Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 16.12.2016, Blaðsíða 58

Fréttatíminn - 16.12.2016, Blaðsíða 58
58 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 16. desember 2016 Birna Guðmundsdóttir birna@frettatiminn.is „Þessi skúffa inniheldur minningar úr fyrri uppfærslum sem ég hef tek- ið þátt í á mínum stutta starfsaldri í íslensku Óperunni,“ segir Níels sem er sýningarstjóri íslensku Óper- unnar og ekki nema 23 ára gamall. „Hér má finna þrívíddargler- augu sem láta mann sjá áströlsku borgina Sidney í þrívídd. Svo eru hérna möppur af gömlum glósum úr uppfærslum sem ég hef kosið að eiga og tel mjög gagnlegar. Reyndar eru þetta glósur af hug- myndum sem virkuðu síð- an ekki,“ segir Níels. Í skúffunni má einnig finna leikgerðina af Sjálfstæðu fólki, nótnabindi og tvær spiladósir. „Aðra fann ég hérna á skrifborðinu mínu en hina gaf Kol- brún Halldórsdóttir mér og er svona „souvenir“. Síðan er ég með geisladisk sem inniheldur franska leigubílstjóratónlist og fjaðurpenna sem mér var gefinn eftir uppfær- slu á Don Giovanni.“ Að lokum nefnir Níels aragrúa bréfa sem honum hefur borist þar sem samstarfsfólk hans hefur þakkað honum fyrir samstarfið. „Þetta eru allskonar bréf sem innihalda fögur orð. Mjög falleg bréf í minn garð frá óperu- söngvurum, kórmeðlimum og hljómsveitarstjórum. Þessi skúffa er stútfull af kærleik og í hana gengur enginn nema ég. Hana mun ég taka þegar ég hætti hér.“ Hjálmar Friðriksson hjalmar@frettatiminn.is Kvikmyndavefurinn Variety grein- ir frá því að það hafi verið sam- dóma álit dómnefndar að of mikið væri af tónlist sem ekki samin af Jóhanni í kvikmyndinni til að akademían gæti metið tónlist Jó- hannesar að verðleikum. Að vísu er einungis eitt lag eftir Richter í kvikmyndinni, On the Nature of Daylight, sem áður hefur heyrst í kvikmyndinni Shutter Island. Lagið hljómar í upphafi og enda Arrival. Samkvæmt Variety er 86 prósent tónlistar í Arrival eftir Jóhann. Jóhann hefur í tvígang verið tilnefndur til Óskarsverðlauna, annars vegar fyrir Sicario fyrr á þessu ári og The Theory of Everything í fyrra. Hann hlaut Golden Globe verðlaunin í fyrra fyrir The Theory of Everything. Jóhann hefur verið tilnefndur til Golden Globe í ár fyrir tónlist sína í Arrival. Ekki er öll von úti um að Íslendingur verði tilnefndur til Óskarsverðlauna á næsti ári en þrír Íslendingar eiga kost á því. Óskarsakademían hefur kost á að tilnefna Hjört Ingva Jóhannsson og Huga Guðmundsson fyrir tónlist í kvikmyndinni Autumn Lights og Atla Örvarsson fyrir tónlist í kvik- myndinni Bilal. Draslskúffa Níelsar Frönsk leigubílstjóratónlist og fjaðurpenni Flestir eiga eina skúffu þar sem allt drasl heimsins lendir í. Allskonar gersemar geta leynst í skúffunni. Níels Thibaud Girerd deilir með Fréttatímanum því sem leynist í draslskúffunni en hana er að finna í skrifborðinu hans í vinnunni, Íslensku óperunni. Nótnabindi, leikgerðir og fjaðurpennar. Níels hefur sankað að sér sönnum gersemum í starfi sínu sem sýningarstjóri. Myndir | Rut Óskarstilnefning höfð af Jóhanni Ljóst er að tónskáldið Jóhann Jóhannsson verður ekki tilnefndur til Óskarsverðlauna líkt og síðustu tvö ár. Óskarsakademían mun ekki eiga kost á tilnefna tónlist Jóhanns í kvikmyndinni Arrival þar sem of mikið er af tónlist tónskáldsins Max Richter í kvikmyndinni, að mati dómnefndar. Of mikið af Richter. Níu bestu kvikmyndir ársins Nú þegar jólafríið fer bráðum að ganga í garð er gott að fara yfir hvaða bíómyndir stóðu upp úr á árinu fyrir næsta sófagláp. Fréttatíminn lagðist í rannsóknarvinnu og skoðaði hvaða níu myndir á árinu voru bestar. Moonlight Við fáum að fylgjast með ungum svörtum manni kljást við umhverfi sitt og kynhneigð og leit hans að sínum stað í tilverunni. Arrival Geimverur koma óvænt til jarðar og fáum við að fylgjast með hinni eitursnjöllu málvísindakonu Lousie Banks reyna að ráða út hver er ástæða komu geimveranna til jarðarinnar. Doctor Strange Hinn geðvondi Dr. Stephen Vincent Strange er færasti skurðlæknir sem sögur fara af. Einn góð- an veðurdag lendir Strange í slysi sem skaðar hendur hans svo að hann getur ekki haldið áfram skurðlækningum sínum sem eru hans mesta stolt. Strange lætur ekkert stoppa sig í leit að lækningu og ferðast til hjara veraldar og hittir þar nokkra áhugaverða karaktera... Manchester by the Sea Lee Chandler missir bróður sinn í slysi og þarf að ganga frændum sínum í föður- stað. Áhorfandinn fylgist með frændunum ganga í saman gegnum sorgartíma þar sem þeir ná saman á ný. Son of Saul Saul er ungverskur fangi í útrýmingarbúðum nasista og eina leiðin til að komast lífs af er að aðstoða nasista við út- rýmingu samfanga sinna. Hypernormalisation Sláandi heimildamynd eftir Adam Curtis. Trump, Brexit, Sýrland… ótrúlegir atburðir eru að gerast og enginn veit hvers vegna eða hvað á að gera. En á sama tíma höfum við búið okkur til verndarkúlu, ímyndaðan heim sem við hverf- um inn í. Einhvern tímann verður kúlan samt að springa, eins og sápukúla. Rogue One: A Star Wars Story Hver elskar ekki Star Wars? La La Land Frá leikstjóra hinnar frá- bæru myndar Whiplash kemur hjartaknúsandi söngleikurinn La La Land. Tveir týndir listamenn í lífinu hittast og verða ástfangnir. Skyndilega hrynur allt í lífi turtildúfnanna en söngur, dans og ást koma þeim í gegnum erfiðan tíma. Saman. Zootopia Hvernig getur lítil kanína sann- að sig í nýju starfi sem lögreglukona þegar enginn trúir á að kanína geti það? Ljúfa Kanínan Judy og lygarefurinn Nick eru aðalsöguhetjur myndarinnar þar sem þau þurfa að snúa bök- um saman að leysa úr sam- særi sem getur gjörbreytt fram- tíð Zootopia.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.