Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 16.12.2016, Blaðsíða 62

Fréttatíminn - 16.12.2016, Blaðsíða 62
Höskuldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is Þetta er auðvitað ofsa-lega gaman og ánægju-leg viðurkenning eftir að hafa verið að skrifa um vín í rúm 25 ár,“ segir Steingrímur Sigurgeirsson vínsérfræðingur. Bók Steingríms, Vín — Umhverfis jörðina á 110 flöskum, sem gef- in var út í fyrra hjá Crymogeu kom ný- verið út á Ítalíu. Þar í landi kallast bókin Il grande libro illu- strato del vino. Bók- in vakti mikla athygli hér á landi enda var hún einkar glæsi- lega myndskreytt af þremur ungum lista- konum, þeim Lóu Hjálmtýsdóttur, Rán Flygenring og Siggu Björgu. Þetta er nú ekki amalegt, að vera að segja Ítölum til um vín og víngerð... „Nei, enda má segja að Ítalía sé að mörgu leyti vagga víngerðar- innar. Rómverjar færðu þjóðum á borð við Frakka og Spánverja vín- gerðina. Það er mjög gaman að fá að skrifa um vín fyrir Ítali og gaman að glugga í eigin texta á ítölsku.“ En hvernig kemur það til að ís- lensk bók um vín er gefin út á Ítalíu? Steingrímur segir að ítalskir vínsér- fræðingar skrifi mest um ítölsk vín og því kunni fjölbreytni bókarinnar að þykja áhugaverð. „Við búum auðvitað ekki til vín sjálf og eigum því ekkert heimalið. Því er allur heimurinn undir í þessari bók,“ segir hann. „Við vorum öll mjög ánægð með hvernig til tókst með þessa bók hér heima, enda er þetta svo- lítið öðruvísi nálgun við vínbæk- ur en maður hefur oftast séð og myndskreytingarnar gæða bókina miklu lífi. Okkur datt í hug að bókin ætti kannski erindi víðar og á bóka- messunni í Frankfurt sýndu þessir Ítalir henni áhuga og vildu skoða hana betur. Þeir eru með vínrit- stjóra sem fór í kjölfarið yfir bókina til að athuga hvort hún væri ekki í lagi. Þetta var allt eftir kúnstar- innar reglum og að því búnu sögðust þeir endilega vilja gefa hana út,“ segir Stein- grímur. Umrætt for- lag, EDT, er í Tórínó og gefur út mikið af efni um mat og ferða- lög, til að mynda Lon- ely Planet-bækurnar á ítölsku. Að því búnu var bókin þýdd yfir á ítölsku. „Ég hitti þenn- an þýð- anda í sumar því það þurfti að staðfæra ákveðna hluti. Þessi bók er auðvitað skrif- uð fyrir Íslendinga og v ið breyttum nokkrum íslenskum tilvísunum. En það voru reyndar nokkrar slíkar sem fengu að halda sér.“ Steingrímur segist að- spurður lengi hafa verið aðdáandi ítalskra vína. „Já, ég hef a l ltaf ver ið einstaklega hrifinn af Ítal- íu og Frakklandi, það voru ekki síst þau lönd sem kveiktu hjá manni áhugann á vínum og vínmenningu. Ég hef ferðast um Ítalíu þvera og endilanga, frá Piemonte í norðri til Sikileyjar í suðri, og heimsótt vín- framleiðendur og kynnst hefðunum og menningunni á hverjum stað.“ Bókin er seld í búðum um alla Ítalíu og í bóksölum á netinu, t i l að mynda bæði ítölsku og spænsku útgáf- unni af Am- azon, að sögn Steingríms. Verður útgáf- unni eitthvað fylgt eftir. Býður þín rauður dregill þar syðra? „Nei, það er enginn rauður dregill, ekki í bili að minnsta kosti,“ segir hann hlæjandi. Stendur til að bókin komi út víðar en á Ítalíu? „Það eru forlög í fleiri löndum að skoða hana. Það er aldrei að vita hvað gerist næst.