Fréttatíminn - 16.12.2016, Blaðsíða 30
Mynd | Hari
30 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 16. desember 2016
Aðdragandi jólahátíðarinnar er
í föstum skorðum í Langholts-
kirkju. Árni Heiðar Karlsson, sem
tók við stöðu organista, kórstjóra
og listræns stjórnanda Langholts-
sóknar af Jóni heitnum Stefáns-
syni, hefur í nógu að snúast þessa
dagana. Eitt af því er að setja sig
inn í hefðir jólanna.
Guðni Tómasson
gudni@frettatiminn.is
„Hátíðin leggst vel í mig og þessi
annasami tími er mjög skemmti-
legur,“ segir Árni Heiðar Karlsson.
„Stúlknakórarnir okkar eru að
syngja með Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands á jólatónleikum um helgina
og svo eru Jólasöngvarnir í kirkj-
unni fastur liður í stafinu hjá okk-
ur. Þeir verða sungnir um helgina.“
Tónleikahald undir heitinu
Jólasöngvar á sér 39 ára sögu í
Langholtskirkju. „Þetta má rekja
allt aftur til þess tíma þegar verið
var að byggja kirkjuna. Þá sátu gest-
ir dúðaðir í úlpunum sínum því það
var kalt í kirkjunni og brugðið á það
ráð að bjóða upp á rjúkandi heitt
súkkulaði í hléi til að hlýja þeim.
Súkkulaðið hefur haldist en gestirn-
ir eru komnir úr úlpum, húfum og
treflum. Annars er þetta allt fast
mótað, til dæmis koma sömu fjöl-
skyldurnar ár eftir ár og vilja helst
sitja á sama stað í kirkjunni.“
Söngskráin er líka í nokkuð
ákveðnum skorðum. Gestir syngja
með í nokkrum laganna og svo
flytja kórar kirkjunnar og einsöngv-
arar ýmsar perlur þess á milli. Ein-
söngvarar að þessu sinni eru Gissur
Páll Gissurarson, Eivör Pálsdóttir,
Kristín Sveinsdóttir og Andri Björn
Róbertsson, auk einsöngvara úr
báðum kórum kirkjunnar.
Líður vel í starfi
Árni Heiðar tók við starfi í ágúst
síðastliðnum eftir að Jón Stefáns-
son lést af slysförum. Jón hafði stýrt
tónlistarstarfinu í Langholtskirkju í
hálfa öld og byggt upp mikið starf.
„Ég kem að ótrúlega góðu búi og
hef það mjög gott í nýja starfinu,“
segir Árni Heiðar. „Mér var tekið
vel af öllum hér og fann fyrir mik-
illi hlýju. Þetta hefur gengið vel
og merkilegt að átta sig á því hve
uppbygging Jóns var mikil á þess-
um 50 árum sem hann starfaði við
sóknina. Ég er því að kafa ofan í
allt saman hér, bæði nótnasafn og
hefðasafn og átta mig á hvernig
landið liggur. Þegar maður kem-
ur að þessu kórstarfi sér maður
hve þetta er dýrmætt. Í aðalkórn-
um hjá mér eru þannig söngkon-
ur í kringum þrítugt sem hafa ver-
ið hér að syngja síðan þær voru á
barnsaldri. Það er dálítið magnað
að hafa sungið í kór hjá Jóni Stefáns-
syni frá því að maður var fjögurra
ára. Þetta hefur því verið ótrúleg
uppeldisstöð á söngvurum áratug-
um saman.“
Sjálfur er Árni Heiðar uppalinn
í hverfinu og þykir því vænt um
tónlistarstarfið sem segja má að sé
hjartað í sóknarstarfinu. „Ég fékk
að æfa mig á píanó hérna í kirkjunni
og var meira að segja í ræstingum
hérna, þannig að kannski má segja
að ég hafi unnið mig upp. Kirkjan
hefur verið eins konar tilraunastöð
fyrir tónlistarmenn að fá að koma
fram án þess að pressan væri of
mikil. Ég man til dæmis að ég var
líka að læra á óbó og Jón fékk mig til
að spila sóló á það einhverju sinni.
Tónlistin var svolítið fyrir ofan
mína getu þannig að ég æfði mig og
æfði og ég hef Jón grunaðan um að
hafa legið á hleri og hlustað þar til
hann dæmdi um að ég væri tilbúinn
í þetta. Svona var Jón, hann hafði
lag á því að fá það besta út úr fólki
og ýta því áfram.“ segir Árni Heiðar
hlæjandi.
Fyrstu Jólasöngvar Langholtskirkju
verða sungnir á föstudag kl. 23, því
að fyrst þegar þeir voru sungnir var
það eftir verslunarferðir gestanna
á Þorláksmessu. Tónleikarnir eru
endurteknir á laugardag og sunnu-
dag, kl. 21.
Nóg af hefðum
til að átta sig á
Árni Heiðar Karlsson heldur nú utan um tónlistardagskrá
Langholtskirkju á jólum og jólaföstu í fyrsta sinn.
volundarhus.is · Sími 864-2400
GARÐHÚS 14,5 m²
www.volundarhus.is
Vel valið fyrir húsið þitt
RÝMINGARSALA
20% aukaafsláttur af öllum
GARÐHÚSUM
á meðan byrgðir endast
V
H
/1
6-
05
GARÐHÚS 4,7m²
44 mm bjálki / Tvöföld nótun
GARÐHÚS 4,4m²
GARÐHÚS 9,9 m² án gólfs
GARÐHÚS 9,7m²
50% afsláttur
af flutningi á
GARÐHÚSUM og
GESTAHÚSUM
á allar þjónustu-
stöðvar Flytjanda.
GESTAHÚS og
GARÐHÚS
sérhönnuð fyrir
íslenskar aðstæður
Sjá fleiri
GESTAHÚS og
GARÐHÚS á tilboði
á heimasíðunni
volundarhus.is
· Allt á að seljast
· Fyrstur kemur fyrstur fær
· Ekki missa af þessu
Sjá nánari upplýsingar á heimasíðu
okkar volundarhus.is
og í síma 864-2400.