þrátt fyr- ir þrjú aukastörf, en hún prjónaði meðal annars vettlinga til að safna upp í Spánarferð til að vera við út- skrift dóttur sinnar í sumar. Anna Lára fékk vægast sagt sterk við- brögð við frásögn sinni í vor, meðal annars holskeflu pantana af vett- lingum. Hún var að setja síðasta parið í póst í vikunni. Að skipta um líf „Það er mjög erfitt að rífa sig svona upp og í rauninni ekki bara skipta um starfsvettvang heldur um líf. Ég ætlaði að þrauka áfram í kennslunni en fékk boð um að taka við þessu starfi á meðan kona sem tengist mér færi í fæðingarorlof. Ég var tvístíg- andi fyrst og þetta var ekki auðveld ákvörðun. Ég á tvö börn í bænum og var alls ekki viss um að Dagur, 14 ára, vildi fara með mér til Víkur. En svo var hann bara rosalega spenntur og við kýldum á þetta. Hann á tvö ár eftir í grunnskóla og við stefnum á að klára það hér. Hann er ákveðinn í að læra kokkinn í Menntaskólanum í Kópavogi, svo við tökum stöðuna á ný eftir tvö ár. Skólastjórinn minn í Hafnarfirði tók reyndar ekki í mál að leyfa mér að hætta svo ég er í ársleyfi frá störfum þar, en við sjáum bara hvernig þetta fer allt.“ Hér á ég afgang „Lífið er allt miklu léttara og ein- faldara. Mér tókst ekki að láta dæm- ið ganga upp fyrir sunnan þrátt fyrir að skulda ekki neitt og vinna þrjú störf með kennarastarfinu. En hérna á ég afgang! Það er vissulega færra sem glepur en ég sakna einsk- is, nema barnanna auðvitað.“ Anna Lára fer tvisvar til þrisvar sinnum í mánuði í bæinn til að hitta eldri börnin sem eru 18 og 25 ára. „Já, ég á gamlan skrjóð og keyri á milli. Mér finnst erfiðast að vera frá þeim, þótt þau séu nánast orðin fullorðin. Ég bara verð að hitta þau reglulega.“ Virkur þátttakandi í samfélaginu Anna Lára er á leigumarkaðnum og alvön að flytja svo það var í sjálfu Anna Lára Pálsdóttir hætti að kenna í vor og finnst lífið léttara eftir að hún flutti til Víkur í Mýrdal og gerðist gestamóttökustjóri á hóteli. Hún gat ekki lengur framfleytt sér og börnum sínum á kennaralaunum. Lífið er léttara eftir að ég hætti að kenna sér ekki erfitt að gera það aftur. Hún seldi mest af búslóðinni til að koma dótinu fyrir í 45 fermetra bíl- skúr sem þau mæðgin kalla Kleinu- kot. Þau una sér vel á nýja heimil- inu. „Það er gott að vera hérna. Ég var búin að reikna með bakslagi hjá syninum, að þetta væri nú kannski ekki eins spennandi eft- ir tvo mánuði en það hefur ekki komið. Það var svo vel tekið á móti honum í skólanum og þetta er fal- legt og krúttlegt samfélag. Dagur blómstrar hér. Ég finn það núna hvað þetta er gott og stresslaust líf. Maður verður meiri þátttakandi í svona minna samfélagi en ég þekki smáþorpstilfinninguna vel, verandi Rangæingur, fædd og uppalin rétt hjá Hellu. Ég er mikið náttúrubarn og það eru forréttindi að njóta nátt- úrunnar á milli vakta í vinnunni. Svo er ég búin að skrá mig í björg- unarsveitina og fara á eitt námskeið á vegum hennar og mæta á einn kvenfélagsfund. Ég bíð spennt eftir því að vera tekin formlega inn! Það er ekki nóg fyrir mig að fara bara í vinnuna og heim að prjóna.