“ Rán Flygenring, Sigga Björg og Lóa Hjálmtýsdóttir myndskreyttu bók Stein- gríms af mikilli list. Mynd | Hari Íslenskur vínsérfræðingur í óvænta útrás Bók Steingríms Sigurgeirssonar, Vín - Umhverfis jörðina á 110 flöskum, var nýverið gefin út á Ítalíu. Steingrímur segir að þetta sé ánægjuleg viðurkenning fyrir sig, enda sé Ítalía vagga víngerðarinnar. Steingrímur Sigur- geirsson hefur ferðast um Ítalíu þvera og endilanga og kynnt sér vínmenningu þarlendra. Nú hefur bók hans um vín verið gefin út á Ítalíu. Mynd | Hari Bók Steingríms kallast Il grande libro illustrato del vino í ítalskri útgáfu. …fjörið 2 | amk… FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 2016 „Það er mjög gaman að fá að skrifa um v ín fyrir Ítali og g aman að glugga í eigin texta á ítölsku.“ Tekur upp raunveruleikaþátt í meðferð Lamar Odom, NBA stjarna og fyrrverandi eig- inmaður Khloe Kardashian, skráði sig sjálfur í meðferð í vikunni, rúmu ári eftir að hann tók of stóran skammt af eiturlyfjum og var nær dauða en lífi. Ástæðan fyrir því að hann ákvað að drífa sig í meðferð núna, var sú að hann óttaðist að hann myndi falla í kringum afmælisdag látins sonar síns, þann 15. október. En sonur hans, Jayden, fæddist árið 2005 og lést ungbarna- dauða í júní árið eftir. Odom skráði sig í 60 daga meðferð og ætlar að vinna bæði í edrú- mennskunni og andlegri heilsu. Að sjálfsögðu stendur til að gera raun- veruleikaþátt um það verkefni hans. Náði bata í gegnum fitness Melanie C sem margir muna kannski eftir sem Sporty Spice í Spice Girls hefur greint frá því að fitness hafi hjálpað sér út úr átröskun sem hún þróaði með sér þegar hún var hluti af sönghópnum. Melanie var rétt tvítug þegar hún varð hluti af Spice Girls og varð fljótt mjög meðvituð um sjálfa sig þegar hún var sífellt í sviðsljósinu. Hún var lengi í afneitun vegna átröskunarinnar en langaði samt að ná bata. Það var ekki fyrr en hún kynntist fitness sportinu að hún fór að jafna sig. Ben og Jen virðast óaðskiljanleg Sparar ekki stóru orðin um fyrrverandi konu sína. Þrátt fyrir að Jennifer Garner og Ben Afflex hafi tilkynnt það fyrir rúmu ári að þau hygðust skilja eftir tíu ára hjónaband, þá eyða þau enn miklum tíma saman og virðast góð- ir vinir. Saman eiga þau þrjú börn á aldrinum fjögurra til ellefu ára og í nýlegu viðtali í New York Times hrósaði Ben Jennifer fyrir að vera góð móðir. Hann sagði hana vera bestu móður í heimi. Þá sagði Ben jafnframt að það að eignast börn- in sín væri það merkilegasta sem hann hefði afrekað í lífinu. Hann hefði unun af því að eyða tíma með þeim og það væri tilgangur lífsins að skapa góða einstaklinga. Hann sparaði því ekki fallegu orðin um fjölskyldu sína. Ben og Jennifer hafa nýlega sést saman á veitingastöðum þar sem einstaklega vel hefur farið á með þeim, og þeir sem ekki vita betur gæti haldið að þau væru ástfangið par. Þá er það ekkert leyndarmál að Ben býr ennþá heima hjá Jennifer og börnunum þar sem þau sinna uppeldi þeirra saman. Maður gæti spurt sig af hverju þau voru yfir höfuð að skilja. Sex svefnherbergi, sjö baðherbergi Hinir nýbökuðu foreldrar Rob Kardashian og Blac Chyna eru svo heppin að fá að leigja hús af Kylie Jenner, systur Rob, í Hidden Hills. Kylie verður þó ekki heimilislaus á með- an, enda á hún þrjú önnur hús sem hún getur hreiðrað um sig í. Til stóð að litla fjölskyldan myndi búa í húsi í eigu Chyna en þar sem hús Kylie er bæði stærra og nær heimili Kris Jenner, móður Rob, þá ákváðu þau að flytja þangað inn. Það ætti ekki að væsa um þau í Hidden Hills með sex svefnher- bergi og sjö baðherbergi. www.bismagg.is | Sími 893-6865 | bismagg@bismagg.is Við erum 3 ára í dag Bismagg er netverslun með mjög gott úrval af logalausum kertum. Kertaljós og kósýheit án eldhættu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.