Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 16.12.2016, Blaðsíða 18

Fréttatíminn - 16.12.2016, Blaðsíða 18
18 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 16. desember 2016 Er Rússland nýi besti vinurinn? Það kom mörgum á óvart þegar Trump tilkynnti um nýjan utanrík- isráðherra Bandaríkjanna, Rex Til- lerson. Olíuforstjóra, sem er vinur og viðskiptafélagi Vladimir Pútins Rússlandsforseta. Fyrir um þrem- ur árum veitti sjálfur Pútin hon- um vináttuorðu Rússlands, sem er æðsta orða sem útlendingur getur fengið í Rússlandi. Rex Tillerson er núverandi for- stjóri Exxon Mobil, sem er eitt stærsta olíufyrirtæki heims og hef- ur nýverið lokið við vel heppnað- ar boranir í Síberíu í samstarfi við Rússa – með sérstaka undanþágu frá viðskiptabanni Bandaríkjanna í vasanum. Viðskiptabannið var sett á eftir að Rússar réðust inn í Úkra- ínu árið 2014 og hefur bannið verið Tillerson þyrnir í augum. Hugmyndir Trumps sem hann viðraði ítrekað í kosningabarátt- unni, varðandi mögulega þörf á að endurskoða veru Bandaríkj- anna í NATO, hafa ekki fengið mikla umræðu eftir kosningar. En nýjar ráðningar Trumps hafa orðið til þess að menn velta því alvarlega fyrir sér hvort um sé að ræða stefnubreytingu að yfirlögðu ráði sem snúi að því að byggja við- skiptalega og pólitíska brú yfir til Rússlands. Án efa munu NATO- -ríkin, sem eru flest landfræðilega nær Rússum, ekki taka þessum vendingum þegjandi og hljóða- laust. Þessi ríki standa flest sam- eiginlega að viðskiptabanni á Rússa. Ógnandi hegðun Rússa á Krímskaga, til viðbótar við síend- urtekin brot á flughelgi og sjóhelgi ríkjanna í kringum Rússland, hafa valdið því að mikil tortryggni ríkir í garð Pútins og félaga. Við þetta bættist svo ný skýrsla bandarísku leyniþjónustunnar þar sem fram kemur að þeir telja sig hafa sannanir fyrir því að Rússar hafi staðið að baki tölvuþrjótun- um sem brutu sér leið inn í tölvu- póstkerfi Demókrataflokksins og starfsmanna kosningabaráttu Hillary Clinton. En tölvupóstlekar frá Wikileaks þóttu afar neikvæð- ir fyrir kosningabaráttu Clintons og segir leyniþjónustan að Rúss- ar hafi með þessu verið að tryggja kjör Trumps í forsetaembættið. Afskipti erlendra aðila og mögu- leg áhrif þeirra á kosningarnar hafa vakið hörð viðbrögð. Kald- hæðni örlaganna er auðvitað sú að sögulega hafa Bandaríkin margoft haft áhrif á kosningar í öðrum ríkj- um með einum eða öðrum hætti. En sú óvissa og spenna sem óút- reiknanleg hegðun Trumps veldur og heldur okkur öllum uppteknum af daglegum uppátækjum hans, gera það að verkum að á meðan geta hann og hans skósveinar teygt viðskiptaklær sínar yfir gjörvallan heiminn óáreittir. Þessa vikuna virðist Trump hafa það í hyggju að búa til nýja stöðu á hinu landfræðilega valdataf li heimsins. Hvort heldur sem er út- hugsuð langtímastefna eða bara hending eftir flipp vikunnar, þá virðist það hlutskipti heimsins alls að sætta sig við orðinn hlut eða – byrja að berja hausnum í vegginn með nágrannadrengjunum mín- um. Í nýrri skýrslu bandarísku leyniþjónustunnar kemur fram að þeir telja sig hafa sannanir fyrir því að Rússar hafi staðið að baki tölvuþrjótunum sem brutu sér leið inní tölvupóstkerfi Demókrataflokksins og starfsmanna kosningabaráttu Hillary Clinton. Fyrir um þremur árum veitti Pútin Tillerson vináttuorðu Rússlands, sem er æðsta orða sem útlendingur getur fengið í Rússlandi. Hugmyndir Trumps sem hann viðraði ítrekað í kosningabaráttunni, varð- andi mögulega þörf á að endurskoða veru Banda- ríkjanna í NATO, hafa ekki fengið mikla umræðu eftir kosningar. En nýjar ráðningar Trumps hafa orðið til þess að menn velta því alvarlega fyrir sér hvort um sé að ræða stefnubreytingu að yfir- lögðu ráði sem snúi að því að byggja viðskiptalega og pólitíska brú yfir til Rússlands. Nánar á hafnarordur.is Opið laugardag og sunnudag frá kl. 12-17 ÁRÍÐANDI INNKÖLLUN VNR: 94990137 PLASTFLASKA 1L PEN BLUE WWW.BYKO.IS/INNKÖLLUN 7. dec 2016 VIGTIG TILBAGEKALDELSE SodaStream karboneringsflasker med synligt blåt skær og med udløbsdato 04/2020 trykt på dem SodaStream er blevet opmærksom på, at et begrænset antal af karboneringsflasker identificeret ved deres blålige skær OG bærende et opvaskemaskine sikker symbol OG bærende en udløbsdato 04/2020 har risiko for at fejle under karboneringsproces og er derfor ikke sikre at bruge (se billedet nedenfor, hvordan du identificerer disse flasker). Produktet har EAN-kode 7290011930226. De berørte flasker er solgt i perioden april-december 2016. Som en sikkerhedsforanstaltning, beder SodaStream forbrugere, der har købt de berørte flasker om ikke at bruge dem, og i stedet for at returnere dem til købsstedet eller til SodaStream for en fuld refusion eller udskiftning. SodaStream bestræber sig på at levere produkter af den bedste kvalitet til sine brugere og undskylder ulejligheden, dette kan have forårsaget. For yderligere oplysninger, kan du kontakte vores kundeservice på følgende nummer: Denmark - +45 43 600 609 eller info@sodastream.dk Aðeins er verið að innkalla vöru sem er með síðasta notkunar- dag 04/2020 og var keypt á tímabilinu apíl-desember 2016. Flaskan þekkist frá öðrum Sodastream flöskum á því að hún er með bláleitt yfirbragð og er með merki sem leyfir að hún sé þrifin í uppþvottavél. (Sjá mynd) Ástæða innkölluninnar er hætta á bilun þegar kolsýrugas er sett í flöskuna og því er flaskan ekki örugg í notkun. Nánari upplýsingar á þjónustuborði í næstu BYKO verslun eða í tölvupósti byko@byko.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.