“ Kennarar eiga meiri virðingu skilið Anna Lára er fegin að vera hætt að kenna þótt hún sakni nemend- anna og vinnufélaganna. „Ég sakna margs úr kennarastarfinu en það hefur gefið mér mikið. Ég finn Anna Lára sinnti þremur aukastörfum með kennarastarfinu en náði ekki endum saman. Nú er hún flutt til Víkur í Mýrdal og finnst hún hafa það betra við að vinna á hóteli. það núna hvað ég er orðin þreytt á kjarabaráttu kennara. Hún hef- ur staðið yfir allan minn starfsfer- il og ég sé ekki að það sé að fara að breytast. Ég fylgist vel með en maður verður svo þreyttur á þessu kjarabaráttuumhverfi. Að þurfa alltaf að vera að réttlæta starfið sitt. Mér finnst ávallt svo lítið gert úr fagmennsku kennara, bæði af yf- irvöldum menntamála í landinu og almenningi. Það er mikill skortur á virðingu gagnvart starfinu. Það er svo margt í starfsumhverfinu sem ég er fegin að vera laus undan. Mér finnst þessi miðstýring í mennta- málum vera búin að drepa niður allt sem heitir sköpun og starfsgleði hjá mér sem kennara. Munurinn á nýja starfinu og kennslunni er sá að þegar ég var að kenna var ég alltaf með hugann við alls kyns verkefni sem ég þurfti að leysa og sum þeirra tóku mikinn toll af mér. Ég var oft jafnvel and- vaka að hugsa um hvernig ég gæti hjálpað barni með náms- eða sam- skiptaörðugleika, vandamál tengd heimili eða jafnvel grun um ofbeldi. Lausar stundir nýtti ég einnig til að viða að mér kennsluhugmyndum eða gúggla eitthvað sniðugt til að dýpka námsefnið sem verið var að vinna með. Ég var einhvern veginn alltaf í vinnunni. En hérna, þótt það sé brjálað að gera og mikið álag, hugsa ég ekki um vinnuna þegar ég geng út af vinnustaðnum. Launin eru sambærileg og mér finnst þau alveg sanngjörn fyrir vinnuna sem ég er að vinna núna. En þau eru alls ekki sanngjörn fyrir kennarastarfið og allt það álag sem því fylgir. Þegar ég var að byrja að kenna sagði ég stundum í gríni að ég hefði efni á að vera kennari því maður- inn minn var vélstjóri til sjós. Þetta er bara sorgleg staðreynd í dag. Ég er fráskilin og hef ekki efni á því að vera kennari lengur. Þú getur ekki verið einstæð móðir í kennarastarf- inu, það gengur ekki upp. Nema kannski úti á landi þar sem fríðindi í formi húsnæðis geta fylgt. Ég gæti kannski farið að kenna aftur í litlum sveitaskóla, en það væri útilokað á leigumarkaðnum á höfuðborgar- svæðinu.“ Kósíjól á náttfötunum Anna Lára er nú búin að vera í fimm mánuði í Vík og finnur sig heima. Hún er augljóslega ánægð með þá ákvörðun að taka lífið í sínar hend- ur og hafa freistað þess að bæta lífs- gæði sín og barnanna. Hún hlakk- ar til jólanna og getur loks haldið eilítið áhyggjulausari jól en í mörg undanfarin ár. Þau verða þó ekki haldin í Kleinukoti heldur í sumar- bústað með vinkonu hennar, eins og hefð er orðin. „Síðustu 5 ár höf- um ég og vinkona mín, sem er líka einstæð, verið í sumarbústað um jólin. Við erum á náttfötunum öll jólin og förum í heita pottinn og eldum góðan mat. Krakkarnir eru alltaf jafn spenntir fyrir þessu. Við leigjum okkur bústaði hér og þar. Við erum svo öll í eins náttfötum. Í fyrra voru það röndótt flónelsnátt- föt en það verður deluxe útgáfan núna, satínsnáttföt með blúndum og slaufum, beint frá Kína. Jóla- myndin er alltaf voðalega kósí.“ „Ég sakna margs úr kennarastarfinu en það hefur gefið mér mikið. Ég finn það núna hvað ég er orðin þreytt á kjarabar- áttu kennara.“ Advania er með allan pakkann advania.is/jol Bluetooth heyrnartól Brainwavs Blu-200 verð: 7.990 kr. Hagkvæm og vönduð fartölva Dell Vostro 3559 - i5 Skylake verð: 95.990 kr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.