Fréttatíminn - 16.12.2016, Blaðsíða 54
54 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 16. desember 2016
Sovétið sem var
Guðni Tómasson
gudni@frettatiminn.is
Þó að það sé algjör óþarfi að gráta
Sóvétríkin er allt í lagi að velta
því fyrir sér hvað ríkjasambandið
bauð auganu upp á á sínum tíma
þegar kom að hönnun og sjónræn-
um hliðum lífsins. Þetta var eitt-
hvað að því sem sást þegar Vestur-
landabúar litu til risans í austri á
sínum tíma.
Þessa dagana er þess
minnst með ýmsum
hætti að 25 ár eru liðin
frá því að Sovétríkin
liðuðust í sundur. 8.
desember árið 1991
hittust leiðtogar Rúss
lands, Úkraínu og Hvíta
Rússlands og komu sér
saman um þá niður
stöðu að stórveldið
heyrði sögunni til. Þrátt
fyrir mótmæli aðalritar
ans Mikhaíl Gorbatsjev
reyndist þetta satt og
rétt. Heimsmyndin var
að breytast.
Trúðu mér. Í Sovétríkjunum
kunnu menn að hanna áróður og
þó að sum plaggötin séu grimmi
leg í ljósi sögunnar þá hefur
margt af þessari hönnun haft
mikil áhrif á grafíska hönnuði á
seinni árum.
Út í geim. Sovétmenn áttu
líka flotta geimfara. Það
gleymist stundum. Í dag eru
Rússar mikilvægur hlekkur í
alþjóðasamstarfi þegar kem
ur að geimvísindum. Þeir
eiga Soyuz geimförin sem
bera geimfarana út í Alþjóð
legu geimstöðina.
Öðruvísi bílar. Þar austur frá var rúll
að á annars konar bílum en hér fyrir
vestan, hvort sem það voru Lödur,
Moskvitchar eða ZiL límúsínur.
Ekkert til. Þegar halla
fór undan fæti vöktu
galtómar búðir og langar
biðraðir mikla undrun á
Vesturlöndum allsnægt
anna. Eftir fallið tóku við
erfiðir tímar í efnahag
landanna sem mynduðu
Sóvétríkin.
Miklir menn. Í Sovét
ríkjunum kunnu
menn að reisa styttur
af þeim sem voru
aðal, en höfðu síðan
vit á því að rífa þær
niður síðar meir.
Vöðvarnir spenntir. Í Sovét ríkjunum voru haldnar mikilfenglegar her
sýningar í umhverfi sem var vel við hæfi. Rauða torgið var sviðið fyrir
þessar sýningar sem vöktu óhug á Vesturlöndum, enda var þeim ætlað
að gera það.
Dúnteppi ljósbrúnt
stærð140x200
9.990 kr
Fæst í 4 litum
DÚNTEPPI
GEFÐU MÝKT OG HLÝJU Í JÓLAGJÖF
Dúnteppin eru fyllt með
100% dúni svo þau eru bæði
hlý og notaleg. Henta vel
heima í stofu, við sjónvarpið, í
bústaðinn eða úti í náttúrunni.
LAUGAVEGI 176 | GLERÁRTORGI | KRINGLAN | LINDESIGN.IS